Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 44
25. maí 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir
Epoxy Gólf ehf. sérhæfa sig í epoxy gólf-efnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þessi gólfefni eru samskeytalaus og níðsterk.
Þau henta því vel þar sem kröfur eru gerðar um
hreinlæti og langa endingu. Starfsmenn Epoxy
Gólfa hafa yfir 30 ára reynslu og fyrirtækið hef-
ur fest sig rækilega í sessi sem þjónustuaðili fyr-
ir iðnað, verslanir og heimili. Epoxy Gólf bjóða nú
spennandi nýjungar sem meðal annars henta
heimilum, verslunum, skólum, sjúkrahúsum o.fl.
Deco Line: Sjálfflæðandi slitsterkt gólfefni
„Við erum með nýja lausn sem inniheldur
polyurethane og er tveggja þátta lausn eins
og epoxy. En jafnframt er hægt að fá þetta
efni með eiginleikum, t.d. mikilli mýkt eða mikilli
hörku, allt eftir óskum kaupandans. Líkt og með
epoxy-efnin sem við bjóðum upp á er hægt að
fá Deco Line lausnina í alls konar litum. Þetta er
sjálfflæðandi þannig að það er án samskeyta
og getur flætt á milli rýma. Þessi nýja lausn er
mjög hlýleg og falleg í útliti þar sem satíngljái
yfirborðsins gefur aukinn glæsileika. Gólfefnið er
endingargott og slitsterkt, þannig að þú þarft
lítið að hugsa um að endurnýja gólfefni í fram-
tíðinni ef búið er að leggja þetta á gólfin,“ segir
Torfi Már Hreinsson, einn eiganda Epoxy Gólfa.
Gólfefnalausnin Deco Line kemur frá hol-
lenska fyrirtækinu Quartzline og hentar fyrir
heimili, skólastofnanir, íþróttahús og verslunar-
húsnæði, bæði í afgreiðslu og á lager þar sem
mikið álag er á gólfum.
Micro Top: Vatnsheldir veggir og gólf á bað-
herberginu
Önnur áhugaverð nýjung frá Quartzline sem
Epoxy Gólf bjóða upp á er Micro Top. „Þetta er
eins og áferðarflot nema að það er algjörlega
vatnshelt. Lausnin hentar vel á gólf á heimilum
og í verslunarrými og gefið hún mjög skemmti-
legan karakter. Micro Top er bæði hægt að setja
á gólf og veggi. Það hentar vel í blautrými eins
og sturtuklefa eða á gólf og veggi baðherbergja.
Við framköllum sjálfir grófleikann í efninu og þú
getur fengið þetta eins gróft eða slétt og þú vilt.
Því eru engar tvær niðurstöður nákvæmlega
eins þó svo þær geti verið keimlíkar. Lausnin
gefur hrátt og skemmtilegt útlit og hægt er að
fá hana í mörgum litum,“ segir Torfi Már.
Það gildir um allt efni frá Epoxy Gólfum að
fagmenn þurfa að leggja það. „Við þjálfum
starfsmenn í 6 til 12 mánuði áður en þeir fá að
leggja þessar gólflausnir,“ segir Torfi.
Fyrir nánari upplýsingar á þessum slitsterku
og endingargóðu gólf- og veggklæðningum er
best að senda fyrirspurn á netfangið
epoxygolf@epoxygolf.is
eða skilaboð á Facebooksíðunni
https://www.facebook.com/epoxygolf/.
Vefsíðan er http://epoxygolf.is
SLiTSTErkar oG SMEkkLEGar LauSnir frá Epoxy GóLfuM:
Fallegt og
endingargott
gólfefni