Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 22
22 umræða Sandkorn 25. maí 2018 Spurning vikunnar DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík fréttaskot 512 7070 abending@dv.is Nú þurfa þau loksins að svara Í vetur hóf DV mikla umfjöll- un um Krýsuvíkursamtökin og meðferðarheimilið sem þau reka fyrir vímuefnaneytend- ur. Í þeirri umfjöllun kom fram að samtökunum væri stýrt með harðri hendi af mæðginum sem hefðu nýtt sér að leika lausum hala í mörg ár. Fluttar voru fréttir af óeðlileg- um samskiptum við skjólstæðinga, kynferðisbroti, óttastjórnun, bruðli og harðneskjulegri með- ferð á ungum manni sem lést eftir að hann var rekinn af heimilinu og skilinn eftir á bensínstöð. Það var ljóst að ástandið, í þessu athvarfi fyrir fólk í neyð, var mjög langt frá því sem eðlilegt get- ur talist. Engum gat dulist það. En aðrir fjölmiðlar létu það vera að fjalla um Krýsuvíkursamtökin og DV var því eins og hrópandi mað- ur í eyðimörkinni. Nú hefur það gerst að starfs- fólkið hefur fengið nóg og helm- ingur þess sagt upp. Ekki vegna þess að DV flutti ljótar sögur af starfseminni og valdníðslu yfir- manna heldur af því að það vissi manna best að sögurnar væru dagsannar. Vitaskuld vildi starfs- fólkið ekki skilja skjólstæðingana eftir í viðkvæmri stöðu en aðstæð- urnar voru óbærilegar og eins og einn viðmælandi DV sagði ekki boðlegar „starfsheiðursins vegna“. Skömmu eftir uppsagnirn- ar bárust þær fréttir að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefði ákveðið að rifta samningi Sjúkratrygginga Íslands við Krýsu- víkursamtökin. Fjárframlögin hafa hækkað mikið undanfarin ár vegna þrýstings frá forsvarsmönn- um samtakanna, frá um 70 millj- ónum árið 2015 í 114 milljónir fyrir árið 2018. Landlæknir mun gera úttekt á starfseminni og það er erfitt að sjá hvernig núverandi stjórn getur staðist hana. Því lítur allt út fyrir að heimilinu verði lok- að í desember, tæpu ári eftir að DV velti steininum við. Það er ekki yfirlýst markmið DV að láta loka meðferðarheimil- inu að Krýsuvík. Við viljum ekki að fíklar séu á götunni og fái ekki þau úrræði sem þeir þurfa til að snúa við blaðinu og eiga afturkvæmt í samfélagið. Krýsuvíkursamtök- in hafa bjargað fjölda manns úr greipum heljar á þeim rúmlega þrjátíu árum sem þau hafa ver- ið starfrækt og margir hugsa með hlýju til þessa staðar. EN. Þetta stóra EN. Það er ekki sama hvernig hlutirnir eru gerð- ir, og björgun eins réttlætir ekki niðurbrot annars. Þegar fólk, sem er á sínum lægsta punkti í líf- inu, leitar á náðir stofnana eins og þessa verðum við að tryggja að rétt sé haldið á málum. Þessi saga fjallar ekki aðeins um það hvernig stjórnendurnir höguðu sér heldur hvernig eftirlitið brást og hversu nauðsynlegt það er að mál eins og þessi komi upp á yfirborðið. Ef DV hefði ekki fjallað um málið hefði lífið í Krýsuvík haldið áfram ótruflað. Ungar stúlkur lent í klóm á starfsmanna, sjúklingar þurft að þola hranalega meðferð og stig- vaxandi fjárveitingar ríkisins farið í bruðl stjórnenda. En nú þurfa þau loksins að svara til saka. n Leiðari Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Í hvert skipti sem ég les viðtöl eða yfirlýsingar frá Jordan B. Peterson kemur upp í hugann atriði úr kvik- myndinni Magnolia þar sem Tom Cruise, í hlutverki höfundar lífstíls- bóka fyrir fústreraða karla, æpir yfir sal af æstum mönnum: „Respect the cock! And tame the cunt!“ sem áhorfendurnir síðan taka undir í kór eins og heilaþveginn sértrúarsöfn- uður að kyrja. Peterson er auðvitað að selja hugmyndakerfi og á öfgatímum þar sem sérstaklega karl- ar á ákveðnum aldri finnst þeir hornreka í þjóðfélaginu í vaxandi mæli og „pólitískur rétttrúnaður“ að tröllríði heimi þeirra, fær þessi mál- flutningur því miður hljómgrunn. Hann er tímaskekkja, sveiflandi í kringum sig frösum um styrk, aga og heiður, allt saman hugtök sem minna óþægilega mikið á málflutn- ing ofstækismanna á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld. Ræður hans um „póstmódernískan neó-Marx- isma“ sem grafi undan mennta- kerfinu og vestrænum gildum eru í besta falli hlægilegt ofsóknaræði. Og maður sem heldur því fram að konur hafi ekki sætt kúgun liðin ár- þúsund og hvít- ir menn hafi ekki búið við ótrúleg forréttindi telst tæp- lega marktækur. Hann er táknmynd þráhyggju um afturhvarf til íhalds- samra gilda – tíma sem enginn á að sakna því að það voru ömurleg- ir tímar. En Peterson er hættulegur, verandi greindur og vel máli farinn og klókur í að klæða úreltar og öfga- fullar hægriskoðanir í fræðilegan búning. Það er vitaskuld sjálfsagt að virða málfrelsi hans, en þegar fræði- búningurinn er skafinn af kenn- ingunum sést skýrt að þarna fer ekki skínandi hugsuður heldur forpok- aður fýlupoki í ömurlegri krossferð. É g er hlynnt komu Jordans til Íslands eins og annarra útlendinga. Ég vil reyndar fylla Ísland ólíku fólki, sem er með mismunandi skoðan- ir og menningu. Jordan tilheyr- ir þó reyndar þeim forréttinda- hópi sem fær hvað mesta áheyrn í heiminum ólíkt fólkinu sem ég óska mér að opna landið fyrir, en það er efni í mjög langt samtal. Ástæðan fyrir því að ég er með heimsókn hans er einföld. Ég tel það virkilega hollt fyrir fólk með heila að geta skilið sig frá fylgj- endum hans því það er ansi afhjúpandi að fylgjast með brund- fyllisgrömum körl- um fylkja liði með manni sem sam- svarar sig með krabbadýrum. Við erum að tala um manneskju svo snauða af menningu og inni- haldi að hún hefur aðeins lið- dýravit. Ég sé þetta líka sem gott tækifæri fyrir fólk í makaleit sem þá og nú getur prísað sig sælt að vita fyrir víst hvaða menn á að forðast til frekara samneytis. Þá er ótalinn smáborgaraháttur Ís- lendinga sem kristallast í öllu ha- varíinu. Íslendingar eru nefnilega, upp til hópa, mjög sveitó og ginkeyptir fyrir hverskyns prjáli. Prjáli sem þeir telja framandi. Költleið- togi eins og Jordan er þannig í príma stöðu gagnvart fámenn- um pöpulnum sem glaður þigg- ur tilbreytingu útlendinga, þó ekki róttækari en frá hinum hvíta, miðaldra ríka manni, burt- séð frá þeirri staðreynd að til- breytingin er ekkert nema aftur- haldssemi og kvenhatur í nýjum búningi. You can’t polish a turd. María Lilja Þrastardóttir, blaðakona og húsmóðir Sindri Freysson, rithöfundur. Með og á Móti afstaða þÍN til komu JordaN PetersoN? með á móti Pólitískur Gordíonshnútur Píratar hafa verið duglegir að tala um spillingu og mis- beitingu valds, sérstaklega í tengslum við Sjálfstæðis- flokkinn. Það er ástæðan fyrir því að Píratar vilja ekki fara í sam- starf með Sjálf- stæðisflokknum eftir kosningar í Reykjavík. Það vekur óneit- anlega upp þá spurningu hvort Píratar hafi sett í sig í spor þeirra sem þeir telja vera spillta. Flest- ir, ef ekki allir Sjálfstæðismenn, telja sig ekki vera spillta og skilja ekki hvað Píratar vilja að þeir geri. Þarna er kominn póli- tískur Gordíonshnútur, verst að sverð eru bönnuð á Íslandi. Vilhjálmur, hvað er að frétta þessa dagana? „Það er helst að frétta að stjórn Verkalýðsfélags Akraness lýsti yfir vantrausti á forseta ASÍ á fundi sínum síðasta mið- vikudag. Einnig kom fram í yfirlýsingu frá stjórn félagsins að forseti ASÍ fer ekki með umboð félagsins í viðræðum við stjórnvöld vegna aðkomu þeirra að komandi kjarasamn- ingum. Það er mat félagsins að forseti ASÍ hafi unnið gegn hagsmunum félagsmanna VLFA og skuldsettum heimil- um með því að taka ætíð stöðu með fjármálakerfinu gegn hagsmunum félagsmanna ASÍ. Það er ljóst að grasrót verka- lýðshreyfingarinnar er að kalla eftir róttækari og herskárri baráttu þar sem kallað verður eftir kerfisbreytingum þar sem hagsmunir almennings verða teknir fram yfir hagsmuni fjármálaelítunnar. Tími sam- ræmdrar láglaunastefnu undir forystu forseta ASÍ er liðinn!“ Hvað ætlar þú að kjósa á laugardaginn? „Ég kýs Pírata.“ Vignir árnason frá Reykjavík „Ég er ekki búin að ákveða það.“ Valva árnadóttir frá Reykjavík „Ég ætla að kjósa xD listann.“ Sigurður Fannar guðmundsson frá garðabæ „Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn.“ Dóra gunnarsdóttir frá Austurlandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.