Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 52
 25. maí 2018KYNNINGARBLAÐNámsframboð á háskólastigi og fjarnám Ferðamáladeild Háskólans á Hólum býður upp á háskóla-nám í ferðamálafræðum, viðburðastjórnun og stjórnun ferða- þjónustu og móttöku gesta. Markmið námsins er að undirbúa nemendur fyrir fjölbreytt störf í ferðaþjónustu og viðburðastjórnun. Nemendur geti tekið virkan þátt í þróun ferðaþjón- ustu á Íslandi ásamt því að gegna stjórnunar- og ábyrgðarstörf- um. Nemendur verði einnig færir um að stofna ný fyrir- tæki og skipuleggja og útfæra viðburði frá upphafi til enda. Námið er því í senn hagnýtt, fræðilegt og fjölbreytt. Mikil áhersla er lögð á verk- nám sem hluta af námsleið- um á grunnstigi með sam- starfi við fyrirtæki í greininni víðsvegar um landið. Með markvissu skipulagi verk- námsins er leitast við að tryggja nemandanum góða starfsreynslu á verknámstím- anum og að fyrirtækin sjái sér einnig hag í því að taka til sín verknámsnema, sem gjarnan færir með sér nýja strauma hug- mynda og þekkingar í ferðamálum. Í gegnum verknám og gestakennslu kynnast nemendur atvinnurekendum í ferðaþjónustu og skapa tengsl sem nýtast þegar komið er út í atvinnulífið að námi loknu. Rannsóknir deildarinnar snúa að fjölbreyttum viðfangsefnum ferða- málafræða og viðburðastjórnunar. Má þar nefna efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu, upplifun ferða- manna, samfélagsleg áhrif og félagsleg þolmörk ferðaþjónustu, nýsköpun og vöruþróun, og starfs- umhverfi í ferðaþjónustu og tengd- um greinum. Í dag er boðið upp á fimm námsleiðir í Ferðamáladeild Háskól- ans á Hólum: n Diplómanám í ferðaþjónustu dreif- býlis (e. Rural Tourism) sem er eins árs nám á háskólastigi, með möguleika á að halda áfram inn á annað ár til BA gráðu í ferðamálafræðum n Diplóma í viðburðastjórnun (e. Event Management) sem er eins árs nám á háskólastigi. Hér er einnig möguleiki á að halda áfram í BA nám í ferðamálafræðum n BA nám í ferðamálafræðum (e. Tourism Studies) n BA nám í stjórnun ferðaþjónustu og mótttöku gesta (e. Tourism and Hospitality Management) n Rannsóknartengt meistaranám í ferðamálafræðum Nánari upplýsingar á vefsvæði Háskólans á Hólum, www.holar.is FERðAMálADEilD HáSkólANS á HóluM: FiSkElDiS- og FiSkAlÍFFRæðiDEilD HáSkólANS á HóluM: Undirbúningur fyrir fjölbreytt störf í ferðaþjónustu og viðburðastjórnun Fiskeldi er hraðvaxandi atvinnu-grein í heiminum. Rúmlega helmingur alls fisks sem nýttur er til manneldis kemur úr fiskeldi og aukin fiskneysla framtíðarinnar mun byggja á eldisfiski. árið 2016 var framleiðsla eldisfisks á Íslandi um 15.000 tonn, sem var 80% aukning frá fyrra ári, og rúmlega 20.000 tonn 2017. Fiskeldið er því í örum vexti hér á landi. Þess má geta að framleiðsla fiskeldisfyr- irtækjanna á árinu 2017 samsvaraði um 65 milljónum máltíða. Samkvæmt Matvælastofnun Sameinuðu Þjóð- anna (FAo) mun heimsbyggðin þurfa að tvöfalda matvælaframleiðslu sína fyrir árið 2050 til að mæta áætl- aðri fólksfjölgun. Fiskeldi og ræktun annarra lagardýra og plantna mun þar gegna lykilhlutverki. Af þessu leiðir að atvinnumöguleik- ar í fiskeldi eru miklir og margt að gerast í nýsköpun og tækniþróun. Fiskeldi er hátækniiðnaður þar sem nýjustu tækni er beitt til að koma til móts við þarfir eldislífvera en samtímis er leitast við að hámarka framleiðslu og lágmarka umhverfis- áhrif. Vegna þessa flókna samspils er mikil þörf á vel menntuðu starfsfólki í fiskeldi. Nú starfa um 600 manns í greininni hér á landi og fer sá fjöldi hratt vaxandi. Háskólinn á Hólum hefur boðið upp á nám í fiskeldi frá árinu 1986 og hef- ur útskrifað um 200 fiskeldisfræðinga á þeim tíma. Flestir þeirra starfa í atvinnugreininni. árið 2007 færðist námið á háskólastig. inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg undirbúningsmenntun. Skólinn býður upp á eins árs diplómanám. uppbygging námsins er þannig að reynt er að fylgja eftir framleiðsluferli eldisfisksins. Yfirleitt er eitt námskeið um tiltekið umfjöll- unarefni kennt í einu og er tvær til sex vikur að lengd. Námið hefst á inngangsnámskeiði þar sem rætt er almennt um fiskeldi og eldisfiska innanlands og á heimsvísu. Að auki er fjallað um grunnþætti þess að starfa og nema við háskóla. Næst er horft til eldisvatnsins og samspil þess við fiskinn sem í því lifir. Að því loknu taka við fjögur námskeið sem fylgja eldis- ferlinu og byrjað að fjalla um fjölgun fiska, klakfisk, hrogn og hrognatöku. Þá er fjallað um frumfóðrun, meðferð og eldi á seiðum. Næst er fjallað um áframeldi á eldisfiski fram að slátur- stærð. loks er námskeið um slátrun, vinnslu og varðveislu gæða. Til viðbót- ar eru námsskeið um fisksjúkdóma, forvarnir og hreinlæti, námsskeið um umhverfismál fiskeldis og námskeið um eldisbúnað í fiskeldi. Til viðbótar við þessi námskeið taka nemendur eitt viðskiptatengt námskeið. Náminu lýkur á 12 vikna verknámi í fiskeldisstöðvum. Nemendur sem lokið hafa náminu undanfarin ár starfa flestir í fiskeldi og sinna þar fjölbreyttum störfum. Margir eru millistjórnendur og stöðvarstjór- ar hjá eldisfyrirtækjum. Námið nýtist einnig fyrir þá sem hyggja á áfram- haldandi nám í greininni eða skyldum greinum, t.d. í sjávarútvegsfræði við HA, líffræði við HÍ eða sérhæfðara nám tengdu fiskeldi, víðsvegar um heiminn. Mikil eftirspurn er hvarvetna eftir menntuðu starfsfólki. Ítarlegar upplýsingar um námið er að finna á heimasíðu Háskólans á Hólum, holar.is. Miklir atvinnumöguleikar í hraðvaxandi atvinnugrein umhverfið á Hólum býður upp á fjölbreyttar kennsluaðferðir í útivistar-, náttúru- og menningartengdum námskeiðum. Mynd: kári Heiðar árnason glaðbeittir nemendur við Háskólann á Hólum. Mynd: laufey Haraldsdóttir Nemendur í verk- legum tíma læra að kreista fiska. Mynd: kári Heiðar árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.