Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal 25. maí 2018 É g hitti Evu Dís þar sem hún býr ásamt sætum chihuahua hundi í snoturri kjallaraí- búð í Vesturbænum. Heimil- ið er skipulagt og snyrtilegt og ber öll merki þess að þar búi kona sem hugsar vel um sjálfa sig, bæði sál og líkama. Líklegast er engin van- þörf þar á því líf þessarar brosmildu og skarpgreindu konu hefur verið ótrúlega átakasamt til þessa. Hvað kom eiginlega til að þú ákvaðst að segja frá því á borg- arráðsfundi að þú hafir verið í vændi? Hvernig þorðirðu þessu? „Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem ég opnaði mig um reynslu mína af vændi því það gerði ég í fjár- öflunarátaki fyrir Stígamót haustið 2016. En þarna á borgarráðsfundin- um má eiginlega segja að það hafi gerst óvart. Ég sat þarna á fundi og fannst umræðan stefna í ranga átt,“ segir Eva Dís. „Borgin lagði á ráðin um að koma af stað árveknisátaki gegn mansali og vændi og við vorum þarna á fundi þar sem sérfræðingar og borgarfulltrúar töluðu. Umræð- an barst eins og svo oft áður að er- lendum vændiskonum og ég óttað- ist að hún stefndi bara í sama gamla farið. Okkur finnst sú tilhugsun, að konur sem við gætum þekkt neyðist til að selja sig, mjög óþægileg og því er þægilegra að hugsa sér að vænd- iskonur á Íslandi séu útlenskar. Það er bara því miður ekki rétt. Tölurnar eru skakkar því íslenskar konur sem neyðast til að selja sig gera það ekki endilega að staðaldri og skilgreina sig ekki alltaf sem vændiskonur þó þær geri þetta stundum í neyð. En þarna sat ég sem sagt og hugsaði að enn værum við að forðast veruleik- ann. Ég virti líka fyrir mér fína fólk- ið í borgarráði sem sat í þessum fallega sal og hugsaði til konunn- ar sem þrífur þennan sal og launa- tölunnar hennar. Hvort að hún neyðist til að selja sig til að keppast við að gera börnin sín samkeppn- ishæf í íslensku samfélagi, svo að þau geti átt sömu hluti og börn fína fólksins í borgarráði? Allt í einu var ég svo bara komin upp í pontu og það var af tveimur ástæðum. Önnur er sú að ég vil ekki sjá neinn neyð- ast út í vændi en ef fólk gerir það þá vil ég að viðkomandi fái þá aðstoð sem hann eða hún þarf til að kom- ast yfir afleiðingarnar sem þessu fylgja. Hin var einfaldlega sú að ég vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að skapa meðvitaðra samfélag.“ „Okkur finnst sú tilhugsun, að konur sem við gætum þekkt neyðist til að selja sig, mjög óþægileg og því er þægilegra að hugsa sér að vænd- iskonur á Íslandi séu útlenskar.“ Hvernig skilgreinir þú vændi? Hvað er það í þínum huga? „Sjálfsskaði og ofbeldi. Sjálfs- skaði af hálfu vændiskonunnar, eða manneskjunnar sem er að selja sig, og ofbeldi af hálfu kaupandans. Ef ég hugsa um það þá er vændiskaup- andinn líka í sjálfsskaða. Það hlýt- ur að vera einhvers konar rof hjá einstaklingi sem borgar annarri manneskju fyrir að stunda það sem hann telur vera kynlíf án þess að skuldbinda sig tilfinningalega. Að vilja aftengja sig manneskju og jafnvel aftengjast sjálfum sér og stunda svo þessa athöfn finnst mér bara eitthvað skakkt. Það hlýtur að vera eitthvað í einstaklingnum sem hann vill ekki horfast í augu við. Hann ætti mögulega að eyða peningunum í sálfræðimeðferð en ekki borga annarri manneskju fyr- ir að níðast á henni. Og mér er al- veg sama hvort viðkomandi tel- ur sig bara vera að stunda eitthvað venjulegt. Það er ekkert eðlilegt við að riðlast á annarri manneskju fyr- ir peninga. Jafnvel þó sú manneskja telji sig vera samþykka.“ Meinarðu þá að sá eða sú sem kaupir vændi skaði sig með því að gera þetta og það sama gildi um fólk sem er í vændi? „Já allir tapa. Samfélagið líka. Nú er ég ekki mjög virk á samfé- lagsmiðlum. Áfallastreitan og af- leiðingarnar af því ofbeldi sem ég hef orðið fyrir hafa gert það að verk- um að ég er ekki svo áfjáð í að blanda mér í umræður á kommentakerf- um. En þegar ég skoða þetta þá sé ég að umræðan er oft á svo mikl- um villigötum. Um daginn rak ég t.d. augun í umræður um sænsku leiðina en þar vildi einhver meina að áhrifamáttur hennar væri tak- markaður vegna þess að það má ekki nafngreina vændiskaupendur. Og þar sem þeir fái lokuð réttarhöld hafi lögin ekki fælingarmátt. Svo voru þarna einhver komment sem líktu þeirri ákvörðun að selja líkama sinn við að selja fíkniefni. Þarna er verið að líkja saman eplum og álf- ramleiðslu að mínu mati. Þetta sýn- ir bara hversu mikil fáfræðin um vændi og skaða þess er.“ Þú minntist líka á að það væri óvinnandi vegur að ætla sér ein í það verkefni að stuðla að viðhorfs- breytingu til vændis. Svipað og að ætla sér ein síns liðs að breyta viðhorfum til fíkniefnaneyslu. Ég finn fyrir pínulitlu rumski hvað viðhorfin til þeirra mála varðar. Sí- fellt fleiri virðast líta á fíknihegðun sem sjálfsskaða og heilsufarsvanda og þannig sama hvaða vímuefni er ofnotað; vín, viský, kannabis, kóka- ín o.s.frv… „Já. Eða matur, peningaeyðsla og hvaðeina? Eftir að ég byrjaði að mynda mér sjálfstæðar skoðanir fæ ég stundum sjokk yfir því hvað margir virðast halda fast í skoðanir sem eru myndaðar í fordómum og ótta. Það má segja að það sé samt bara nýlega skeð því hér áður fyrr var ég svo meðvirk að ég sveiflaðist eins og vindhani eftir vindáttinni og var bara sammála síðasta ræðu- manni og síðari árin hef ég aðallega einbeitt mér að bata mínum og líð- an. Samfélagsmiðlar, kommenta- kerfin og skoðanirnar í þjóðfélaginu eru þannig eitthvað sem ég er bara nýlega byrjuð að kynna mér.“ Útskúfuð úr samfélaginu á Húsavík Flettum aðeins til baka í bókinni og byrjum á fyrsta kafla. Eva Dís Eva Dís Þórðardóttir starfaði sem vændis- kona árið 2004 á þremur vændishúsum í Kaup- mannahöfn. Þáverandi kærasti hennar kynnti hana fyrir þessum heimi sem hún segir hvaða stelpu sem er geta leiðst út í, eðlilega, enda eru allar konur systur, mæð- ur, frænkur og dætur einhvers. En hvað varð til þess að Eva Dís ákvað að greina opinberlega frá því að hún hefði verið í þessu starfi sem margir fordæma og hvernig vann hún sig svo út úr erfiðleikunum og áföll- unum sem óneitanlega hljóta að fylgja? Eva Dís vann sem vændiskona Margrét H. Gústavsdóttir margret@dv.is „Við vorum engin vandræðafjöl- skylda en bæjarbúar litu hins vegar á okkur sem aðkomufólk þó að bæði ég og systir mín séum fæddar þarna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.