Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 14
14 25. maí 2018fréttir
Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði I Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Rúmföt & lök
mikið úrval
Sloppar
fyrir bæði kyn
Handklæði
Mikið úrval
Gerið gæða- og verðsamanburð
sem með háværri tónlist, og stað-
ir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/
eða löggæslu. Flokkur þrjú er hins
vegar fyrir umfangsmikla áfeng-
isveitingastaði, svo sem þar sem
leikin er hávær tónlist, og staðir
sem kalla á meira eftirlit og/eða
löggæslu.
Söluturninn Vídeómarkaður-
inn er með leyfi í flokki þrjú en
samt mat lögreglan það svo að ekki
væri nauðsynlegt að dyravörður
væri á staðnum samkvæmt leyfis-
bréfi Vídeómarkaðsins sem DV
hefur undir höndum. Það er þrátt
fyrir að þeir hafi leyfi til að vera
með opið til 01:00 á virkum dög-
um og til 03:00 um helgar.
Í umsókn Vídeómarkaðsins
kemur fram að sótt er um vín-
veitingarleyfið sem veitingahús.
Skilgreining á veitingahúsi í um-
sókninni er staður sem býður upp
á fjölbreyttar veitingar í mat og
drykk og fulla þjónustu og að á
veitingahúsinu skal vera starfandi
einstaklingur með fullnægjandi
þekkingu í framreiðslu.
Einu veitingar sem Vídeómark-
aðurinn bauð hins vegar uppá,
þegar blaðamenn DV fóru á stað-
inn, voru pylsur og er því aug-
ljóst að ekki eru í boði fjölbreyttar
veitingar á staðnum, þó að vissu-
lega hafi verið fjölbreytt úrval af
sósum í boði til þess að setja á
pylsurnar.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti
vínveitingaleyfin til söluturnanna
Vínveitingaleyfin eru háð sam-
þykki slökkviliðsins, Vinnueftirlits
ríkisins, lögreglunnar, bygginga-
fulltrúa, heilbrigðiseftirlits og loks
bæjarráðs Kópavogs. Í þessu tilviki
ákvað bæjarráð Kópavogs að sam-
þykkja umsókn þessara söluturna
um að fá að breytast í vínveitinga-
staði. Í samtali við DV sagðist Ár-
mann Kr. Ólafsson ekki kannast
við þessar umsóknir. „Bæjarráð
sér um þetta. Ég greiði ekki at-
kvæði um þetta en ég sit fundina,
hafðu samband við formann bæj-
arráðs,“ sagði bæjarstjórinn þegar
blaðamaður DV truflaði hann í
miðri kosningabaráttu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir náðist ekki í Theodóru S. Þor-
steinsdóttur, formann bæjarráðs
við vinnslu fréttarinnar.
„Drekka hér eða taka með“
Líkt og í Smáranum á Dalvegi
gerðist starfsmaður Vídeómark-
aðarins sekur um að selja einstak-
lingum undir aldri áfengi. DV hef-
ur undir höndum upptökur þar
sem tvær stúlkur, 19 ára gamlar,
fara inn í Vídeómarkaðinn til að
kaupa áfengi eftir klukkan 22:00
og gengu þær út með það án þess
að starfsmaður hafi beðið um skil-
ríki og fengu þær áfengið afhent
í plastpoka til að taka með sér.
Myndböndin verða birt á vef DV á
allra næstu dögum.
Blaðamenn DV fóru einnig á
Vidóeómarkaðinn í vikunni og
keyptu sér bjór. Þrjár tegund-
ir voru í boði og eftir að hafa val-
ið tegund spurði afgreiðslumaður-
inn: „Drekka hér eða taka með?“.
Samkvæmt lögum er óheim-
ilt fyrir vínveitingaleyfishafa að
selja áfengi sem ekki er drukkið á
staðnum. Samkvæmt viðurlögum
laga um veitingastaði, gististaði og
skemmtanahald er heimiluð lok-
un á starfsstöð þar sem brotið átti
sér stað.
Áfengi og spilakassar
Það sem gerir Vídeómarkaðinn
frábrugðinn öðrum söluturnum,
fyrir utan að selja áfengi til að taka
með, er það mikla magn af spila-
kössum sem er á staðnum. Rúm-
lega 80 spilakassar eru á staðnum
eða um 9% af öllum spilakössum
á Íslandi. Það virðist vera ansi gott
að hafa spilakassa í söluturnin-
um, því fjárhættuspil skiluðu sölu-
turninum rúmlega 207 milljónum
í tekjur á árunum 2015 og 2016 í
formi umboðslauna frá Íslands-
spilum og Happdrætti Háskóla Ís-
lands.
Þegar blaðamenn DV skoðuðu
aðstæður á staðnum var nokkur
fjöldi á staðnum og voru allmargir
viðskiptavinir í spilakössunum og
að drekka áfengi á sama tíma.
Eigandi söluturnsins Smár-
ans í Kópavogi, Gunnar Schev-
ing Thorsteinsson, sagði í samtali
í DV að hann þyrfti að hafa vín-
veitingaleyfi til að hafa ákveðna
spilakassa hjá sér. DV hafði sam-
band við Bryndísi Hrafnkelsdóttur
forstjóra Happdrættis Háskóla Ís-
lands og vildi hún ekki kannast
við að það væri rétt. „Það eru aðr-
ir staðir með spilakassa frá okkur
sem hafa ekki vínveitingaleyfi svo
þetta er ekki krafa sem kemur frá
okkur.“ Söluturninn Smárinn er
einnig með vínveitingaleyfi í flokki
þrjú sem er ætlaður umfangsmikl-
um áfengisveitingastöðum, svo
sem þar sem leikin er hávær tón-
list, og stöðum sem kalla á meira
eftirlit og/eða löggæslu.
DV mun fjalla ítarlega um hinn
undarlega heim löglegra fjár-
hættuspila á Íslandi á næstu miss-
erum. n
„Það eru aðrir staðir
með spilakassa
frá okkur sem hafa ekki
vínveitingaleyfi svo þetta
er ekki krafa sem kemur
frá okkur.