Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 37
Viðhald og
framkvæmdir
25. maí 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Viðhald og framkvæmdir
Verksýn ehf. er tækniþjón-usta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á
mannvirkjum, innandyra sem utan.
Hjá fyrirtækinu starfa sérfræðingar
sem hafa yfirgripsmikla reynslu á
þessu sviði. Verksýn sinnir einnig
fjölbreyttum verkefnum sem snúa
að eftirliti og annarri ráðgjöf með
nýframkvæmdum. Um er að ræða
almenna framkvæmdaráðgjöf, álits-
gerðir, byggingastjórnun og hönnun
mannvirkja.
Frá stofnun fyrirtækisins árið 2006
hefur starfsmönnum fjölgað jafnt og
þétt og í dag eru tólf starfsmenn hjá
Verksýn.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru m.a.
einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir,
fasteignafélög og húsfélög. Mark-
mið Verksýnar er að mæta þörfum
viðskiptavina sinna á besta mögulega
hátt með nýtingu þeirrar þekkingar
og þess mannauðs sem fyrirtækið
býr yfir.
Hjá Verksýn starfa sérfræðingar
með áratuga reynslu af störfum við
mannvirkjagerð og viðhald og endur-
bætur mannvirkja.
Verksýn starfar eftir gæðakerfi
sem vottað er af Mannvirkjastofnun.
Viðhald og endurbætur á ytra
byrði Tækniskólans hafa staðið yfir
síðustu árin.
Endurbæturnar hafa verið unnar í
áföngum og meðal annars hefur þak-
ið verið endurnýjað í heild sinni.
Fagþekking
Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka
reynslu af ráðgjöf um viðhald fast-
eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu
á iðngreinum, sem er ein af helstu
undirstöðum vandaðrar og faglegrar
ráðgjafar.
Verksýn hefur á að skipa fjölda
byggingafræðinga og iðnmeistara.
Sérstök hæfni þeirra í greiningu
á byggingaskemmdum og þekk-
ing á byggingatækni tryggir gæði í
skipulagningu, útfærslu, rekstri og
viðhaldi fasteigna.
Ástandsskoðun Verksýnar
Ástandsskýrsla er það tæki sem
fasteignaeigendur og forsvarsmenn
húsfélaga hafa til að leggja mat á
viðhaldsþörf á hverjum tíma. Ástands-
skýrslan gefur glögga mynd af
viðhaldsþörf næstu árin og er áreið-
anlegur grundvöllur ákvarðanatöku.
Árleg viðhaldsþörf fasteigna
Út frá reynslutölum er áætlað að
1–2% af verðmæti fasteigna þurfi til
að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á
hverju ári. Með því að grípa tímanlega
inn í óhjákvæmilegt „hrörnunarferli“
er hægt að minnka framkvæmda-
kostnað verulega.
Útboð
Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda
þegar kemur að framkvæmdum.
Verksýn býður út tugi framkvæmda
á hverju ári. Með útboðsgögnum er
tryggt að verktakar bjóði í verkið á
sama grundvelli og eigendur eigi
auðvelt með að meta tilboðin.
Reyndur umsjónaraðili
Þegar ráðist er í viðhaldsfram-
kvæmdir er nauðsynlegt að hafa
reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila
með verkinu.
Sem eftirlitsaðili tryggir Verksýn að
verktaki sinni þeim skyldum sem á
hann eru lagðar samkvæmt ákvæð-
um útboðsgagna:
• Yfirferð teikninga, rýning og sam-
ræming.
• Farið er yfir að ábyrgir meistarar
séu skráðir á viðeigandi verkliði.
• Yfirferð trygginga verktaka.
• Gerð verksamninga.
• Yfirferð verksins með verktaka og
ábyrgum meisturum í byrjun þess.
• Yfirferð tæknilegra upplýsinga um
þau efni sem verktaki hyggst nota
við verkið.
• Yfirferð verkáætlunar verktaka,
samræming hennar og samþykkt.
• Yfirferð fyrirliggjandi verkþátta
með verktaka og úrlausn óvissu-
atriða.
• Eftirlit með að framgangur fram-
kvæmda sé samkvæmt áætlun.
• Yfirferð og samþykkt dagsskýrslna.
• Eftirlit með vinnubrögðum og um-
gengni á vinnustað allt að fimm sinn-
um í viku.
• Eftirlit með að verklýsingum og
útboðsgögnum sé fylgt.
• Stjórn reglulegra verkfunda með
verktaka og fulltrúa (fulltrúum) verk-
kaupa.
• Ritun fundargerða á verkfundum
og frágangur og fjölföldun þeirra
eftir fundi. Sent með tölvupósti ef
óskað er.
• Yfirferð reikninga frá verktaka
og samanburður við samþykktar
magntölur ásamt því að sannreyna
umfang.
• Umsjón með hlutaúttektum og
lokaúttekt. Ritun úttektaryfirlýs-
inga.
• Önnur dagleg umsýsla og umsjón
með framkvæmdum, sem fulltrúi
verkkaupa.
Kostnaður við umsjón og eftirlit
skilar sér til eigenda í hagkvæmni og
meiri gæðum framkvæmda.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.verksyn.is
Verksýn ehf.
Síðumúla 1, 108 Reykjavík
517-6300 – verksyn@verksyn.is
Viðhald og endurbætur
í öruggum höndum
VERkSýn EhF: