Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 10
KYNNING
SORPA hefur nú rekið nytja-markað fyrir notaðan húsbúnað og smávöru í rúmlega tuttugu
ár. Markaðurinn, sem gengur undir
nafninu Góði hirðirinn, hefur lengi
átt vinsældum að fagna og hefur
stækkað jafnt og þétt í gegnum árin.
Hundruð tonna af notuðum hlutum fá
þar nýja eigendur á hverju ári og allur
ágóði af sölu þeirra rennur til góð-
gerðarmála. Markmiðið með nytja-
markaði SORPU er fyrst og fremst
að stuðla að endurnotkun, sem er
besta form endurnýtingar og sú leið í
úrgangsmeðhöndlun sem hefur hvað
minnst umhverfisáhrif.
Það hefur lengi verið draumur
að finna endurnotkunarmöguleika
fyrir fleiri efnisflokka sem berast á
endurvinnslustöðvar SORPU, s.s.
byggingarvörur. Sá draumur varð
loks að veruleika þann 11. maí síðast-
liðinn þegar Efnismiðlun Góða hirðis-
ins opnaði á endurvinnslustöðinni á
Sævarhöfða og viðskiptavinir SORPU
fengu loks tækifæri til að versla notuð
byggingarefni og ýmsar aðrar fram-
kvæmdavörur á góðu verði.
Markmiðið er að markaðurinn
bjóði upp á valkosti fyrir breiðan
hóp viðskiptavina og er stefnt að
því að safna og bjóða efni eins og
timbur, timburhluti, hurðar, glugga,
innréttingar, hellur, flísar, trjá-
boli, vaska, parket, dekk, reiðhjól,
vörubretti og brúsa svo fátt eitt sé
nefnt. Á markaðnum verður einnig
framboð af efni og vöru, sem
jafnvel er ekki í boði annars staðar,
svo sem gamlar hurðir og veðrað
timbur.
Notuð byggingarefni geta
nýst einstaklingum sem eru í
húsnæðisbreytingum, sumarbú-
staðabyggingu, garðvinnu eða
listsköpun. Leikskólar, grunnskól-
ar, lista- og verkmenntaskólar
hafa í gegnum tíðina óskað eftir
aðgangi að ódýrara efni, sem nú
verður auðveldara að koma til
móts við. Vöruúrval mun þróast
eftir framboði og eftirspurn en
viðskiptavinir endurvinnslustöðva
þurfa að gefa leyfi fyrir að efni-
viður fari á markaðinn. Ef hagn-
aður verður af sölu bygging-
arefna og annars varnings á
markaðnum mun hann renna
óskertur til góðgerðarmála.
Efnismiðlun Góða hirðisins á
endurvinnslustöðinni á Sævarhöfða
verður opin alla daga nema sunnu-
daga frá 12.00-17.30. Verið hjart-
anlega velkomin, hvort sem er með
nothæft efni eða til að skoða vöruúr-
valið á markaðnum.
Ósjálfbær neyslumenning
Íbúar jarðar og sérstaklega vestræn-
ar þjóðir nota meira af auðlindum
en hnötturinn getur staðið undir á
sjálfbæran hátt. Athafnir manns-
ins hafa þannig haft áhrif á gæði
og magn þeirra náttúrulegu
auðlinda sem eru nauðsyn-
legar til framleiðslu á flestum
okkar neysluvörum og jafn-
vel lífi á jörðu. Má sem dæmi
nefna vatn, jarðefnaeldsneyti,
jarðveg, steinefni og málma.
Ástæðan er fyrst og fremst
aukinn fólksfjöldi samhliða
sífellt aukinni neyslu á hvern
einstakling. Ef ekkert er að
gert leiðir það til hnignunar og
jafnvel þurrðar á mikilvægum
auðlindum með ófyrirséðum
afleiðingum. Önnur birtingar-
mynd er plastið í umhverfinu
sem brotnar seint og illa niður
og veldur lífríkinu skaða. Það er
tímabært að endurmeta hvern-
ig við umgöngumst auðlindir
jarðar og að hver og einn taki
meiri ábyrgð á eigin neyslu. Það
getum við t.d. gert með því að
nýta hluti áfram eftir fremsta
megni eða sjá til þess að þeir
komist í notkun hjá öðrum, sé
það mögulegt. Flokkum þann úr-
gang sem frá okkur fer til endur-
vinnslu þannig að hráefni tapist ekki
heldur séu nýtanleg sem efniviður í
nýjar vörur. En fyrst og fremst búum
til minna rusl því þannig komum við
best í veg fyrir sóun!
Notað byggingarefni fær nýtt hlut-
verk í Efnismiðlun Góða hirðisins