Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 31
25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Veitingastaðir
Nü AsiAN fusioN:
Ferskur og hollur matur
undir asískum áhrifum
Þann 13. febrúar síðastliðinn opnaði Nü Asian fusion á Garðatorgi og þar er boðið upp
á ljúffenga og holla rétti matreidda
undir japönskum og asískum áhrifum.
„Það var stefán Magnússon
veitingamaður sem kom með þá
hugmynd að opna þennan stað og
mér leist vel á þetta frá byrjun. Hann
hefur mikla reynslu, sem er mikil-
vægt,“ segir Hlynur Bæringsson, einn
eigenda staðarins. Þegar staðsetning
var valin varð Garðatorgið ofan á,
„enda er það að lifna við, hér er góð
stemning og fullt af flottum fyrirtækj-
um hér í kring“.
Viðskiptavinir geta valið um að
borða á staðnum eða taka matinn
með heim, en staðsetning staðarins
í alfaraleið gerir það að verkum að
„take away“ er mjög vinsælt.
Á matseðlinum eru salöt, súpur,
kjúklingaréttir, þorskur, hnetusteik, lax
og avocado ostakaka svo fátt eitt sé
nefnt.
„Við bjóðum einnig upp á fyrir-
tækjaþjónustu sem er mjög vinsæl,“
segir Hlynur. Hún er í boði bæði í
hádeginu og á kvöldin, hvort sem er í
áskrift eða í einstaka skipti og er keyrt
frítt til fyrirtækja.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað
á Garðatorgi og er torgið nú orðið
að hjarta Garðabæjar. „Verið er að
leggja lokahönd á útisvæði sem mun
tilheyra Nü og þegar það verður
tilbúið verður einnig hægt að sitja úti í
mat og drykk og njóta sumarsins, sem
mun koma þrátt fyrir spár um annað,“
segir Hlynur.
Nü Asian fusion er á Garðatorgi
6, Garðabæ. síminn er 561-8085,
netfangið pantanir@asianfusion.is og
heimasíðan nu210.is
Nü Asian fusion er á facebook og
instagram.
T-Bone steikhús er metnað-arfullur veitingastaður við Ráðhústorgið í hjarta Akureyr-
ar. Þar eru allar steikur grillaðar á
kolagrilli sem gefur einstakt bragð.
Á matseðlinum eru margar tegundir
af steikum í boði; mismunandi vöðv-
ar og þyngd. Reynt er að hafa eitt-
hvað fyrir alla – þótt steikurnar séu í
aðalhlutverki. sem dæmi um steikur
má nefna nautalundir, bæði 200
gramma og 300 gramma, rib-eye
350 gramma, lambalundir og BBQ
grísarif, að ógleymdri 800 gramma
Porterhouse-steikinni sem er frábær!
Vinsælasta steikin er klárlega
t-bone steikin (400 g) en það er
lund og fillet á beini. Þetta er flott og
bragðmikil steik sem best er að steikja
medium rare. Meðlætið er hefð-
bundið, til dæmis bökuð kartafla með
kryddsmjöri, grillaður maísstöngull,
hvítlauksristaðir sveppir og fleira
góðgæti.
Mælum með ,,Uppáhaldi grillarans”
T-Bone steikhús býður upp á hádeg-
is- og kvöldmatseðil. Hádegisseðillinn
er aðeins léttari og á kvöldin er seð-
illinn fjölbreyttari og þá er hægt að
velja svokallað „uppáhald grillarans“
sem matreiðslumenn staðarins hafa
sett saman. Einnig geta viðskipta-
vinirnir valið steik, meðlæti og sósu að
eigin ósk.
T-Bone steikhús leggur áherslu á
að veita persónulega þjónustu, vera
með gott verð og besta mögulega
hráefni í þægilegu og flottu umhverfi.
Verið velkomin á T-Bone steikhús,
hlökkum til að sjá ykkur!
T-Bone steikhús
Brekkugötu 3, 600 Akureyri
sími 469-4020
Heimasíða: tbone.is
facebook: tbonesteikhus.
Kolagrillaðar
steikur í aðalhlutverki
T - BoNE: