Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 54
54 fólk 25. maí 2018
Þ
að er á vordegi sem við
ljósmyndari rennum í
hlað hjá Guðnýju Maríu.
Hún býr í fallegu stein-
húsi í Nökkvavogi og stendur
í tröppunum fyrir utan í glæsi-
legum og glitrandi hvítum kjól,
skælbrosandi. „Velkomnar! Kom-
ið endilega inn,“ segir hún glað-
lega. Okkur Hönnu ljósmyndara
fannst það skemmtileg tilviljun
að sólageislarnir létu einmitt sjá
sig um leið og við stigum út úr
bílnum, en þeir hafa verið sjald-
séð sjón undanfarið.
„Mikið er þetta fallegur kjóll
sem þú ert í,“ segi ég um leið og ég
stíg inn á snoturt heimili Guðnýjar.
„Já maður verður að klæða sig
upp. Það er svo gaman að vera fínn,
það er skemmtilegra,“ svarar hún
glaðlega.
Guðný María hefur undanfarið
slegið í gegn með skemmtilegum
lögum og myndböndum á Youtu-
be. Vinsælasta lagið til þessar er
lagið „Okkar okkar páska“ en um 60
þúsund manns hafa horft á mynd-
band lagsins á efnisveitunni. Vel-
gengni lagsins virðist staðfesta þá
upphaflegu hugmynd Guðnýjar að
páskarnir hafi orðið útundan þegar
kemur að íslenskum laga- og texta-
smíðum.
„Mér finnst svo mikilvægt að
hafa lögin mín glaðleg. Margir
hugsa að tónlist geti ekki verið list
nema henni fylgi einhver sorg. Því
er ég ósammála, ég vil koma fólki í
gott skap. Ég er búin að gefa út al-
veg níu lög síðan í desember og það
eru að koma tvö lög í viðbót. Það
var að koma út lagið „Nei, það var
ekki ég“. Það er voða fínt svona fyrir
kosningarnar. Ég skil ekki af hverju
ég fór ekki í pólitík. Í kvöld er ég
einmitt að fara að taka upp mynd-
band við lagið „Ég vinn og vinn og
borga skattinn minn,“ segir Guðný
kát.
Komu vinsældirnar Guðnýju
Maríu á óvart?
„Mér finnst það allavega alveg
dásamlegt. En ég er með þetta í
genunum eins og þessir snillingar
úr Þingeyjarsveitinni, Hörður Ás-
kelsson, Jón Stefánsson og Jón
Hlöðver. Við erum mörg úr Þing-
eyjarsveitinni sem erum með þessi
gen og þessa tónlistarhæfileika.“
Fékkst þú tónlistarlegt uppeldi?
„Ég er mest í tónlistinni, fyr-
ir utan ömmu mína. Hún var bara
eins og Bylgjan, syngjandi allan
daginn. Ég byrjaði líka snemma og
var byrjuð að lesa nótur áður en ég
byrjaði að lesa bókstafi.“
Hvenær byrjaðir þú að gera
þetta svona af alvöru, taka upp lög-
in þín og gefa út?
„Það byrjaði síðasta sumar. Fyrst
var ég svo feimin, ætli það sé ekki út
af því að ég er úr sveit. Ég sagði eng-
um að ég syngi og væri að semja.
En svo var ég gestanemandi i MIT
í lagasmíðum. Þar lærði ég margt
áhugavert. Til dæmis varðandi
lengd á lögum. „Okkar okkar páska”
er minna en ein mínúta en „Nú fer
ég í helgarfrí“ er alveg fjórar mín-
útur. Ég vissi ekki hver reglan væri
þar sem ég umgengst ekki mikið af
tónlistarfólki. En það gaf mér ör-
yggi að fara í MIT og læra betur um
þetta. Í kjölfarið fékk ég mér hljóð-
kort og byrjaði að taka upp. Ég tek
allt upp sjálf,“ segir Guðný.
Verður þú vör við að þú sért
orðin fræg kjölfar vinsælda
mynbandanna? Er fólk jafnvel byrj-
að að þekkja þig út á götu?
„Já ég lendi oft í því að vera
stoppuð úti á götu. Spila mörg gigg
líka og fólk má endilega hafa sam-
band við mig ef það vantar eina
hressa í veisluna. Ég samdi um
daginn mitt eigið afmælislag og því
hef ég verið mikið ráðin í afmæli.
Fólk vill að ég syngi það í veislunni.“
Ertu að spila einhvers staðar um
Verslunarmannahelgina?
„Nei það er ekki búið að bóka
mig enn þannig að við auglýsum
hér með að ég er enn laus og alveg
til í að spila.“
Með hvaða íslenska tónlistar-
manni myndir þú helst vilja starfa?
„Stebba Hilmars, ég væri alveg
til í að syngja með honum. Líka
Eyþóri, mér finnst hann mjög góð-
ur. Veistu, ég hef meira að segja
borið þetta undir hann Stebba,
sendi honum líka nokkur lög.
Hann sagði að hann þyrfti aðeins
að hugsa sig um en við vonum það
besta,“ svarar hún og hlær.
Starfar þú við eitthvað með-
fram tónlistinni?
„Ég var að vinna í íþróttahús-
inu í Garðabæ, Ásgarði. En núna
er ég mest að vinna sem aukaleik-
ari. Það hjálpaði mér mikið við að
losna við feiminina að byrja að
leika.“
En hver eru næstu skref hjá
Guðnýju?
„Það eru að koma tvö lög inn á
Spotify á morgun og svo erum við
að fara að taka upp lag í kvöld við
lagið „Ég vinn og vinn og borga
skattinn minn“. Svo mæli ég með
að fólki skelli „Nei það var ekki ég“
á fóninn í kosningapartýjunum.
Það passar mjög vel við.“
Er eitthvað á dagskránni að
gefa út plötu eða er framtíðin bara
á netinu?
„Það er góð spurning. Það eru
eiginlega allir hættir að gefa út
plötur. Svo ég held bara áfram
að gefa út á netinu á meðan það
virkar.“
Hvaða ráð hefurðu fyrir þá sem
langar að fara út í tónlistina en eru
of feimnir?
„Það er bara að byrja. Ég eyddi
allt of löngum tíma í að þora ekki.
Maður verður bara að slá til. En
það bara gleður mig svo að gleðja
aðra. Það er svo skemmtilegt að
hafa gaman,“ segir hún brosandi.
Að lokum stillir Guðný sér upp
fyrir ljósmyndara og segir glettin:
„Það er betra að taka myndir af
mér aðeins lengra frá. Ég er svo-
lítið eins og Húsavík, betri úr fjar-
lægð,“ segir hún og skellihlær. n
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
Páskastjarnan og tónlistar-
konan Guðný María elskar
að hafa gaman
„Ég er
með
þetta í
genunum“
Steingerður Sonja Þórisdóttir
ritstjorn@dv.is
M
y
n
d
h
a
n
n
a