Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 46
 25. maí 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir Fyrirtak málningarþjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækjum, stofn-unum, húsfélögum og heimilum til margra ára. Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem snerta viðhald og breytingar á fasteignum, jafnt að innan sem utan. Ámundi S. Tómasson er fram- kvæmda- og verkefnastjóri Fyrirtaks en hann hefur rekið fyrirtækið með góðum árangri í mörg ár. Málning á bæði að verja og fegra Reglulegt viðhald á fasteignum borgar sig. Málning er oftar en ekki eina vörnin fyrir veðri og vindum. Málning á bæði að verja og fegra. Utanhúss veðrast fletir hratt fyr- ir áhrif sólar, veðurs og vinds. Með reglulegu viðhaldi er hægt að verja fasteignina og koma í veg fyrir dýrar framkvæmdir eins og t.d. glugga- viðgerðir, viðgerð á steini og þaki. Fyrirtak vinnur eingöngu upp úr góð- um málningarkerfum og farið er eftir þeim kerfum sem reynst hafa best í íslenskri veðráttu. Fagmenn í öllum verkhlutum „Hjá fyrirtækinu starfa reyndir iðnaðarmenn sem leggja metnað sinn í fagmennsku, snyrtimennsku og áreiðanleika. Einnig starfa þar múrar- ar og smiðir og saman geta þeir leyst öll helstu verkefni sem varða viðhald húsa,“ segir Ámundi. „Við hjá Fyrirtaki tökum að okkur allt almennt viðhald á fasteignum eins og t.d. gluggavið- gerðir og glerísetningu. Ef glugginn er farinn að fúna er nauðsynlegt að laga fúann áður en málað er. Við gerum við glugga með því að saga fúa í burt og setja nýtt fúavarið timbur í staðinn (sponsa glugga). Gluggaviðgerðir og glerísetning krefst mikillar nákvæmni og rétts handbragðs. Við bjóðum upp á þessa þjónustu og getum líka leið- beint og aðstoðað.“ Þjónum fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum Fyrirtak málningarþjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og heimilum til margra ára. Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fasteignum, jafnt að innan sem utan,“ segir Ámundi. Fyrirtak málningarþjónusta ehf. Sími: 770-7997. fyrirtak@fyrirtak.is www.fyrirtak.is Fyrirtak þjónar fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum Hlý gólf til frambúðar Gólfkuldi er hvimleiður og það er notalegt að ganga á hlýjum gólfum í híbýlum sínum, ekki síst þegar kalt er í veðri úti. Sífellt fleiri fá sér gólfhitakerfi en fyrir utan þægindin þá eykur slík aðgerð verðmæti fasteigna og gerir þær eftirsóttari. Það er almennt álitið meðal fasteignasala að íbúðir með gólfhita veki meiri hrifningu meðal væntanlegra húsnæðiskaupenda en íbúðir með ofnakerfi. Svona færðu gólfhita í eldra húsnæði Í langflestum nýbyggingum í dag er gert ráð fyrir gólfhita en við byggingu flestra eldri húsa hefur eingöngu verið gert ráð fyrir gamaldags ofnakerfi. En fyrirtækið Gólfhitalausnir er komið með í notkun vél sem fræsir fyrir hitalögnum með áhrifaríkum hætti og nánast allt ryk fer beint í kröftuga iðnaðarryksugu sem tengd er við fræsivélina. Áður fyrr þurfti að brjóta upp gólf með múrbrjót til að koma að gólfhitalögn- um og gat það verk tekið marga daga, sem hafði í för með sér mikið rask. Kúnnahópurinn á þeim tíma var eingöngu efna- meira fólk en með þessari nýju aðferð hafa miklu fleiri ráð á að koma sér upp gólfhita. Gólfhiti þýðir aukin lífsgæði á heimilinu Þegar hiti hefur verið lagður í gólf er tryggt að íbúar verða aldrei aftur varir við gólfkulda. Þetta er notaleg kynding sem heldur iljunum hlýjum. Það er miklu notalegra að ganga á hlýju gólfi en köldu, það eykur ánægju og lífsgæði á heimilinu. Ofnar eru ljótir og taka pláss Ofnar eru lítið augnayndi og taka sitt pláss. Margir viðskipta- vinir finna mikinn mun á plássi og nýtískulegheitum við að losna við ofnana. Ofnar dreifa hitanum ekki nærri því eins vel og gólfhitinn og finnst sá munur einna mest þegar mikið frost er úti. Lægri kyndingarkostnaður Það að kynda með gólfhita er einnig ódýrara en að hita með ofnum. Einn helsti ókostur ofna er að þegar gluggar eru opn- aðir þá sleppur hitinn beint út fyrir ofan þá og þeir fara á fullt við að dæla heitu vatni í gegnum sig. Sjá nánar á vefsíðunni http://www.golfhitalausnir.is/ og Facebook-síðunni https://www.facebook.com/golfhitalausnir/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.