Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 78
78 fólk 25. maí 2018 Þ að er fátt skemmtilegra en að horfa á góða bíómynd eða góða sjónvarpsseríu, sérstaklega fyrir mig eftir að hafa verið 19 farsæl ár í brans- anum. En „gott“ efni er oft vand- fundið þrátt fyrir að framboð hafi aldrei verið meira. Það má eig- inlega segja að ég sé mikill sci-fi aðdáandi enda 10 ára gutti þegar Star Wars var frumsýnd í Nýja Bíói árið 1978 og eftir það varð ekki aftur snúið. Einnig er ég spenntur fyrir myndum og þáttum um yfir- náttúruleg efni (supernatural) og oft tengjast þessar greinar. Of langt mál yrði að telja upp uppáhaldsþættina svo ég ætla frekar að einblína á það sem ég er að horfa á þessa stundina þó að ég bíði spenntur eftir lokaþætti Game of Thrones sem eru í miklu uppáhaldi. Sá þáttur sem ég hlakka mest til núna er nýr þáttur í hverri viku af Westworld og ég tók mig til og horfði á alla fyrstu seríuna áður en sería 2 byrjaði, svona til að rifja upp það helsta og skilja betur djúpar pælingar þáttanna. Athyglisverðir þætti á borð við Grimm, Gotham, S.H.I.E.L.D. og Taboo vekja alltaf áhuga en ég hef minna gaman af gamanþáttum þó ég skemmti mér yfirleitt vel yfir The Big Bang Theory, kannski út af því að þeir hafa nóg af sci-fi til- vitnunum. Eins hef ég litla þolinmæði fyr- ir „raunveruleikaþáttum“ en verð þó að viðurkenna að sviksemi í þágu græðgi í Survivor og fárán- leikinn í The Bachelor er alltaf gott sjónvarp. Ég hef gaman af njósna-og spennuþáttum eins og Black- list og Homeland. True Detect- ive fannst mér geggjaðir þættir enda frábærlega skrifaðir. Njósn- ir í Berlín (Berlin Station) sem var að byrja lofar góðu. Nokkrar seríur á Netflix finnst mér mjög góðar eins og Mind- hunters, The Stranger Things og Designated Survivor. National Geographic býður upp á tvær ser- íur sem ég hef gaman af: Air Crash Investigation og leikna heimildar- myndaröð um Picasso. Aðvitað gleymir maður hell- ing en að lokum, þar sem kosn- ingar eru á morgun, og við erum öll rammpólitísk þá hef ég rosa- lega gaman af Real Time with Bill Maher og Last Week Tonight with John Oliver.“ Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði? „Fukk…“ Hvert er versta hrós sem þú hefur fengið? „Þú ert hvítasti maður sem ég hef kynnst.“ Borðarðu mat sem er kominn fram yfir síðasta söludag? „Ég hef hellt mjólk korter yfir miðnætti.“ Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? „Það eru kannski þrjár sem koma til greina; Home Alone, There Will be Blood eða Step Brothers.“ Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en er það ekki lengur? „Smekkbuxur og Stussi peysur.“ Hvað er löglegt í dag en verður það líklega ekki eftir 25 ár? „Nautaat á Spáni.“ Um hvað varstu alveg viss þangað til þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir þér? „Sælgætið djúpur eru fallbeygt eins og kúlur, ein djúpa… margar djúpur.“ Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5 ár? „Veip.“ Ef þú yrðir handtekinn án skýringa, hvað myndu vinir þínir og fjölskylda halda að þú hafir gert af þér? „Listrænan gjörning.“ Hvað er það furðulegasta sem þú hefur keypt? „Gerfi skjaldbökukjöt í dós, búið til úr lambakjöti.“ Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu vilja eiga sem vin? „Ríkharð úr Ríkharður og Marteinn (Rick and Morty)!“ Hvað ættu allir að prófa að minnsta kosti einu sinni í lífinu? „Setja takmarkið hátt og ekki hætta fyrr en maður kemst þangað.“ Állistamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, eða Odee, hefur jafnan í nógu að snúast. Auk állistaverkanna, hannaði hann nýlega um- búðir utan um bjór WOW air og fleiri verkefni eru í vinnslu sem líta munu dagsins ljós fyrr en varir. Odee sýnir lesendum DV á sér hina hliðina. „Þú ert hvítasti maður sem ég hef kynnst“ hin hliðin Hvað segir eiginkonan? Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Eyfi er sannur vinur og besti vinur minn S öngvarinn og lagahöfund- urinn Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi eins og við þekkjum hans best, er einn af okk- ar fremstu tónlistarmönnum og kemur reglulega fram ýmist með öðrum eða einn með kassagítar- inn, síðast fyrir viku síðan þegar hann var leyniatriði á undan hljómsveitinni Foreigner á stór- tónleikum þeirra í Laugardalshöll. DV heyrði í eiginkonu Eyfa, Söndru Lárusdóttur eiganda snyrtistofunnar Heilsa og útlit, og spurði: Hvað segir eiginkonan um mann sinn? „Eyfi er sennilega sá allra fyndn- asti sem ég veit um, hann nær að láta alla missa það og grenja úr sér augun, og mjög minnugur, það er hægt að spyrja hann að öllu og hann veit svarið. Hann er sann- ur vinur vina sinna og besti vinur minn. Við eigum 20 ára sambands- afmæli og 17 ára brúðkaupsafmæli á þessu ári og hann segir alla daga við mig hvað hann elskar mig, það er örugglega það sætasta sem ég veit um. Hann er yngstur af sex systkinum og hann elskar að bjóða þeim í mat á afmælisdeginum sín- um sem lýsir því best hvað hann er góður drengur sem elskar sitt fólk. Ljúfur drengur, mjög vel gefinn, örlátur, algjörlega fróður um allt, ekki bara músik og kvikmyndir. Fær alla til að missa sig úr hlátri.“ Ragnar Jónasson: Bækurnar mínar R ithöfundurinn Ragnar Jón- asson hefur getið sér gott orð bæði hér heima og er- lendis fyrir spennusög- ur sínar, en alls hefur hann gef- ið út níu bækur og er að skrifa þá tíundu sem mun koma út fyr- ir næstu jól. Bækur hans hafa komið út og/eða eru væntan- legar í alls 20 löndum. Hann hefur einnig þýtt fjölda bóka eftir bresku spennu sögudrottninguna Agöthu Christie. En hvaða bækur ætli séu í upp- áhaldi hjá Ragnari? Hver er eftirlætis barnabókin? „Ég las mikið eftir Enid Blyton á sínum tíma og hafði mjög gaman af, til dæmis Fimm bækurnar og Ævintýrabækurnar. Þá las ég líka mikið eftir Ármann Kr. Einars- son.“ Hvaða bók er uppáhalds? „Af- leggjarinn eftir Auði Övu Ólafs- dóttur. Ótrúlega heillandi saga. Þá er ljóðabókin Skessukatlar eftir Þorstein frá Hamri líka í miklu uppáhaldi hjá mér, og Síð- asta setning Fermats eftir Simon Singh, sem er frábær blanda af leynilögreglusögu og stærðfræði- bók. Af glæpasögum er það bók Agöthu Christie, The Murder of Roger Ackroyd.“ Hvaða bók myndirðu mæla með fyrir aðra? „Ég mæli oftast með höfundum frekar en bókum, til dæmis Auði Övu og Þorsteini frá Hamri, en líka glæpasagnahöf- undum á borð við P.D. James, Pet- er Temple, Ellery Queen og Peter May.“ Hvaða bók hefurðu lesið oft- ast? „Sennilega einhverjar af bók- um Agöthu Christie, það er alltaf gaman að lesa þær aftur.“ Hvaða bók breytti lífi þínu og hvernig? „Ætli það sé ekki fyrsta bókin sem ég las eftir Agöthu Christie, Sólin var vitni (Evil Und- er the Sun), sem frændi minn lán- aði mér. Sú bók leiddi til þess að ég las allar bækur eftir hana sem ég náði í og fór síðan að þýða bækur eftir hana, og loks að skrifa sakamálasögur.“ Hvaða bók bíður þín næst til lestrar? „Um helgina ætla ég að lesa nýju bókina eftir Shari Lapena, An Unwanted Guest, en Shari verður heiðursgestur á glæpasagnahátíðinni Iceland Noir, sem haldin verður í Reykja- vík í nóvember og ég er að taka þátt í að skipuleggja með rithöf- undafélögum mínum.“ Bókin á náttborði Jörundar Jör- undur Ragnarsson er með Útlagann eftir Jón Gnarr, fyrrverandi meðleikara sinn úr Vaktaseríunum, á nátt- borðinu. „Ég er ekki búinn með hana en hún er frábær, búin að hreyfa við mér margoft og tækla eiginlega allan tilfinn- ingaskalann. Ótrúlega einlæg og full af sársauka og sorg en samt svo fyndin og falleg. Það er sagt um marga að þeir séu snillingar en það á við um fáa. Það á samt við um Jón.“ Guðmundur Breiðfjörð lifði og hrærðist í bíó- bransanum í 19 ár og er meðal fróðustu manna um kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Hann er mikill sci-fi aðdáandi, en hefur litla þolinmæði fyrir raun- veruleikaþáttum. „Ég er mikill sci-fi aðdáandi enda 10 ára gutti þegar Star Wars var frumsýnd“ Skjárýnirinn:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.