Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 38
 25. maí 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir Fyrirtækið PGV Framtíðarform ehf. framleiðir einangrandi, viðhaldslitla og orkusparandi glugga og hurðir úr mjög vönduðu efni. Fjárfesting í góðum gluggum og hurð- um margborgar sig til lengri tíma litið. Fyrirtækið var stofnað árið 2010 en að baki þess standa fagmenn með áralanga reynslu. „Við fram- leiðum PCV-u glugga og hurðir úr smíðaefni frá belgíska framleiðand- anum Deceuninck. Um er að ræða 70 mm uPVC marghólfa prófíl með galvanseruðum stálkjarna en allir eru þeir glerjaðir að innan með 28 millimetra háeinangrandi gleri frá Íspan í Kópavogi,“ segir Gísli Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóri og húsasmíðameistari. Gísli segir ekkert gluggaefni jafn- ast á við uPVC hvað varðar endingu. „Það er auk þess gífurlega einangr- andi og leiðir ekki kulda. Um leið er það orkusparandi og er hægt að lækka orkukostnaðinn umtalsvert með því að velja glugga frá okkur. Til dæmis velja yfir 80 prósent Þjóðverja og Englendinga PVC glugga og er vakningin hafin hér á landi enda er þetta frábært gluggaefni fyrir ís- lenskar aðstæður þar sem allra veðra er von.“ Að sögn Gísla hefur prófíllinn verið í þróun og framleiðslu hjá Deceuninck frá árinu 1960 og því fyllilega sannað gildi sitt. „Það er hundrað prósent endurvinnanlegt. Það þarf ekki að fella eitt einasta tré til að framleiða PVC-u og engin þörf er á eiturefnum, lakki eða málningu til að viðhalda PVC-gluggum áratugum saman.“ Íslensk framleiðsla Framleiðslan fer fram í verksmiðju fyrirtækisins að Seljabót 7 í Grinda- vík auk þess sem söluskrifstofan er staðsett í Skipholti 35 í Reykjavík. „Við sérsmíðum alla glugga og hurðir eftir óskum viðskiptavina og þar sem framleiðslan fer fram á Íslandi er af- hendingartíminn skemmri en almennt þekkist. Við leggjum mikið upp úr gæðunum og viljum vera vissir um að fólk þurfi ekki að standa í kostnaðar- sömu viðhaldi eins og gerist stundum þegar óvandaðar og ódýrar eftirlík- ingar verða fyrir valinu,“ segir Gísli. Gluggarnir frá PGV Framtíðarformi stóðust slagveðurspróf Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands án athugasemda að sögn Gísla. „Við erum stoltir af árangrinum enda með hæstu einkunn. Það er mikil fjárfesting í gluggum og mikilvægt að vita hvað maður er með í höndunum. Við bendum fólki á að það er ekki alltaf fullnægjandi trygging á gæðum þó gluggar hafi staðist próf erlendis þar sem veður- skilyrði eru allt önnur hér heima. Það er okkur mikil ánægja að geta boðið upp á glugga og hurðir sem standast erfið veðurskilyrði okkar.“ Öryggið í fyrirrúmi Allir glerlistar frá PGV Framtíðarformi eru að innanverðu sem er mikið ör- yggisatriði segir Gísli. „Þá er ekki hægt að fjarlæga gler úr glugga utan frá til að brjótast inn en nefna má að t.d. í Bretlandi, Þýskalandi og Belgíu er ekki hægt að fá innbrotstryggingu ef gler- listar eru á utanverðu. Tel ég að það sé einungis tímaspursmál hvenær tryggingafélög hér á landi taki það einnig upp. Hurðirnar okkar eru í svipuðum gæðaflokki þegar kemur að öryggi en þær koma með 5-7 punkta læsingu frá Yale og gluggar eru með 4-8 punkta læsingu.“ Litaúrval PGV Framtíðarform býður upp á við- arútlit í sjö litum og fimm tvílitum en þá er hægt að hafa lit að utanverðu og hvítt að innan. Svalalokanir og sólstofur PGV Framtíðarform sérsmíðar einnig svalalokanir og sólstofur og eru út- litsmöguleikar óteljandi að sögn Gísla. „Þetta eru lokanir sem eru 100% vind- og vatnsþéttar. Vinsælasta þakefnið er polycarbonite sem er 35mm marghólfa plastefni en einnig er hægt að fá öryggisgler.“ Byggingarefni Að auki býður PGV Framtíðarform uppá PVC þakrennur og niðurföll, sólpallaefni sem aldrei þarf að bera á, þakkantsefni í mörgum stærðum og gerðum ásamt miklu úrvali lita. Samskeyti brædd saman Það sem aðgreinir framleiðslu PGV Framtíðarforms sérstaklega frá öðrum er að öll samskeyti eru brædd saman, líka millipóstar að sögn Gísla. „Með þessu móti er engin hætta á leka eða taumum milli samskeyta. Slagveðursprófið sýnir ótvírætt kosti bræddra samskeyta en algengt er að millipóstar PVC glugga séu skrúfaðir í. Þegar húsið er komið með glugga sem krefjast minna viðhalds eykst frí- tíminn sem hægt væri að nota í eitt- hvert áhugamálið eins og til dæmis golf. Og með meiri tími fyrir golfið verður þú betri í golfinu og þú getur þakka það skynsamlegri ákvörðun þinni í gluggakaupum.“ Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.pgv.is eða með því að kíkja í kaffi í Skipholti 35 og fá kynningu. Minna viðhald, meiri frítími
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.