Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 38
25. maí 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir
Fyrirtækið PGV Framtíðarform ehf. framleiðir einangrandi, viðhaldslitla og orkusparandi
glugga og hurðir úr mjög vönduðu efni.
Fjárfesting í góðum gluggum og hurð-
um margborgar sig til lengri tíma litið.
Fyrirtækið var stofnað árið 2010
en að baki þess standa fagmenn
með áralanga reynslu. „Við fram-
leiðum PCV-u glugga og hurðir úr
smíðaefni frá belgíska framleiðand-
anum Deceuninck. Um er að ræða
70 mm uPVC marghólfa prófíl með
galvanseruðum stálkjarna en allir
eru þeir glerjaðir að innan með 28
millimetra háeinangrandi gleri frá
Íspan í Kópavogi,“ segir Gísli Jóhann
Sigurðsson, framkvæmdastjóri og
húsasmíðameistari.
Gísli segir ekkert gluggaefni jafn-
ast á við uPVC hvað varðar endingu.
„Það er auk þess gífurlega einangr-
andi og leiðir ekki kulda. Um leið er
það orkusparandi og er hægt að
lækka orkukostnaðinn umtalsvert
með því að velja glugga frá okkur. Til
dæmis velja yfir 80 prósent Þjóðverja
og Englendinga PVC glugga og er
vakningin hafin hér á landi enda er
þetta frábært gluggaefni fyrir ís-
lenskar aðstæður þar sem allra veðra
er von.“
Að sögn Gísla hefur prófíllinn verið
í þróun og framleiðslu hjá Deceuninck
frá árinu 1960 og því fyllilega sannað
gildi sitt. „Það er hundrað prósent
endurvinnanlegt. Það þarf ekki að
fella eitt einasta tré til að framleiða
PVC-u og engin þörf er á eiturefnum,
lakki eða málningu til að viðhalda
PVC-gluggum áratugum saman.“
Íslensk framleiðsla
Framleiðslan fer fram í verksmiðju
fyrirtækisins að Seljabót 7 í Grinda-
vík auk þess sem söluskrifstofan er
staðsett í Skipholti 35 í Reykjavík.
„Við sérsmíðum alla glugga og hurðir
eftir óskum viðskiptavina og þar sem
framleiðslan fer fram á Íslandi er af-
hendingartíminn skemmri en almennt
þekkist. Við leggjum mikið upp úr
gæðunum og viljum vera vissir um að
fólk þurfi ekki að standa í kostnaðar-
sömu viðhaldi eins og gerist stundum
þegar óvandaðar og ódýrar eftirlík-
ingar verða fyrir valinu,“ segir Gísli.
Gluggarnir frá PGV
Framtíðarformi stóðust
slagveðurspróf Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands
án athugasemda að sögn
Gísla. „Við erum stoltir af
árangrinum enda með
hæstu einkunn. Það er
mikil fjárfesting í gluggum
og mikilvægt að vita hvað
maður er með í höndunum.
Við bendum fólki á að það
er ekki alltaf fullnægjandi
trygging á gæðum þó
gluggar hafi staðist próf
erlendis þar sem veður-
skilyrði eru allt önnur hér
heima. Það er okkur mikil
ánægja að geta boðið
upp á glugga og hurðir sem standast
erfið veðurskilyrði okkar.“
Öryggið í fyrirrúmi
Allir glerlistar frá PGV Framtíðarformi
eru að innanverðu sem er mikið ör-
yggisatriði segir Gísli. „Þá er ekki hægt
að fjarlæga gler úr glugga utan frá til
að brjótast inn en nefna má að t.d. í
Bretlandi, Þýskalandi og Belgíu er ekki
hægt að fá innbrotstryggingu ef gler-
listar eru á utanverðu. Tel ég að það
sé einungis tímaspursmál hvenær
tryggingafélög hér á landi taki það
einnig upp. Hurðirnar okkar eru í
svipuðum gæðaflokki þegar kemur að
öryggi en þær koma með 5-7 punkta
læsingu frá Yale og gluggar eru með
4-8 punkta læsingu.“
Litaúrval
PGV Framtíðarform býður upp á við-
arútlit í sjö litum og fimm tvílitum en
þá er hægt að hafa lit að utanverðu
og hvítt að innan.
Svalalokanir og sólstofur
PGV Framtíðarform sérsmíðar einnig
svalalokanir og sólstofur og eru út-
litsmöguleikar óteljandi að sögn Gísla.
„Þetta eru lokanir sem eru 100%
vind- og vatnsþéttar. Vinsælasta
þakefnið er polycarbonite sem er
35mm marghólfa plastefni en einnig
er hægt að fá öryggisgler.“
Byggingarefni
Að auki býður PGV Framtíðarform
uppá PVC þakrennur og niðurföll,
sólpallaefni sem aldrei þarf að bera
á, þakkantsefni í mörgum stærðum
og gerðum ásamt miklu úrvali lita.
Samskeyti brædd saman
Það sem aðgreinir framleiðslu PGV
Framtíðarforms sérstaklega frá
öðrum er að öll samskeyti eru brædd
saman, líka millipóstar að sögn Gísla.
„Með þessu móti er engin hætta á
leka eða taumum milli samskeyta.
Slagveðursprófið sýnir ótvírætt kosti
bræddra samskeyta en algengt er að
millipóstar PVC glugga séu skrúfaðir
í. Þegar húsið er komið með glugga
sem krefjast minna viðhalds eykst frí-
tíminn sem hægt væri að nota í eitt-
hvert áhugamálið eins og til dæmis
golf. Og með meiri tími fyrir golfið
verður þú betri í golfinu og þú getur
þakka það skynsamlegri ákvörðun
þinni í gluggakaupum.“
Nánari upplýsingar má
finna á heimasíðunni www.pgv.is
eða með því að kíkja í kaffi í
Skipholti 35 og fá kynningu.
Minna viðhald, meiri frítími