Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal 25. maí 2018
É
g hitti Evu Dís þar sem hún
býr ásamt sætum chihuahua
hundi í snoturri kjallaraí-
búð í Vesturbænum. Heimil-
ið er skipulagt og snyrtilegt og ber
öll merki þess að þar búi kona sem
hugsar vel um sjálfa sig, bæði sál
og líkama. Líklegast er engin van-
þörf þar á því líf þessarar brosmildu
og skarpgreindu konu hefur verið
ótrúlega átakasamt til þessa.
Hvað kom eiginlega til að þú
ákvaðst að segja frá því á borg-
arráðsfundi að þú hafir verið í
vændi? Hvernig þorðirðu þessu?
„Þetta var reyndar ekki í fyrsta
sinn sem ég opnaði mig um reynslu
mína af vændi því það gerði ég í fjár-
öflunarátaki fyrir Stígamót haustið
2016. En þarna á borgarráðsfundin-
um má eiginlega segja að það hafi
gerst óvart. Ég sat þarna á fundi og
fannst umræðan stefna í ranga átt,“
segir Eva Dís.
„Borgin lagði á ráðin um að
koma af stað árveknisátaki gegn
mansali og vændi og við vorum
þarna á fundi þar sem sérfræðingar
og borgarfulltrúar töluðu. Umræð-
an barst eins og svo oft áður að er-
lendum vændiskonum og ég óttað-
ist að hún stefndi bara í sama gamla
farið. Okkur finnst sú tilhugsun, að
konur sem við gætum þekkt neyðist
til að selja sig, mjög óþægileg og því
er þægilegra að hugsa sér að vænd-
iskonur á Íslandi séu útlenskar. Það
er bara því miður ekki rétt. Tölurnar
eru skakkar því íslenskar konur sem
neyðast til að selja sig gera það ekki
endilega að staðaldri og skilgreina
sig ekki alltaf sem vændiskonur þó
þær geri þetta stundum í neyð. En
þarna sat ég sem sagt og hugsaði að
enn værum við að forðast veruleik-
ann. Ég virti líka fyrir mér fína fólk-
ið í borgarráði sem sat í þessum
fallega sal og hugsaði til konunn-
ar sem þrífur þennan sal og launa-
tölunnar hennar. Hvort að hún
neyðist til að selja sig til að keppast
við að gera börnin sín samkeppn-
ishæf í íslensku samfélagi, svo að
þau geti átt sömu hluti og börn fína
fólksins í borgarráði? Allt í einu var
ég svo bara komin upp í pontu og
það var af tveimur ástæðum. Önnur
er sú að ég vil ekki sjá neinn neyð-
ast út í vændi en ef fólk gerir það þá
vil ég að viðkomandi fái þá aðstoð
sem hann eða hún þarf til að kom-
ast yfir afleiðingarnar sem þessu
fylgja. Hin var einfaldlega sú að ég
vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar
til að skapa meðvitaðra samfélag.“
„Okkur finnst sú tilhugsun, að
konur sem við gætum þekkt neyðist
til að selja sig, mjög óþægileg og því
er þægilegra að hugsa sér að vænd-
iskonur á Íslandi séu útlenskar.“
Hvernig skilgreinir þú vændi?
Hvað er það í þínum huga?
„Sjálfsskaði og ofbeldi. Sjálfs-
skaði af hálfu vændiskonunnar, eða
manneskjunnar sem er að selja sig,
og ofbeldi af hálfu kaupandans. Ef
ég hugsa um það þá er vændiskaup-
andinn líka í sjálfsskaða. Það hlýt-
ur að vera einhvers konar rof hjá
einstaklingi sem borgar annarri
manneskju fyrir að stunda það
sem hann telur vera kynlíf án þess
að skuldbinda sig tilfinningalega.
Að vilja aftengja sig manneskju og
jafnvel aftengjast sjálfum sér og
stunda svo þessa athöfn finnst mér
bara eitthvað skakkt. Það hlýtur
að vera eitthvað í einstaklingnum
sem hann vill ekki horfast í augu
við. Hann ætti mögulega að eyða
peningunum í sálfræðimeðferð en
ekki borga annarri manneskju fyr-
ir að níðast á henni. Og mér er al-
veg sama hvort viðkomandi tel-
ur sig bara vera að stunda eitthvað
venjulegt. Það er ekkert eðlilegt við
að riðlast á annarri manneskju fyr-
ir peninga. Jafnvel þó sú manneskja
telji sig vera samþykka.“
Meinarðu þá að sá eða sú sem
kaupir vændi skaði sig með því að
gera þetta og það sama gildi um fólk
sem er í vændi?
„Já allir tapa. Samfélagið líka.
Nú er ég ekki mjög virk á samfé-
lagsmiðlum. Áfallastreitan og af-
leiðingarnar af því ofbeldi sem ég
hef orðið fyrir hafa gert það að verk-
um að ég er ekki svo áfjáð í að blanda
mér í umræður á kommentakerf-
um. En þegar ég skoða þetta þá sé
ég að umræðan er oft á svo mikl-
um villigötum. Um daginn rak ég
t.d. augun í umræður um sænsku
leiðina en þar vildi einhver meina
að áhrifamáttur hennar væri tak-
markaður vegna þess að það má
ekki nafngreina vændiskaupendur.
Og þar sem þeir fái lokuð réttarhöld
hafi lögin ekki fælingarmátt. Svo
voru þarna einhver komment sem
líktu þeirri ákvörðun að selja líkama
sinn við að selja fíkniefni. Þarna er
verið að líkja saman eplum og álf-
ramleiðslu að mínu mati. Þetta sýn-
ir bara hversu mikil fáfræðin um
vændi og skaða þess er.“
Þú minntist líka á að það væri
óvinnandi vegur að ætla sér ein í
það verkefni að stuðla að viðhorfs-
breytingu til vændis. Svipað og
að ætla sér ein síns liðs að breyta
viðhorfum til fíkniefnaneyslu. Ég
finn fyrir pínulitlu rumski hvað
viðhorfin til þeirra mála varðar. Sí-
fellt fleiri virðast líta á fíknihegðun
sem sjálfsskaða og heilsufarsvanda
og þannig sama hvaða vímuefni er
ofnotað; vín, viský, kannabis, kóka-
ín o.s.frv…
„Já. Eða matur, peningaeyðsla
og hvaðeina? Eftir að ég byrjaði að
mynda mér sjálfstæðar skoðanir
fæ ég stundum sjokk yfir því hvað
margir virðast halda fast í skoðanir
sem eru myndaðar í fordómum og
ótta. Það má segja að það sé samt
bara nýlega skeð því hér áður fyrr
var ég svo meðvirk að ég sveiflaðist
eins og vindhani eftir vindáttinni
og var bara sammála síðasta ræðu-
manni og síðari árin hef ég aðallega
einbeitt mér að bata mínum og líð-
an. Samfélagsmiðlar, kommenta-
kerfin og skoðanirnar í þjóðfélaginu
eru þannig eitthvað sem ég er bara
nýlega byrjuð að kynna mér.“
Útskúfuð úr samfélaginu á
Húsavík
Flettum aðeins til baka í bókinni
og byrjum á fyrsta kafla. Eva Dís
Eva Dís Þórðardóttir
starfaði sem vændis-
kona árið 2004 á þremur
vændishúsum í Kaup-
mannahöfn. Þáverandi
kærasti hennar kynnti
hana fyrir þessum heimi
sem hún segir hvaða
stelpu sem er geta leiðst
út í, eðlilega, enda eru
allar konur systur, mæð-
ur, frænkur og dætur
einhvers. En hvað varð
til þess að Eva Dís ákvað
að greina opinberlega frá
því að hún hefði verið í
þessu starfi sem margir
fordæma og hvernig
vann hún sig svo út úr
erfiðleikunum og áföll-
unum sem óneitanlega
hljóta að fylgja?
Eva Dís vann sem
vændiskona
Margrét H. Gústavsdóttir
margret@dv.is
„Við vorum engin
vandræðafjöl-
skylda en bæjarbúar litu
hins vegar á okkur sem
aðkomufólk þó að bæði
ég og systir mín séum
fæddar þarna.