Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 52
25. maí 2018KYNNINGARBLAÐNámsframboð á háskólastigi og fjarnám
Ferðamáladeild Háskólans á Hólum býður upp á háskóla-nám í ferðamálafræðum,
viðburðastjórnun og stjórnun ferða-
þjónustu og móttöku gesta. Markmið
námsins er að undirbúa nemendur
fyrir fjölbreytt störf í ferðaþjónustu
og viðburðastjórnun. Nemendur geti
tekið virkan þátt í þróun ferðaþjón-
ustu á Íslandi ásamt því að gegna
stjórnunar- og ábyrgðarstörf-
um. Nemendur verði einnig
færir um að stofna ný fyrir-
tæki og skipuleggja og útfæra
viðburði frá upphafi til enda.
Námið er því í senn hagnýtt,
fræðilegt og fjölbreytt.
Mikil áhersla er lögð á verk-
nám sem hluta af námsleið-
um á grunnstigi með sam-
starfi við fyrirtæki í greininni
víðsvegar um landið. Með
markvissu skipulagi verk-
námsins er leitast við að
tryggja nemandanum góða
starfsreynslu á verknámstím-
anum og að fyrirtækin sjái
sér einnig hag í því að taka
til sín verknámsnema, sem gjarnan
færir með sér nýja strauma hug-
mynda og þekkingar í ferðamálum.
Í gegnum verknám og gestakennslu
kynnast nemendur atvinnurekendum
í ferðaþjónustu og skapa tengsl sem
nýtast þegar komið er út í atvinnulífið
að námi loknu.
Rannsóknir deildarinnar snúa að
fjölbreyttum viðfangsefnum ferða-
málafræða og viðburðastjórnunar.
Má þar nefna efnahagsleg áhrif
ferðaþjónustu, upplifun ferða-
manna, samfélagsleg áhrif og
félagsleg þolmörk ferðaþjónustu,
nýsköpun og vöruþróun, og starfs-
umhverfi í ferðaþjónustu og tengd-
um greinum.
Í dag er boðið upp á fimm
námsleiðir í Ferðamáladeild Háskól-
ans á Hólum:
n Diplómanám í ferðaþjónustu dreif-
býlis (e. Rural Tourism) sem er eins árs
nám á háskólastigi, með möguleika á
að halda áfram inn á annað ár til BA
gráðu í ferðamálafræðum
n Diplóma í viðburðastjórnun (e.
Event Management) sem er eins árs
nám á háskólastigi. Hér er einnig
möguleiki á að halda áfram í BA nám
í ferðamálafræðum
n BA nám í ferðamálafræðum (e.
Tourism Studies)
n BA nám í stjórnun ferðaþjónustu
og mótttöku gesta (e. Tourism and
Hospitality Management)
n Rannsóknartengt meistaranám í
ferðamálafræðum
Nánari upplýsingar á vefsvæði
Háskólans á Hólum, www.holar.is
FERðAMálADEilD HáSkólANS á HóluM:
FiSkElDiS- og FiSkAlÍFFRæðiDEilD HáSkólANS á HóluM:
Undirbúningur fyrir fjölbreytt störf
í ferðaþjónustu og viðburðastjórnun
Fiskeldi er hraðvaxandi atvinnu-grein í heiminum. Rúmlega helmingur alls fisks sem nýttur er
til manneldis kemur úr fiskeldi og aukin
fiskneysla framtíðarinnar mun byggja
á eldisfiski. árið 2016 var framleiðsla
eldisfisks á Íslandi um 15.000 tonn,
sem var 80% aukning frá fyrra ári, og
rúmlega 20.000 tonn 2017. Fiskeldið
er því í örum vexti hér á landi. Þess
má geta að framleiðsla fiskeldisfyr-
irtækjanna á árinu 2017 samsvaraði
um 65 milljónum máltíða. Samkvæmt
Matvælastofnun Sameinuðu Þjóð-
anna (FAo) mun heimsbyggðin þurfa
að tvöfalda matvælaframleiðslu sína
fyrir árið 2050 til að mæta áætl-
aðri fólksfjölgun. Fiskeldi og ræktun
annarra lagardýra og plantna mun
þar gegna lykilhlutverki.
Af þessu leiðir að atvinnumöguleik-
ar í fiskeldi eru miklir og margt að
gerast í nýsköpun og tækniþróun.
Fiskeldi er hátækniiðnaður þar sem
nýjustu tækni er beitt til að koma
til móts við þarfir eldislífvera en
samtímis er leitast við að hámarka
framleiðslu og lágmarka umhverfis-
áhrif. Vegna þessa flókna samspils er
mikil þörf á vel menntuðu starfsfólki
í fiskeldi. Nú starfa um 600 manns í
greininni hér á landi og fer sá fjöldi
hratt vaxandi.
Háskólinn á Hólum hefur boðið upp
á nám í fiskeldi frá árinu 1986 og hef-
ur útskrifað um 200 fiskeldisfræðinga
á þeim tíma. Flestir þeirra starfa í
atvinnugreininni. árið 2007 færðist
námið á háskólastig. inntökuskilyrði
eru stúdentspróf eða sambærileg
undirbúningsmenntun.
Skólinn býður upp á eins árs
diplómanám. uppbygging námsins
er þannig að reynt er að fylgja eftir
framleiðsluferli eldisfisksins. Yfirleitt
er eitt námskeið um tiltekið umfjöll-
unarefni kennt í einu og er tvær til
sex vikur að lengd. Námið hefst á
inngangsnámskeiði þar sem rætt
er almennt um fiskeldi og eldisfiska
innanlands og á heimsvísu. Að auki er
fjallað um grunnþætti þess að starfa
og nema við háskóla. Næst er horft
til eldisvatnsins og samspil þess við
fiskinn sem í því lifir. Að því loknu taka
við fjögur námskeið sem fylgja eldis-
ferlinu og byrjað að fjalla um fjölgun
fiska, klakfisk, hrogn og hrognatöku.
Þá er fjallað um frumfóðrun, meðferð
og eldi á seiðum. Næst er fjallað um
áframeldi á eldisfiski fram að slátur-
stærð. loks er námskeið um slátrun,
vinnslu og varðveislu gæða. Til viðbót-
ar eru námsskeið um fisksjúkdóma,
forvarnir og hreinlæti, námsskeið um
umhverfismál fiskeldis og námskeið
um eldisbúnað í fiskeldi. Til viðbótar
við þessi námskeið taka nemendur eitt
viðskiptatengt námskeið. Náminu lýkur
á 12 vikna verknámi í fiskeldisstöðvum.
Nemendur sem lokið hafa náminu
undanfarin ár starfa flestir í fiskeldi og
sinna þar fjölbreyttum störfum. Margir
eru millistjórnendur og stöðvarstjór-
ar hjá eldisfyrirtækjum. Námið nýtist
einnig fyrir þá sem hyggja á áfram-
haldandi nám í greininni eða skyldum
greinum, t.d. í sjávarútvegsfræði við
HA, líffræði við HÍ eða sérhæfðara
nám tengdu fiskeldi, víðsvegar um
heiminn. Mikil eftirspurn er hvarvetna
eftir menntuðu starfsfólki.
Ítarlegar upplýsingar um
námið er að finna á heimasíðu
Háskólans á Hólum, holar.is.
Miklir atvinnumöguleikar í
hraðvaxandi atvinnugrein
umhverfið á Hólum býður upp
á fjölbreyttar kennsluaðferðir
í útivistar-, náttúru- og
menningartengdum námskeiðum.
Mynd: kári Heiðar árnason
glaðbeittir nemendur við Háskólann á Hólum. Mynd: laufey Haraldsdóttir
Nemendur í verk-
legum tíma læra
að kreista fiska.
Mynd: kári Heiðar
árnason