Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 44
 25. maí 2018KYNNINGARBLAÐViðhald og framkvæmdir Epoxy Gólf ehf. sérhæfa sig í epoxy gólf-efnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þessi gólfefni eru samskeytalaus og níðsterk. Þau henta því vel þar sem kröfur eru gerðar um hreinlæti og langa endingu. Starfsmenn Epoxy Gólfa hafa yfir 30 ára reynslu og fyrirtækið hef- ur fest sig rækilega í sessi sem þjónustuaðili fyr- ir iðnað, verslanir og heimili. Epoxy Gólf bjóða nú spennandi nýjungar sem meðal annars henta heimilum, verslunum, skólum, sjúkrahúsum o.fl. Deco Line: Sjálfflæðandi slitsterkt gólfefni „Við erum með nýja lausn sem inniheldur polyurethane og er tveggja þátta lausn eins og epoxy. En jafnframt er hægt að fá þetta efni með eiginleikum, t.d. mikilli mýkt eða mikilli hörku, allt eftir óskum kaupandans. Líkt og með epoxy-efnin sem við bjóðum upp á er hægt að fá Deco Line lausnina í alls konar litum. Þetta er sjálfflæðandi þannig að það er án samskeyta og getur flætt á milli rýma. Þessi nýja lausn er mjög hlýleg og falleg í útliti þar sem satíngljái yfirborðsins gefur aukinn glæsileika. Gólfefnið er endingargott og slitsterkt, þannig að þú þarft lítið að hugsa um að endurnýja gólfefni í fram- tíðinni ef búið er að leggja þetta á gólfin,“ segir Torfi Már Hreinsson, einn eiganda Epoxy Gólfa. Gólfefnalausnin Deco Line kemur frá hol- lenska fyrirtækinu Quartzline og hentar fyrir heimili, skólastofnanir, íþróttahús og verslunar- húsnæði, bæði í afgreiðslu og á lager þar sem mikið álag er á gólfum. Micro Top: Vatnsheldir veggir og gólf á bað- herberginu Önnur áhugaverð nýjung frá Quartzline sem Epoxy Gólf bjóða upp á er Micro Top. „Þetta er eins og áferðarflot nema að það er algjörlega vatnshelt. Lausnin hentar vel á gólf á heimilum og í verslunarrými og gefið hún mjög skemmti- legan karakter. Micro Top er bæði hægt að setja á gólf og veggi. Það hentar vel í blautrými eins og sturtuklefa eða á gólf og veggi baðherbergja. Við framköllum sjálfir grófleikann í efninu og þú getur fengið þetta eins gróft eða slétt og þú vilt. Því eru engar tvær niðurstöður nákvæmlega eins þó svo þær geti verið keimlíkar. Lausnin gefur hrátt og skemmtilegt útlit og hægt er að fá hana í mörgum litum,“ segir Torfi Már. Það gildir um allt efni frá Epoxy Gólfum að fagmenn þurfa að leggja það. „Við þjálfum starfsmenn í 6 til 12 mánuði áður en þeir fá að leggja þessar gólflausnir,“ segir Torfi. Fyrir nánari upplýsingar á þessum slitsterku og endingargóðu gólf- og veggklæðningum er best að senda fyrirspurn á netfangið epoxygolf@epoxygolf.is eða skilaboð á Facebooksíðunni https://www.facebook.com/epoxygolf/. Vefsíðan er http://epoxygolf.is SLiTSTErkar oG SMEkkLEGar LauSnir frá Epoxy GóLfuM: Fallegt og endingargott gólfefni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.