Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Qupperneq 35
25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Veitingastaðurinn Krydd var opnaður í lok apríl, í hjarta Hafnarfjarðar, nánar tiltekið í
menningarmiðstöðinni Hafnarborg.
Þar með rættist gamall draumur sex
innfæddra Hafnfirðinga, þriggja para,
sem eru þau Hilmar Þór Harðarson
og Hulda Heiðrún Óladóttir, Signý
Eiríksdóttir og Jón Tryggvason, Geir-
þrúður Guttormsdóttir og Hafsteinn
Hafsteinsson.
„Þetta er staðurinn sem okkur
dreymdi alltaf um og þá á ég við að
okkur langaði að það væri til svona
veitingastaður í Hafnarfirði sem
við gætum sótt,“ segir Hilmar Þór
Harðarson sem gegnir stöðu fram-
kvæmdastjóra og yfirkokks á Kryddi.
En hvernig staður er þá Krydd?
Karakterinn lýsir sér meðal annars í
rýminu og innréttingunum sem taka
mið af heimi hafnarinnar og sjósókn-
ar.
„Í upphafi vorum við fyrst og fremst
spennt fyrir plássinu, lofthæðin er
mikil og það eru stórir flottir gluggar.
Við sáum þarna líka möguleika á að
nýta bryggjutimbur sem er ráðandi
þema á barnum og ganginum,“ segir
Hilmar en hönnuðir staðarins eru
þau Geirþrúður Guttormsdóttir, Jón
Tryggvason og Signý Eiríksdóttir.
Í matargerðinni er lögð áhersla á
léttan og skemmtilegan stíl og breið-
an matseðil þar sem allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. „Við erum með
allt frá litlum brauðréttum upp í ham-
borgara og þaðan
upp í stórsteikur.
Síðan erum við að
sjálfsögðu með
fjölbreytta sjávar-
rétti, humarbrauð,
sjávarréttapasta,
léttasaltaðan
þorskhnakka og
bleikju, svo eitt-
hvað sé nefnt,“
segir Hilmar, en
auk þessa má
nefna vegan-rétti.
Veglegt
Bröns-hlaðborð
á laugardögum
og sunnudögum
frá kl. 11 til 15 er
stór þáttur í starfsemi staðarins og
mælist afar vel fyrir.
Óhætt er að segja að verðlagi sé
stillt í hóf á Kryddi, sérstaklega miðað
við gæðastig matreiðslunnar og
hráefnisins. Verð á drykkjum er síðan
sérstaklega eftirtektarvert. „Við erum
með mjög lágt verð á bjór og allir kok-
teilar eru á 1.500 krónur sem er um
1.000 kr. lægra en gangverð. Svo er
Happy hour alla daga vikunnar frá kl.
16 til 18 og þá kosta tveir bjórar 1.000
krónur samtals.“
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni http://www.kryddveitingahus.is/.
Þar er líka hægt að ganga frá pöntun
á borði. Hilmar mælir með þeirri leið
en hún er þó ekkert skilyrði. „Við vísum
engum frá og ef það er ekki laust
borð er fínt að bíða hérna á huggu-
legu sófasvæðinu og fá sér fordrykk á
meðan beðið er.“
Hafnfirðingar og fjölmargir aðrir
eiga góðar stundir í vændum á Krydd
veitingahúsi.
Veitingastaðir
„Þetta er staðurinn sem
okkur dreymdi alltaf um“
Krydd Er Nýr VEiTiNGaSTaður
Í HJarTa HafNarfJarðar: