Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 2
2 21. sept 2018FRÉTTIR
Í
íbúð einni í fjölbýlishúsi að Sól
götu 8 á Ísafirði fer fram undar
legur búskapur. Hænsnarækt. Í
risi hússins halda pólsk hjón tíu
hænur. Nágrannar eru orðnir lang
þreyttir á gagginu í fuglunum en
hafa gefist upp að reyna að berjast
gegn því. Matvælastofnun skoð
aði aðstöðu fuglanna fyrir rúmu
einu og hálfu ári og var niðurstað
an sú að hún væri til fyrirmyndar.
„Strangt tiltekið þarf viðkomandi
ekki leyfi ef hann er með færri en
250 fugla,“ segir héraðsdýralæknir
Vesturumdæmis í samtali við DV.
„Ég held að þær fái betri mat að
borða en við“
Þrjár íbúðir eru í húsinu sem er á
þremur hæðum. Á jarðhæðinni
eru tvær íbúðir sem hvor er um
70 fermetrar að stærð. Á efri hæð
inni búa síðan hjónin Marzena og
Wieslaw Nesteruk í tvöfalt stærri
íbúð auk þess sem þau hafa að
gang að risi hússins. Þar hafa
þau komið fyrir haganlega upp
settu rými fyrir hænsnin. „Pabbi
var bóndi í Póllandi og hélt þar
hænur. Það fer mjög vel um fugl
ana uppi á lofti. Þær eru tíu tals
ins og ég held að þær fái betri mat
að borða en við,“ segir eldri sonur
þeirra, Dariusz, í stuttu samtali við
blaðamann sem var að falast eftir
viðtali við foreldrana. Það var ekki
hægt því þau voru stödd í sumar
leyfi á Spáni.
Það eru þó ekki allir hlynntir
hænsnastóðinu í húsinu. Ná
grannar, bæði í húsinu og nærliggj
andi húsum, eru orðnir þreyttir á
ástandinu. „Það er með ólíkind
um að þetta sé leyfilegt. Hænur
eiga ekki heima í fjölbýlishúsum.
Gaggið í þeim er afar þreytandi og
svo fylgir þessu óþefur. Þau halda
einnig hund og kött og því er fjöl
býlishúsið orðið að eins konar
bóndabýli,“ segir nágranni í sam
tali við DV. Hann kveðst hafa haft
samband við Heilbrigðiseftirlitið
og Matvælastofnun vegna málsins
og talið að lausn væri í sjónmáli
þegar héraðsdýralæknir boðaði
komu sína fyrir um 18 mánuðum.
„En það gerðist ekki. Þau veittu
þessu bara blessun sína,“ segir
nágranninn og sagðist hafa orðið
mjög undrandi.
Þarft ekki leyfi fyrir færri en
250 fugla
Í samtali við DV staðfestir Elísa
bet Fjóludóttir, héraðsdýralæknir
Vesturumdæmis, að hún hafi
farið við annan mann og tekið
hænsnaræktina út á sínum
tíma. „Við fengum þessa tilkynn
ingu og fórum því og skoðuðum
aðstæður. Aðbúnaður dýranna var
til fyrirmyndar og þar með höfð
um við engar heimildir til þess að
grípa inn í. Við höfum síðan ekki
fengið neinar tilkynningar um að
aðbúnaður dýranna hafi versnað.
Strangt tiltekið þarf viðkomandi
ekki opinbert leyfi fyrir fuglun
um nema þeir séu yfir 250 talsins,“
segir Elísabet. Aðspurð hvort hún
þekki önnur dæmi um hænsna
rækt innandyra í fjölbýlishúsum
segir Elísabet: „Nei, þetta verður
að teljast frekar óvenjulegt. En sá
sem heldur fuglana kann greini
lega sitt fag,“ segir hún. n
sem þurfa að segja af sér
Undanfarnar vikur hafa íslenskir
embættismenn og stjórnendur
keppst við að toppa hver annan í
fúski og vanhæfni. DV tók saman
fimm einstaklinga og hópa sem
þurfa að stíga til hliðar, þjóðinni til
heilla.
Steingrímur
J. Sigfússon
Sjaldan hefur þjóðin
sameinast jafn mikið í
almennri hneykslun og
þegar upplýst var að
lýsing um hábjartan
dag á hinum alræmda
Þingvallarfundi hefði
kostað ríflega 22 millj-
ónir króna. Flestir telja
að um ótækt bruðl sé
að ræða og sá sem ber
höfuðábyrgð á farsan-
um er Steingrímur sem
þó sýnir
enga
iðrun.
Agnes M.
Sigurðardóttir,
biskup Íslands
Á þeim rúmum sex
árum sem Agnes
hefur gegnt embætti
biskups Íslands hefur
meðlimum fækkað um
10 þúsund. Þjóðkirkjan
logar stafna á milli í
pólitískri baráttu og
reglulega sætir Agnes
gagnrýni fyrir orð sín
og gjörðir. Til dæmis í
nýlegu máli séra Þóris
Stephensen þar sem
hún brást ekki við sem
skyldi.
Guðni Bergsson,
Framkvæmda-
stjórn KSÍ
Tæknilega séð kannski
ekki opinberir starfs-
menn en þetta fólk
hefur sálarlíf þjóðar-
innar (út af gengi
íslensku knattspyrnu-
landsliðanna) í
höndum sér. Það brást
því ábyrgðarhlutverki
með því að ráða Eric
Hamrén sem landsliðs-
þjálfari. Það var búið
að vara við þessu.
Bjarni Bjarnason,
forstjóri Orku-
veitunnar
Farsinn innan Orku-
veitunnar virðist engan
endi ætla að taka. Í
ljós hefur komið að þrír
karlar í stjórnunarstöð-
um hafa gerst sekir eða
hafa verið sakaðir um
kynferðislega áreitni
innan vinnustaðarins.
Bjarni hefur stigið
tímabundið til hliðar
vegna málsins en hann
ber ábyrgð á því að
óheilbrigt
ástand hefur
fengið að
grassera
innan
vinnu-
staðar-
ins.
Dagur B (raggi)
Eggertsson
borgarstjóri
Dagur brosti út að eyr-
um þegar hann skrifaði
undir samkomulag árið
2015 um að braggi frá
stríðsárunum myndi
ganga í endurnýjun
lífdaga í Nauthólsvík.
Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 158 millj-
ónir króna en kostnaður
endaði í 415 milljónum
króna. Einhver þarf
að axla
ábyrgð
á þessu
hneyksli.
Á þessum degi,
21. ágúst
1776 – Hluti New York-borgar verður
eldum að bráð skömmu eftir að Bretar
náðu henni á sitt vald.
1921 – Geymslusíló í Oppau í Þýska-
landi springur með þeim afleiðingum að
500–600 manns missa lífið.
1937 – Bók J.R.R. Tolkien, Hobbitinn,
er gefin út.
1964 – Malta hlýtur sjálfstæði frá
Bretlandi en verður áfram innan vé-
banda Breska samveldisins.
1981 – Sandra Day O’Connor er, fyrst
kvenna, samþykkt einróma af Öldunga-
deild Bandaríkjaþings sem dómari við
Hæstarétt landsins.
Síðustu orðin
„Ákveðið fiðrildi hefur nú
þegar tekið flugið.“
– Rússneski rithöfundurinn (og
skordýrafræðingurinn) Vladimír
Nabokov (22.4. 1899–2.7. 1977).
„Gaggið í þeim
er afar þreytandi“
n Pólsk hjón halda tíu hænur í þriggja íbúða húsi n „Pabbi var bóndi í Póllandi“
„Strangt tiltekið
þarf viðkomandi
ekki opinbert leyfi fyrir
fuglunum nema þeir séu
yfir 250 talsins.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is