Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 4
4 21. sept 2018FRÉTTIR
Leyfið börnunum að koma til Ásmundar
S
varthöfði hjó eftir því í vik-
unni að Ásmundur Einar
Daðason hefði verið gerður
að nýjum félags- og barna-
málaráðherra og óskar honum
innilega til hamingju með það.
Ásmundur er vel að því kominn.
Svarthöfði er ekki alveg með það
á hreinu að hvaða leyti málefni
barna voru ekki undir hans um-
sjón fyrir þennan nýja titil. En það
gildir einu. Vonandi fær hann feita
launahækkun fyrir að bæta þessu
við sig.
Ásmundur er í rauninni sér-
staklega hentugur barnamála-
ráðherra. Hann er kallaður
Dalafressinn og klæðist stundum
grænum og mjög líflegum jakka-
fötum. Börnin tengja við þetta.
Svarthöfði hefur einnig tekið
eftir vaxandi óánægju almennings
með Krakkafréttirnar á RÚV. Eða
allavega óánægju Möggu Frikka
og Jóns Vals Jenssonar með þær.
Það sér hvert mannsbarn að ein-
hver Göbbels uppi í Efstaleiti notar
barnaefnið til að menga ómótaðar
barnssálir til að skapa framtíðar
herskara „rétthugsandi“ fólks.
Nú er lag, að mati Svarthöfða,
að ríkisstjórnin láti sverfa til
stáls og hreinsi út liðið sem stýr-
ir barnaefninu. Þessir smákóngar
á RÚV hafa allt of lengi fengið að
stunda sinn heilaþvott óáreittir.
Ásmundur sjálfur ætti í krafti
sinnar nýju stöðu að fá að stýra
barnaefninu milliliðalaust og er
borðleggjandi að hann myndi
leika í því sjálfur. Krakkafréttirn-
ar ætti auðvitað leggja niður enda
þurfa börn ekkert að vita hvað er
að gerast í samfélaginu. Svarthöfði
sér fyrir sér að Ásmundur verði
með vikulegan
söngþátt fyrir börn-
in með frumsömdu
efni. Hann yrði ekki
lengi að hrista fram
úr erminni lög á
borð við „Allir eru
að fá sér“, „Vegur-
inn heim til mín“,
„Skattar hafa verið
greiddir“, „Gubbu-
lagið“ og „Þórólfur
á mig.“ Ásmund-
ur gæti annað-
hvort spilað und-
ir á kassagítar eða
rappað þetta eins
og er nýmóðins.
Fleiri ráðherrar mættu bæta
titlum við sig. Til dæmis Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra. Þetta er allt of
þjált og hún getur vel bætt við sig
tveimur til þremur stólum. Einnig
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
og ráðherra norrænna samstarfs-
mála. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Upphaflega voru það Skotar sem
tóku upp á þeirri kúnst að djúpsteikja
kjúkling.
Banani er skilgreindur sem ber.
Umboðsmaður Elvisar Presley tók upp
á því að framleiða „Ég hata Elvis“-nælur
til þess að græða á fólki sem keypti ekki
hefðbundinn Elvis-tengdan varning.
Fredric Baur lét jarða sig í Pringles-
-dós, en hann fann einmitt upp á
því íláti.
Frank Sinatra fékk þrjár stjörnur á
Walk of Fame-götunni í Hollywood,
eina fyrir þátttöku hans í kvikmynd-
um, eina fyrir sjónvarp og eina fyrir
tónlist.
Hver er
hann
n Hann er fæddur í
mars árið 1983.
n Hann var með grín-
þátt á Rás 2 sem hét
Tímaflakk.
n Árið 2008 setti hann upp sýn-
inguna Fyndinn í fyrra.
n Árið 2009 lék hann í frægri gam-
anmynd á móti föður sínum.
n Árið 2011 hitaði hann upp fyrir
grínistann Jon Lajoie.
SVAR: ÞÓRHALLUR ÞÓRHALLSSON
Svikahrappar ógna ein-
hverfum pilti í Reykjavík
n Ráðist á móður piltsins n Flókin svikamylla um kaup á hundi
E
rlendir svikahrappar hóta
einhverfum pilt í Reykja-
vík ofbeldi ef hann borgar
þeim ekki 150 þúsund krón-
ur. Eyjólfur Páll Víðisson, frændi
piltsins, gagnrýnir lögregluna
harðlega í samtali við DV.
Segir hann að ráðist hafi verið
á móður piltsins fyrir utan heim-
ili þeirra og fjölskyldan sé mjög
hrædd. „Móðir hans upplifir sig
óörugga á heimili sínu og er vör
um sig hvert sem hún fer.“ Eyjólfur
segir að lögreglan sýni málinu ekki
áhuga vegna þess hve lág upp-
hæðin er. „Þeir vilja ekki gera neitt
því þetta er svo lág upphæð, það
væri annað ef þetta væru nokkrar
milljónir. Vandinn er sá að hann
og móðir hans eiga ekki slíka pen-
inga og það er heldur ekki þeirra
að borga,“ segir Eyjólfur.
Lögreglan segir málið í rann-
sókn og hafnaði því alfarið í sam-
tali við DV að mál af þessum toga
væru ekki tekin alvarlega. Skipti
þar engu hver upphæðin væri.
Smáhundur til sölu á Bland
Svindlið gekk þannig fyrir sig að
fyrir þremur vikum fékk pilturinn
skilaboð á Snapchat frá einstak-
lingi, „Reid“, sem hann þekkti ekki
og var spurður hvort hann vildi
eignast pening. DV hefur und-
ir höndum skjáskot af samtalinu
þar sem sést að pilturinn gaf Reid
kennitöluna sína og reiknings-
númer. Reid var búinn að auglýsa
smáhund til sölu fyrir 150 þúsund
krónur á bland.is og hafði fengið
ónafngreindan kaupanda til að
leggja þá upphæð inn á reikning
piltsins.
Eyjólfur segir að pilturinn hafi
ekki gert sér grein fyrir því að hann
ætti að láta Reid fá áðurnefnda
upphæð. Um kvöldið fékk móðir
piltsins skilaboð frá áðurnefndum
kaupanda hundsins og vildi sá fá
peningana sína aftur. Þegar þar var
komið sögu var pilturinn búinn
að eyða peningnum. Þá rann upp
fyrir piltinum, móður hans og
kaupandanum að þau höfðu lent
í svikamyllu.
Þarf að kæra piltinn
Kaupandi hundsins, sem vildi alls
ekki láta nafn síns getið, staðfesti
atburðarásina í samtali við DV.
Hann taldi sig vera að kaupa hund
af viðurkenndum aðila og lagði
peningana inn á piltinn, síðar
sama dag hafi svo runnið á hann
tvær grímur og þá hafi hann haft
samband við móðurina. „Ég er bú-
inn að ræða við lögregluna og fékk
þau svör að ég þyrfti að kæra pilt-
inn ef ég vildi fá peningana mína
aftur,“ segir kaupandinn. „Ég lét
Bland vita strax og þeir tóku þetta
út. Nokkrum dögum síðar sá ég
aðra svona auglýsingu og lét taka
hana út líka. Eitt er víst, ég er aldrei
að fara að kaupa neitt á netinu
aftur. Ég bara trúði ekki að þetta
gæti gerst.“
Ráðist á móður piltsins
Reid er búinn að senda piltinum
hótanir ítrekað. Fékk pilturinn
meðal annars senda mynd frá
Leifsstöð þar sem svikahrappur-
inn lætur piltinn vita að hann sé
kominn til landsins og meðfylgj-
andi mynd af byssu, sem ekki er
hægt að skilja öðruvísi en sem líf-
látshótun. Hótanirnar koma bæði
í gegnum Snapchat og gervimenn
á Facebook. Eyjólfur segir að
pilturinn skilji ekki um hvað mál-
ið snýst. „Hann fékk bara lagt inn
á sig pening og hélt að hann væri
orðinn ríkur. Hann er einhverfur
og með þroskaröskun. Hann skildi
ekki hvað maðurinn var að tala
um og gaf honum upplýsingar
sem hann átti ekkert að gefa.“
Meðal þess var heimilisfang-
ið piltsins. Fyrir stuttu var ráðist
á móður hans á bílastæðinu fyrir
utan heimili þeirra. „Hún er ör-
yrki og er viðkvæm í baki. Það var
maður sem stökk á hana á bíla-
stæðinu,“ segir Eyjólfur og bætir
við að pilturinn sé miður sín yfir
öllu saman. DV hefur undir hönd-
um myndir af áverkum sem hún
hlaut við árásina, sem hefur verið
tilkynnt til lögreglu. n
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Byrjunin á svik-
unum. Maður
sem kallaði sig
Reid hafði sam-
band við piltinn
á Snapchat.
Auglýsingin sem birtist á Bland.
Reid býður honum
auðvelda peninga,
skjáskotin sem DV hefur
undir höndum sýna að
pilturinn, sem er ein-
hverfur og með þroska-
röskun, skilur manninn
ekki fullkomlega.
Svikahappurinn fékk kennitölu og reiknings-
númer hjá piltinum. Hann brást svo ókvæða
við þegar hann frétti að pilturinn væri búinn
að eyða peningunum.
Svikahrappurinn sendi piltinum mynd af
byssu.
Áverkar á móður piltsins. Hún vildi ekki
koma fram undir nafni en gaf leyfi fyrir
birtingu myndarinnar.
Þetta bréf var á bílrúðu fjölskyldunnar.