Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Side 5
KYNNING
Flest sem lýtur að smíði og
garðvinnu
Matthías Pétursson húsgagnasmiður er með yfir þrjátíu ára
reynslu af smíði og vinnur með
Matthíasi syni sínum, sem er
að ljúka námi í húsasmíði, og
mun taka við rekstri föður síns
þegar fram líða stundir. Þeir
feðgar taka að sér flest það
sem lýtur að smíði, nýsmíði og
lagfæringum. Matthías segist
lengi vel hafa unnið við sérsmíði
á innréttingum:
„Undanfarin ár hefur sérsvið
mitt hins vegar verið garðar
og hellulögn. Ég tek að mér
fjölbreytt verkefni eins og
sumarhús, einkalóðir, lóðir
undir nýbyggingar og eins eldra
húsnæði. Að auki sé ég um
nýja garða og endurgerð eldri
garða.“
Sólpallar, skjólveggir og hellu-
lögn
„Yfir sumartímann huga margir
að sólplöllum enda eru þeir ekki
bara til þess að njóta sólar-
innar heldur nýtast einnig sem
frábær framlenging á sjálfri
stofunni,“ segir Matti. „Það er
einnig annatími í hellulögn og
girðingum. Skjólveggir, bekk-
ir, kofar og geymslur spretta
upp eins og gorkúlur í görðum
landsmanna með hækkandi
sól,“ bætir hann við og nefnir
að fátt sé skemmtilegra en
vorverkin.
Heitir pottar – framlenging á
stofunni
„Fjölmargir hafa fengið sér
heitan pott í garðinn á undan-
förnum árum. Það skiptir
meginmáli að pallurinn við
pottinn sé vel úthugsaður og
huga þarf vel að staðsetningu
og umhverfi pottsins. Best er
að pallurinn sé á tveimur hæð-
um og smíða tröppur á snyrti-
legan hátt upp á efri pallinn til
þess að auka rýmið umhverfis
pottinn. Tröppurnar geta svo
einnig nýst fyrir blómapotta og
luktir sem gera umhverfið mun
hlýlegra við pottinn. Á efri pall-
inum myndast þá líka rými fyrir
borð og stóla. Þegar sólpallar
eru ekki stórir eins og í þessu
tilfelli er mikið atriði að fella
pottinn inn í umhverfið til þess
að skapa rými. Rýmið um-
hverfis pottinn er t.d. hægt að
nota fyrir glös og diska þegar
hann er í notkun.“
Þúsundþjalasmiður Matti er
með yfir 30 ára reynslu í faginu
og hefur í gegnum árin smíðað
nokkur hundruð sólpalla með
öllu tilheyrandi.
Finna einnig fallegar lausnir
fyrir landsbyggðina
„Við Mattarnir smíðum líka
utan um sorptunnur á fag-
legan hátt og búum til falleg
blómabeð til skrauts og ofan
á hleðslur. Við notum ýmsar
viðartegundir við smíðina eins
og t.d. lerki, eik, furu og jafn-
vel tekk. Við tökum glaðir við
verkum á landsbyggðinni og
höfum sinnt verkefnum um
land allt, eins og t.d. á Flúð-
um, Þingvöllum, Snæfellsnesi
og í Skorradal. Við Mattarnir
smíðum í raun allt sem hugsast
getur – innandyra sem utan.
Við getum séð um parketlögn,
parketslípun, milliveggjasmíði,
uppsetningu innréttinga, upp-
setningu hurða, þakviðgerðir
og fleira,“ segir Matti.
Matti smiður, netfang:
mattismidur@mattismidur.is,
sími: 893-3300 og 691-0621
www.mattismidur.is.