Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Page 31
Heilsa 21. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Skvass, eða veggtennis eins og það er stundum kallað, hefur tíu ár í röð verið valið heilsusam-
legasta íþróttagreinin af tímaritinu
Forbes Magazine. Það kemur þeim
ekki á óvart sem þekkja til íþróttarinn-
ar enda eykur hún mjög þol og styrkir
líkamann alhliða auk þess að þykja
afar skemmtileg.
Skvassfélag Reykjavíkur býður
almenningi upp á að stunda skvass í
veglegu húsnæði sínu að Stórhöfða
17, Reykjavík. Þar eru fjórir skvasssalir.
Kim Magnús Nielsen er formað-
ur Skvassfélags Reykjavíkur og sér
einnig um unglingastarf í félaginu.
Kim er fimmtánfaldur Íslandsmeistari
í íþróttinni og er núverandi landsliðs-
þjálfari í skvassi. Landsliðið tók þátt í
EM í Lettlandi í apríl og lagði þar að
velli fjórar þjóðir.
Að sögn Kims er skvass íþrótt sem
hentar öllum. „Fólk eldist mjög vel
í íþróttinni og hingað koma margir
sem eru á sjötugsaldri. Þú spilar bara
á þinni getur og mótspilarar þínir
eldast líka,“ segir Kim. Hann segir að
tvenndarleikur í skvassi þekkist en
langalgengast sé að spilað sé einn á
móti einum. „Hins vegar bóka stund-
um þrír til fjórir sal í einu og tveir hvíla
sig á meðan hinir keppa.
Við erum líka með hefðbundna
líkamsræktarstöð hérna á annarri
hæð og því er hægt að kaupa árskort
í skvass og ræktina,“ segir Kim en
sumir flétta saman æfingar í tækjasal
og skvassi.
Skvass er afskaplega skemmtileg
íþrótt sem veitir mikla útrás jafn-
framt því að byggja upp þol og styrk
iðkenda. Kannski er skvass nákvæm-
lega íþróttin sem þig vantar núna til
að taka með þér inn í annasaman og
skemmtilegan vetur?
Skvasstíma er hægt að bóka með
einföldum og þægilegum hætti á
vefsíðunni skvass.is eða í síma 577-
5555. Stöðin er sem fyrr segir að
Stórhöfða 17. Opið er mánudaga til
fimmtudaga frá kl. 8 til 22, föstudaga
frá 7 til 20, laugardaga frá 9 til 16 og
sunnudaga frá 10 til 16.
KOMDU Í SKVASS:
Heilsusamlegasta íþróttin
Kim Nielsen (til hægri)
og Matthías Jónsson
GUÐMUNDUR EGGERT EINKAÞJÁLFARI:
„Þetta er langhlaup en ekki
spretthlaup“
Einkaþjálfarinn Guðmundur Eggert Gíslason er nú farinn á fulla ferð eftir rólegt sumar og á nokkra
lausa tíma bæði í einkaþjálfun og fjar-
þjálfun. Guðmundur, sem er þrítugur í
dag, kynntist líkamsrækt þegar hann
var 18 ára og byrjaði hjá einkaþjálfara.
Hann þjálfar í hinum glæsilegu líkams-
ræktarstöðvum Reebok Fitness þar
sem fólk æfir við fyrsta flokks aðstæður.
„Fólk kemur til mín í mjög misjöfnu
ástandi, eins og gengur. Meirihlutinn vill
létta sig en ég fæ líka oft til mín unga
stráka sem vilja þyngja sig með því að
byggja upp vöðvamassa. Mikilvægt er
að sníða þjálfunina að þörfum hvers
og eins einstaklings,“ segir Guðmundur
Eggert. Margir gera sér ekki grein fyrir
því að ekki bara of þungt fólk upplifir
sig ekki í formi, það getur verið erfitt að
vera alltof léttur og kraftlítill.
„Fram á unglingsár var ég mjög
grannur og fannst ræktin aldrei eiga
við mig. En strax eftir fyrsta tímann
í ræktinni má segja að það hafi ekki
verið aftur snúið. Ég byrjaði með það
markmið að þyngja mig, ég var um
65 kíló árið 2006 og var orðinn 92
kíló snemma árs 2014, með æfingum
og réttu mataræði. Ég er um 81 kíló í
dag,“ segir Guðmundur Eggert en hann
kynntist líkamsræktarheiminum árið
2006 er hann fór á fyrstu æfinguna
með einkaþjálfara.
„Ég byrjaði í viðskiptafræði haustið
2008, rétt fyrir hrun og lauk því námi
árið 2013. Ég sá þá ekki mikla framtíð í
því fagi og fór í einkaþjálfaranám árið
2015. Kannski er það hruninu að þakka
að ég er einkaþjálfari í dag,“ segir Guð-
mundur Eggert.
Guðmundur Eggert býður upp á
þrjár þjálfunarleiðir; einkaþjálfun,
paraþjálfun og fjarþjálfun. Persónuleg
þjónusta, sérsniðið æfingaprógramm,
eftirfylgni og stuðningur einkenna allar
leiðirnar.
Þjónusta Guðmundar Eggerts er fyrir
fólk á öllum aldri en hann undirstrikar
mikilvægi þess að fólk gerir líkamsrækt-
ina að lífsstíl: „Margir vilja sjá árangur
strax og sumir gefast upp ef hann
kemur ekki eftir nokkrar vikur.
En þetta er langhlaup, ekki
spretthlaup – og ég
reyni að koma þeirri
hugsun af stað strax
í byrjun.“
Fyrir þá sem
vilja frekari upp-
lýsingar um þjón-
ustu Guðmundar
Eggerts eða vilja
byrja að æfa undir
leiðsögn hans er
best að skoða vefsíð-
una gudmundur.org.
Guðmundur Eggert