Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Page 33
Heilsa 21. september 2018 KYNNINGARBLAÐ
Iceherbs er íslenskt vörumerki sem framleiðir og þróar náttúruleg bætiefni og mixtúrur. Upphaf-
lega voru íslensk fjallagrös og kostir
þeirra uppstaðan og grunnurinn að
vörulínunni en með tímanum hefur
jurtum og hráefnum fjölgað og fleiri
vörur hafa orðið til og svarað eftir-
spurn markaðarins þar sem kröfur
Íslendinga um náttúrulegar og virkar
vörur hafa aukist.
Iceherbs framleiðir einungis vörur
með náttúrulegum innihaldsefnum,
en krafturinn og virkni þeirra leyna
sér ekki. Hósta- og og hálsmúxtúrur
vörumerkisins henta bæði börnum
og fullorðnum og hafa löngum notið
gríðarlegra vinsælda sökum þeirra
mýkjandi og róandi áhrifa sem þær
hafa á ertingu í hálsi og hósta. Mixt-
úrurnar eru bragðgóðar og innihalda
íslensk fjallagrös sem hafa þessi
róandi áhrif.
Náttúrulegur og nærandi varasalvi
Nú er nýlega komin á markað
fyrsta vara systurvörumerkisins,
Iceherbs Skin, en það er mýkjandi
og nærandi varalsalvi í tveimur
bragðtegundunum. Varasalvinn
inniheldur einungis náttúruleg
innihaldsefni og er virka efnið, sem
gerir varasalvann einstakan, íslensk
fjallagrös, en eins og áður hefur
verið nefnt hafa þau afar mýkjandi
áhrif, olíurnar í varasalvanum næra
varirnar og skilja þær eftir silki-
mjúkar.
Fleiri vörur frá Iceherbs Skin
eru væntanlegar og bera þær
allar eiginleika vörumerkisins,
þ.e. að vera náttúrulegar og
hafa áhrifaríka virkni. Vörur
Iceherbs Skin eru ekki prófaðar
á dýrum og er lögð mikil áhersla
á að lífræn innihaldsefni fá
einnig að njóta sín.
Iceherbs og Iceherbs Skin
fást í öllum apótekum, heilsu-
vöruverslunum og betri stór-
mörkuðum. Sjá nánar á vefsíð-
unni iceherbs.is
ICEHERBS:
Íslensku fjallagrösin og fleiri
áhrifarík náttúruefni