Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 36
Heilsa 21. september 2018KYNNINGARBLAÐ
Ég hef fengið til mín fólk á æf-ingar klukkan sex á morgnana, fólk sem sá ekki fram á að geta
nokkurn tíma vaknað á þeim tíma. En
svo eru sömu einstaklingarnir farnir
að mæta klukkan sex til að æfa sjálfir
þegar þeir eru ekki í tíma hjá mér,“
segir Teitur Arason, íþróttafræðingur
og einkaþjálfari, um þá undraverðu
breytingu sem verður á lífsstíl og
viðhorfi fólks sem ílengist í líkams-
rækt.
Teitur starfar í World Class Laug-
um þar sem hann þjálfar bæði
íþróttafólk og almenning. „Ég hef
þjálfað fólk á öllum aldri og af öllum
gerðum. Af íþróttafólki hef ég mest
fengið til mín leikmenn úr fótbolta
og handbolta ásamt því að hjálpa
keppendum í fitness að undirbúa sig.
Síðan koma margir til mín sem vilja
einfaldlega bæta heilsu sína og lífs-
gæði,“ segir Teitur.
En það er margt ólíkt við að þjálfa
almenning og íþróttafólk: „Íþrótta-
menn hafa meiri reynslu og með þeim
er maður jafnframt oft að vinna gegn
undirliggjandi meiðslum. Auk þess eru
þeir oft að æfa með mjög skilgreind
markmið í huga varðandi til dæm-
is hraða, snerpu og sprengikraft á
meðan flestir sem stunda ekki íþróttir
þurfa ekki að kafa jafn djúpt í mark-
mið sín í líkamsrækt, heldur styðjast
frekar við markmið sem miðast við
aukið þol, styrk og liðleika.“
Árangur tekur tíma
Af almennum borgurum sem leita
til Teits kemur fólk á öllum aldri í alls
konar formi. „Ég er til í að vinna með
hvaða fólki sem er svo lengi sem það
tileinkar sér rétt viðhorf og er tilbúið
að leggja sig fram.“
Teitur segir það nokkuð útbreitt
hugarfar hjá fólki að vilja árangur
strax og það þurfi að átta sig á því
að árangur snýst um breyttan lífsstíl
og að þetta er langhlaup: „Þetta er
algengara hjá yngra fólki sem vill fá
hlutina strax en þarf að átta sig á því
að maður þarf að vinna fyrir hlutun-
um og það tekur tíma.“
Teitur segir mikilvægt að leggja
upp með skýr markmið. „Margir byrja
og hætta fljótt af því þeir hafa engin
markmið og ekkert plan, þá er svo
auðvelt að detta út. Það er eins og
að mæta í skólann með engan penna
eða blað og vita ekki í hvaða tíma
maður á að fara – þá lærir maður
ekkert. En þetta er lífsstíll sem
maður tileinkar sér smám saman
og líkamsræktin er heimur sem
gaman er að vera í.“
Æfingar eiga að vera
skemmtilegar
Teitur veitir viðskiptavinum
sínum mikinn stuðning og ráð-
gjöf varðandi mataræði. Farið
er yfir matarvenjur í byrjun og
byrjað að notast við mataráætlun.
Mælingar og vigtun eru síðan fyrir
þá sem það vilja og þurfa á að
halda. Æfingar þurfa að vera
fjölbreyttar og skemmti-
legar.
„Æfing er ekki
bara æfing og
það eru til
milljón mis-
munandi
útfærslur.
Það þarf
að finna
æfingar
sem þér
finnst
skemmtilegar því það er ein-
falt reikningsdæmi að ef
þú nýtur þess að æfa
þá ertu mun líklegri til
að ná árangri.“
Til að fá nánari
upplýsingar eða
panta einkaþjálf-
un hjá Teiti er best
að senda honum
skilaboð á netfangið
teiturara14@gmail.
com.
TEITUR ARASON EINKAÞJÁLFARI:
Ef þér finnst það gaman þá
nærðu árangri