Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Qupperneq 39
FÓLK - VIÐTAL 3921. sept 2018 þennan ratleik gagngert til þess að fara með hann niður að á og henda honum út í.“ Sólveig segist aldrei hafa borið kala til Ara en segist reið fólkinu sem átti að passa bæði hann og drenginn hennar. Þeir voru saman í lokuðum skóla sem starfræktur var á þessum tíma undir nafninu Brattahlíð. Skólinn var lítill og var ætlaður börnum sem þurftu sérs- taka aðstoð. „Þetta var lokaður skóli sem var hugsaður fyrir krakka sem áttu eitthvað erfitt, þar sem börn áttu að vera sérstaklega pössuð. Minn drengur var með ADHD og skólinn sem hann var í fyrsta árið vildi ekki hafa hann inni hjá sér. Ég man að sumarið eftir fyrsta bekk gengu skólayfirvöld mjög hart að mér að setja Hartmann í þennan skóla. Einhvern veginn fannst mér alltaf eins og hann ætti ekki að fara í hann og ég neitaði því alltaf, en það endaði með því að ég gaf mig, sem ég hafði aldrei átt að gera,“ segir Sólveig. Hún veltir því upp hvers vegna þeir sem stóðu að skólanum og höfðu það að atvinnu að passa drengina hafi ekki verið dregnir til ábyrgðar á sínum tíma. „Hvar er réttlætið? Af hverju var ekki réttað yfir fólk- inu sem bar ábyrgð á þessu? Ég er ekki að tala um Ara, hann var veik- ur krakki. Ég hef aldrei borið kala til Ara, hef ekki getað réttlætt það. Ég ber reyndar heldur ekkert kala til þessa fólks, þetta fólk hefur ör- ugglega verið mjög hrætt alla ævi, að vera með morð á samviskunni.“ Segir Ara hafa misnotað Hartmann Eftir umfjöllun Pressunnar um málið komu fram nýja upplýsingar en þá greindi bróðir Hartmanns fjölskyldunni frá því að Ari hefði misnotað Hartmann skömmu fyrir morðið. „Hartmann lenti í misnotkun í skólanum þegar Ari misnotaði hann. Hann hafði sagt eldri bróðir sínum frá þessu áður en hann dó. Ég hefði auðvitað vilj- að gera eitthvað í því máli, en mér skilst að það sér fyrnt,“ segir Sól- veig. Erfið æska Ara Gerandinn, Ari, var ungur beittur skelfilegu ofbeldi. Ofbeldið var svo hryllilegt að vart er hægt að setja það á prent. Ari vildi lítið tjá sig um ofbeldið þegar blaðamaður Pressunnar ræddi við hann á sínum tíma. „Ég sækist ekki eftir vorkunn. Ég varð fyrir mjög grófu líkamlegu og andlegu ofbeldi á heimili mínu og þá sérstaklega af stjúpa mínum. Ofan á það bættist kynferðisleg mis- notkun stjúpa míns og fleiri einstak- linga sem í dag hefur enn áhrif á mig. Móðir mín átti sjálf mjög erfitt á þessum tímum og hafði því ekki tök eða getu til þess að styðja mig gegn ofbeldinu.“ Í frétt Pressunnar frá 1993 segir að hann hafi oftar enn einu sinni fundist að næturlagi fáklæddur og ráfandi talsvert fjarri heimili sínu. Aðspurður hvernig hafi stað- ið á því svarar hann: „Ég hafði ekki kjark í mér til að fara heim af ótta við barsmíðar.“ Vistaður á vistheimili til 18 ára aldurs Ari var sendur til Reykjavíkur og vistaður á barnageðdeild Landspítalans á Dalbraut í tvö og hálft ár eftir morðin. Að þeirri vist lokinni var honum komið fyrir á nýstofnuðu vistheimili, Árbót í Að- aldal, skammt frá Húsavík. Heim- ilinu var sérstaklega komið á fót til að vista Ara. Þar dvaldi hann til 18 ára aldurs. Í viðtalinu við Pressuna árið 2015 sagðist Ari ekki hafa brotið af sér eftir að hann hélt út í lífið að nýju en fortíðin fylgir honum hvert skref. Hann flutti til Bandaríkjanna í kringum árið 2002 þar sem hann er búsettur í dag. „Að hafa tvö líf á samviskunni er mjög erfitt. Það er ekki hægt að lýsa því. Hver sem er náinn mér eða í nánu sambandi við mig þarf að vita sögu mína. Þú getur ímyndað þér hvernig það er fyrir mig að segja fólki sem ég elska að ég hafi drepið börn,“ sagði Ari í viðtali við Pressuna árið 2015. Afsökunarbréf frá Ara Í kjölfarið á ítarlegri umfjöllun Pressunnar um málið árið 2014 sendi Ari mæðrum drengjanna, þeim Bjarnheiði Ragnarsdóttur og Sólveigu Austfjörð Bragadóttur, opið bréf þar sem hann baðst af- sökunar á gjörðum sínum. „Kæra Sólveig og Bjarnheiður. Það sem mig hefur langað að segja er að, já það er rétt að ég átti mjög erfitt sem krakki og já, það hefði átti að grípa inn í mörgum árum fyrr, en það breytir ekki því að ég er ábyrg- ur fyrir dauða barnanna ykkar. Ég hef aldrei ætlast til þess af neinum að fyrirgefa mér á þeim forsend- um að ég hafi átt erfiða æsku, heldur frekar á þeim forsendum að ég er betri maður í dag,“ skrif- aði Ari meðal annars í bréfinu sem vakti töluverða athygli. Bréfið fór fram hjá Sólveigu á sín- um tíma og það var ekki fyrr en DV rifjaði málið upp fyrr í sumar sem hún las það. Hún segir erfitt að lýsa tilfinningum sínum eftir lesturinn. „Hann var auðvitað bara barn á þessum tíma og ég hef alltaf litið svo á að allir eigi rétt á því að lifa. Líka Ari.“ Ofsótt af barnavernd og Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum Sólveig fékk hvorki áfallahjálp né fjárhagsaðstoð eftir að syni hennar var drekkt: „Barnið mitt var myrt í skóla á þeirra vegum“ „Hvar er réttlætið? Af hverju var ekki réttað yfir fólkinu sem bar ábyrgð á þessu? „Ég er ekki að tala um Ara, hann var veikur krakki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.