Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 46
46 21. sept 2018LÍFSSTÍLL - KYNLÍF
Hæ Ragga
Ég er tæplega fimmtugur karl-
maður í hjónabandi með
nokkrum árum yngri konu. Ólíkt
því sem mér virðist normið hef
ég aldrei verið konu minni ótrúr.
Raunar finnst mér svo algengt að
vinir mínir trúi mér fyrir hliðar-
sporum, að ég er farinn að halda
að ég sé sá óeðlilegi. Í fyrri sam-
böndum mínum var ég ekki held-
ur ótrúr.
Við konan stundum kynlíf einu
sinni eða tvisvar í viku. Mér finnst
það fínt en hún talar stundum um
að við þurfum að taka okkur á og
gera það oftar. Ástin milli okkar
er mikil, við erum bestu vinir og
gerum nánast allt saman. Ég vil
gera allt til að henni líði vel og má
ekki til þess hugsa að ég fullnægi
henni ekki kynferðislega. Upp á
síðkastið hef ég spáð í að kannski
muni hún leita annað ef ég er ekki
nóg fyrir hana, án þess að hafa
nokkra ástæðu til að gruna hana
um að svíkja mig. Það þarf varla
að taka fram að við erum ekki í
opnu sambandi eða neitt þannig.
Kæra Ragga, hvernig get ég
gagnast elsku konunni minni bet-
ur?
Með kveðju,Jóhannes
Kæri Jóhannes
Já kannski ertu undantekningin
– í það minnsta ertu af sjaldgæfri
tegund, svo algengt virðist að fólk
gangi á bak orða sinna hvað sam-
bandssamninga varðar. Gildir þá
einu hvort sambönd eru opin
eða harðlokuð og læst – svik eru
alltaf svik hvernig svo sem samn-
ingar kunna að vera. Húrra fyrir
þér og húrra fyrir því að hafa í
heiðri tilfinningalega samninga.
Spurningin um hversu oft sé
passlegt að njóta ásta ber oft á
góma. Ég þori næstum að full-
yrða að allir sem hafa tekið þátt
í langtímaparasamböndum hafa
á einhverjum tímapunkti upp-
lifað misræmi í kynlöngun sinni
og mótaðilans. Að auki er þörf
einstaklinga fyrir kynlíf ekki
stöðugt fyrirbæri heldur sveiflu-
kennt eins og hafið, tunglið og
náttúran … þó ekki jafn fyrirsjá-
anleg. Þegar tveir einstaklingar
ákveða að vera í sambandi hvor
með öðrum, og engum öðrum,
er þetta eitt af verkefnunum
sem þarf að leysa sómasamlega
svo öllum líði vel.
Samkvæmt rannsóknum
stunda hjón þar sem aðilar eru
af tveimur kynjum kynlíf saman
(ég segi hér saman því kynlíf
má líka stunda einn) allt frá því
nokkrum sinnum í mánuði upp
í nokkrum sinnum í viku. Töl-
ur eru svipaðar fyrir karlkyns
hjón, en öllu lægri ef báðir aðil-
ar hjónabandsins eru kvenkyns.
Þú spyrð hvað þú getir gert til
að gagnast konunni þinni bet-
ur. Ég spyr hvaða sönnunar-
gögn þú hefur fyrir því að þú
gagnist henni ekki prýðilega?
Hana langar oftar í þig, sem er
vissulega vísbending um að
hún kunni vel við kynlífið sem
þið stundið. Ég er viss um að
þú getir stutt hana til að fá þá
auknu kynferðislegu útrás sem
hún þráir, án þess endilega að
þú vinnir í því að hífa þína eigin
kynlöngun upp á hennar plan.
Misræmi verður alltaf til og því
þarf að lifa með. Mér finnst að
þú ættir frekar að hvetja hana
til meira kynlífs með sjálfri sér –
SJÁLFSFRÓUNAR! Kannski vill
hún leyfa þér að horfa á, jafnvel
halda utan um hana á meðan.
Þá ertu þátttakandi án þess að
vera beinlínis virkur. Auðvitað
að því gefnu að þú sért til í það
og njótir þess líka. Skrepptu í
leikfangaverslun fyrir fullorðna
og veldu handa henni fallegan
titrara … haltu áfram að vera
hugulsamur og ljúfur eiginmað-
ur – þannig finnur hún ást þína,
og fallega innpakkaður titrari
gefur henni rækileg skilaboð
um að þú berir hennar kynferð-
islegu velferð fyrir brjósti.
Gangi þér vel!
Ragga
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com
Hversu oft er nógu oft?