Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Qupperneq 49

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Qupperneq 49
4921. september 2018 Þorvaldur afplánaði ekki þegj­ andi og hljóðalaust. Innan múra skrifaði hann greinar um ástand réttarkerfisins hér á landi sem hon­ um fannst bagalegt. Betrun væri engin, litið væri á fangana sjálfa eins og svín og ekkert væri hug­ að að andlegri heilsu þeirra. Sjálf­ ur sneri hann sér að listmunagerð, leirkeragerð og bókbandi. Hannaði hann til dæmis verk úr sígarettu­ pökkum sem átti að túlka íslenska réttar kerfið. Umdeildur lögmaður Árið 1975 var Þorvaldur kominn úr fangelsinu og á fjögurra ára skilorð. Um tíma vann hann verkamanna­ vinnu og lærði bókasafnsfræði. Tveimur árum síðar fór hann aftur að starfa í tengslum við lögfræði og árið 1980 fékk hann full lögmanns­ réttindi að nýju eftir úrskurð Saka­ dóms Reykjavíkur. Það var á með­ al síðustu embættisverka Kristjáns Eldjárns, forseta Íslands, að veita honum uppreist æru þann 3. júlí það ár. Bæði Lögmannafélagið og dómsmálaráðuneytið veittu já­ kvæða umsögn fyrir því að Þor­ valdur fengi réttindin að nýju en úrskurðurinn var þó ekki óum­ deildur. Þórður Björnsson, þá ríkis­ saksóknari, fékk hann í hendur og kærði til Hæstaréttar. Um miðjan október staðfesti Hæstiréttur úr­ skurðinn og mánuði síðar flutti Þorvaldur mál fyrir sama rétti, tæpum fjórtán árum eftir að hann myrti fyrrverandi eiginkonu sína. Þorvaldur var síður en svo lítið áberandi og óumdeildur í þjóð­ félagsumræðunni síðustu árin og beitti sér á hinu pólitíska sviði. Árið 1986 var umræða um að vísa honum úr Lögmannafélaginu eftir að hann kallaði Jón Skaftason yfir­ borgarfógeta „keyptan kommún­ ista“ og árið 1990 var hann kærð­ ur fyrir fjárdrátt frá umbjóðanda sínum. Það sama ár vildi Þorvald­ ur á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðurlandskjördæmi vestra en flokksforystan lagði ekki í prófkjör. Hann lést árið 1996. Mál Atla Helgasonar Mál Þorvaldar Ara hefur verið sett í samhengi við mál annars lög­ manns, Atla Helgasonar, sem mik­ ið hefur verið í umræðunni undan­ farin ár. Atli var dæmdur fyrir morðið á Einari Erni Birgissyni, fé­ laga sínum, sem framið var með hamri í Öskjuhlíðinni 8. nóvember árið 2000. Hann hlaut sextán ára fangelsisdóm og missti lögmanns­ réttindi sín en var kominn á Vernd níu árum eftir uppkvaðningu. Árið 2014 greindi DV frá því að Atli væri hluthafi í lögmannsstof­ unni Versus og ári síðar fékk hann uppreist æru hjá forseta. Rétt eins og Þorvaldur vildi hann fá réttindin aftur og sótti um þau árið 2016. Þegar taka átti málið fyrir í Héraðs­ dómi Reykjavíkur hætti hann hins vegar snögglega við og sagði að starfsréttindi sín væru minna virði en þjáningar aðstandanda Einars. En þá hafði Lögmannafélagið lagst gegn því að Atli fengi réttindin að nýju. Eftir að barnaníðingurinn Ró­ bert Downey fékk sín lögmanns­ réttindi endurheimt árið 2017 ákvað Atli að sækja um á nýjan leik. Í máli Downeys hafði kom­ ið fram að umsögn Lögmannafé­ lagins væri óþörf ef félagið hefði ekki komið beint að sviptingu. Vor­ ið 2018 fékk Atli því réttindin sam­ þykkt fyrir Héraðsdómi Reykjavík­ ur. Þegar málið kom til Landsréttar var umsókninni hins vegar synjað í ljósi þess að Atli hafði orðið gjald­ þrota og ekki áunnið sér traust sem lögmenn verða að njóta. n TÍMAVÉLIN Kaldunnin þorsklifrarolía Íslensk framleiðsla 120/180 60 220 ml Dropi af náttúrunni „Fyrir mér er Dropi heilindi og lífsorka” Fyrstu umferðarljósin í bænum H austið 1949 voru umferðar ljós sett upp hér á landi í fyrsta skipti enda bifreiðaeign landsmanna að aukast jafnt og þétt. Var ljós­ unum komið fyrir á fjórum fjöl­ förnustu gatnamótum í miðbæ Reykjavíkur. Þann 8. nóvember var ljós­ unum komið fyrir. Sigurjón Sig­ urðsson lögreglustjóri og Einar B. Pálsson verkfræðingur fylgdust vel með á gatnamótum Lauga­ vegar og Skólavörðustígs. Margir vegfarendur hópuðust einnig að. Voru ljósin talin „hin sann­ gjörnustu og stöðva engan leng­ ur en bráðnauðsynlegt er til að viðhalda góðri reglu á um­ ferðinni“ eins og segir í frétt Morgunblaðsins. Var brýnt fyrir öllum ökumönn­ um að fylgja götuvitunum skilyrð­ islaust. Undan því voru þó þegn­ ir slökkviliðsbílar, lögreglubílar og bifhjól. Í Vísi sagði: „Annars er mikil prýði að ljós­ unum, er rökkva tekur, þau setja nýjan og skemmtilegan svip á bæinn, og óhætt er að fullyrða, að menn myndu sakna þeirra, er þau hyrfu.“ n Vessa- og hægða- sprengja í Kirkjuhúsi G estum Listahátíðar árið 1998 stóð ekki á sama þegar brestir komu í gler­ listaverk sem innihélt meðal annars saur, þvag og ann­ an líkamlegan úrgang. Verkið, sem var geymt í Kirkjuhúsinu, sprakk og loka þurfti búðinni í marga daga. „Þetta var flaska sem sat í svampi. Það var verið að færa verkið til þegar það skemmdist,“ sagði Jón Proppé, ritstjóri Art. is, í samtali við DV 9. júní árið 1998. „Það segir sig auðvitað sjálft að ef svona flaska opnast kemur fýla. Ég held samt að all­ ir starfsmenn Kirkjuhússins séu nokkuð heilir.“ Umrætt verk hét „Tikk Takk“ og var eftir listaparið Ólaf Árna Ólafsson og Libiu Perez de Siles de Castro. Sýningin bar heitið „Flögð undir fögru skinni“ og var í Nýlistasafninu og fjórtán verslunargluggum á Laugaveg­ inum. Ólafur og Libia voru bú­ sett í Hollandi og fluttu verkið sérstaklega til landsins fyrir sýn­ inguna. Biskup beðinn afsökunar Verkið var gert úr öllum hugsan­ legum mannlegum vessum og úrgangi, svo sem hægðum, hlandi, blóði, tíðablóði, tárum, svita og hori og geymt í tíu lítra formalínskrukku. Áhorfend­ ur og starfsmenn Kirkjuhússins hafa þó kannski ekki áttað sig á úr hverju verkið var því það var ekki auglýst sérstaklega. Fýlan, þegar flaskan sprakk eftir viku­ setu í Kirkjuhúsinu, leyndi sér þó ekki. „Hvað eruð þið búin að láta okkur fá?“ spurði yfirmaður Kirkjuhússins, Hannes Sigurðs­ son, sem sá um sýninguna. Hafði starfsfólk þar talið að hinn mannlegi úrgangur væri rusl en ekki vessar og hægðir. Hannes mætti á svæðið og sagði Frétta­ blaðinu frá því: „Ég kom þarna inn og hef aldrei á ævi minni fundið aðra eins lykt og þá sem steig upp eftir allri byggingunni og upp í biskupsstofu. Þetta var lykt frá helvíti.“ Það þurfti að kalla til hreinsiteymi í sérstökum bún­ ingum til að þrífa óþverrann upp og loka þurfti búðinni í viku. Hannes gekk svo á fund Karls Sigurbjörnssonar biskups með blómvönd og gjöf og baðst innilegrar afsökunar. n Kvisthagi 25, Alþýðublaðið 8. janúar 1967 DV 11. maí 1988
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.