Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 56
56 21. sept 2018 D onald hét maður, Neilson. Hann var breskur og fæddist 1. ágúst 1936. Ættar nafn hans var Nappey, en hann breytti því síðar af ástæðum sem vikið verður að síðar. Bernska Donalds var víst ekki hamingjurík. Móður sína missti hann í klær krabbameins árið 1947, er hann var 10 ára að aldri. Ári síðar var hann gripinn glóð- volgur við búðarhnupl, en sök- um ungs aldurs var látið nægja að veita honum viðvörun. Þegar Donald var 18 ára kvænt- ist hann Irene Tate, sem var tveim- ur árum eldri en hann, og taldi hún hann á að segja skilið við breska herinn, sem hann þjónaði í á þeim tíma. Nappey verður Neilson Árið 1960 eignuðust Donald og Irene dóttur, Kathryn. Þegar Kathryn var fjögurra ára tók Donald upp ættarnafnið Neilson. Sagan segir að Donald hafi viljað forða dóttur sinni frá einelti á borð við það sem hann upplifði í skóla og í hernum vegna ættarnafns- ins Nappey, sem líktist óþægilega mikið orðinu „nappy“, sem þýðir bleyja á ensku. Nafn fengið af ísbíl Samkvæmt einni kenningu varð Neilson fyrir valinu sem ættar- nafn eftir að Donald keypti leigu- bifreiðafyrirtæki af manni sem hét Neilson. Önnur kenning er sú að Donald hafi fengið hugmyndina að Neilson af ísbíl sem bar nafnið en Donald og Irene keyptu oft ís handa dóttur sinni í umræddum ísbíl. Þetta skiptir þó engu máli í sambandi við framvindu sögunn- ar. Ruglaði lögregluna í ríminu Donald gerðist umsvifamikill inn- brotsþjófur í árdaga glæpaferils síns. Hann komst upp með yfir 400 innbrot og fékk hin ýmsu viðurnefni, meðal annars Vofan og Handlagni Andy (Handy Andy). Á nokkurra vikna fresti breytti hann innbrotsaðferð sinni og tókst með því að rugla lögregluna í rím- inu. Til dæmis átti hann það til að stela útvarpi úr hverju því húsi sem hann braust inn í, útvarpið skildi hann síðan eftir skammt frá húsinu. Þegar hann hafði þannig skapað mynstur lét hann af þeirri venju og tók upp einhverja nýja og ólíka. Úr innbrotum í vopnuð rán Eitthvað fannst Donald afrakstur innbrota sinna vera rýr og eftir að hann kom höndum yfir byssur og skotfæri í einu húsi ákvað hann að snúa sér að ránum. Lítil pósthús urðu fyrir valinu hjá Donald og á árunum 1971 til 1974 lét hann til skarar skríða í 18 slíkum. Samhliða þessari þróun varð Donald ofbeldisfyllri. Í febrúar 1972 braust hann inn í pósthús í Heywood í Lancashire í húmi nætur. Í sama húsi bjuggu pósthússtjórinn, Leslie, og eigin- kona hans. Leslie ákvað að takast á við hinn óboðna næturgest á með- an kona hans hefði samband við lögregluna. Komst tómhentur undan Leslie og Donald tókust á og Donald sýndi Leslie hlaupsagaða haglabyssu. „Hún er hlaðin,“ urraði hann. Þar sem hlupið beindist upp í loftið ákvað Leslie að láta á það reyna. „Við skulum sjá hvort hún er hlaðin,“ sagði hann og tók sjálf- ur í gikkinn og viti menn, höglin skildu eftir sig stærðar gat í loftinu. Þeir tókust á áfram og Leslie tókst að rífa lambhúshettuna af Donald sem svaraði með því að brjóta nokkrar tær á Donald og sparka í klofið á honum. Donald komst, tómhentur, undan og Leslie gat seinna gefið lögreglu lýsingu á innbrotsþjófnum. Svarti pardusinn Fyrstu þrjú morð sín framdi Don- ald árið 1974. Í pósthússránum skaut hann til bana tvo póstmeist- ara og eiginmann pósthússstýru; Donald Skepper, útibústjóri í Harro gate, í febrúar, Derek Astin, útibústjóri í Baxenden, í septem- ber, og Sidney Grayland í Langley, í nóvember. Þeagr rætt var við ekkju Dereks, Marion, í sjónvarpsviðtali lýsti hún ódæðismanninnum á þann veg að „hann væri svo snar að hann væri eins og pardusdýr“ og hann hefði verið svartklæddur frá 1990 glímdi spánska konan Francisca Ballesteros við fæðingarþunglyndi. Hún vildi binda endi á hjónaband sitt en lét þá nægja að myrða fimm mánaða dóttur sína með eitri. Hún ákvað síðan að bíða með að fyrirkoma eiginmanni sínum, eldri dóttur og syni. Francisca lét til skarar skríða 12. janúar, 2004, og sendi mann sinn yfir móðuna miklu með eitri. Þann 4. júní, sama ár, biðu 15 ára dóttur Franciscu sömu örlög. Tólf ára sonur Franciscu slapp með skrekkinn eftir að hafa komist undir læknishendur með alvarleg einkenni eitrunar. Francisca var dæmd til 84 ára fangelsisvistar árið 2005. SVARTI PARDUSINN n Donald Neilson hóf glæpaferil sinn með innbrotum n Síðan stundaði hann pósthúsrán n Hikaði ekki við að beita byssunni „Við skulum sjá hvort hún er hlaðin,“ sagði Leslie og tók sjálfur í gikkinn. Eftir handtökuna Tilviljun réð því að Donald Neilson var handtekinn. SAKAMÁL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.