Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Side 62
62 FÓLK 21. sept 2018
Á
huginn á fötum byrjaði
þegar ég fermdist,“ segir
Helgi, sem saumaði þá
sína fyrstu flík með aðstoð
ömmu sinnar, bol og buxur. „Það
er skemmtilegt að geta sagt að ég
hafi saumað fötin mín sjálfur.“
Fyrir ári fór Helgi til Los
Angeles og lærði að handsmíða
skó hjá Dominic Ciambrone, sem
kallar sig The Shoe Surgeon. „Ég
var búinn að vera mikill aðdá-
andi hans í svona ár og sá að hann
var reglulega að auglýsa nám-
skeið í Bandaríkjunum og það
var draumur minn að fara,“ segir
Helgi. „Ég sagði foreldrum mínum
frá því og mamma sagði mér bara
að skrá mig, þrátt fyrir að ég hefði
ekki hugmynd um hvernig ég ætti
að borga námskeiðið.“
Helgi fór þá leið að óska eftir
styrkjum í sínu nærsamfélagi, en
hann er búsettur í Garði. Fjöldi
fyrirtækja og einstaklinga styrkti
hann til fararinnar, og einnig núna
í haust þegar hann fór á sitt annað
námskeið, í þetta sinn til New
York. „Mig langar að þakka fjöl-
skyldu, vinum og styrktaraðilum
fyrir að standa við bakið á mér.
Í fyrra skiptið var ég að hand-
smíða Stan Smith-skó frá grunni.
Þá kviknaði áhuginn fyrir alvöru,
þetta er erfitt, krefjandi og
skemmtilegt á sama tíma. Ég
keypti til dæmis Michael Kors-
tösku í Orlando og smíðaði skó
úr henni. Í seinna skiptið var ég
að handsmíða Air Jordan 1-skó,“
segir Helgi, sem segir þó fata-
hönnunina vera í fyrsta sæti, þótt
gaman væri að læra skósmíðina
frekar líka.
„Ég var í 40 klukkutíma með
þetta skópar, en núna mætti
reikna með að ég sé 30–35
klukkutíma,“ segir Helgi.
30 manns voru á námskeiðinu
og aðeins nokkrir sem eru ekki
búsettir í Bandaríkjunum; einn
frá Japan, tveir frá Frakklandi og
síðan Helgi. Fáar konur voru í
þetta sinn, en fólk á öllum aldri,
sá elsti var yfir fimmtugt og
Helgi yngstur ásamt einum jafn-
aldra.
En af hverju ætti fólk að
kaupa sérhannaða skó frekar
en fjöldaframleidda?
„Það er svo mikil vinna í að
smíða eitt skópar, þú sérð 40
klukkutímar í stað 30 mínútna
þegar um er að ræða fjölda-
framleidda skó. Þeir eru fram-
leiddir í vélum, en hjá okkur
með höndum, eina vélin sem
við notum er saumavél þannig
að gæðin eru margfalt betri og
vinnan töluvert meiri og líka
skemmtilegra að eiga skó sem
eru handsmíðaðir og enginn ann-
ar á,“ segir Helgi. Lærimeist-
arinn Dominic smíðar sína
skó út í ákveðnum fjölda
og þá eru þeir allir hand-
smíðaðir frá grunni.
Air Jordan-skórnir sem
Helgi smíðaði í haust keppa
nú í netkeppni á vegum
skólans og eru verðlaunin
vegleg: skórnir sem vinna
fara í framleiðslu hjá
Dominic. „Þetta er nýtt.
Allir sem vildu taka þátt
í keppninni sendu inn
skóna sína og síðan
er netatkvæða-
greiðsla, sem all-
ir geta tekið þátt
í,“ segir Helgi sem
langar í skóla úti að stúd-
entsprófinu loknu og halda áfram
að læra fatahönnun. n
„Það hefur verið týnt tímabil
í lífi mínu. Mjög týnt. Ég iðrast.“
Ef þú þyrftir að eyða einni milljón á
klukkutíma, í hvaða verslun færir
þú? Ég held að Elko kæmi sér vel. Gæti
auðveldlega rölt þar um í klukkutíma og
náð upp í millu.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir að
hafa haldið upp á? Sem unglingur hélt ég
í skamma stund upp á þýsku þungarokks-
hljómsveitina Helloween. Þeir eiga bara
slæm lög. Það hefur verið týnt tímabil í lífi
mínu. Mjög týnt. Ég iðrast.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
Schindler’s List. Án gríns. Eina myndin sem
ég hef farið þrisvar sinnum á í bíó.
Sex ára barn spyr þig hvort jólasveinn-
inn sé til. Hvernig svarar þú? Ehh, já!
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? Þú varst ekki maður
með mönnum nema þú ættir Millet-úlpu.
Það voru til bleikar, rauðar og bláar. Ég
átti bláa.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? Fóst-
bræðrum. Tímamótaklassík sem breytti
íslenskum húmor.
Borðar þú mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Ekki séns. Hef heyrt að
það sé bráðdrepandi.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? „Það
er bara þannig.“
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að
hætta? Að reykja.
Hverju laugstu síðast? Að mér þætti
erfitt að hætta að reykja. Hef aldrei reykt.
Hvað er það merkilegasta sem hefur
gerst í heiminum á þínum líftíma? Held
að internetið skori nokkuð hátt á þeim
lista. Hefur heldur betur minnkað heiminn.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að
hafa misst af? Metallica-tónleikunum í
Egilshöll.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við
hæfi að breyta í söngleik? Sódóma
Reykjavík uppfull af 90’s tónlist yrði snilld
og myndi slá í gegn.
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Þegar ég vann á valtara í eitt sum-
ar. Einmanalegustu mánuðir lífs míns.
Um hvað varstu alveg viss þangað til
þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir
þér? Hefur aldrei hent mig. Sorrí.
Ef þróunarkenningin er rétt, af hverju
eru svín þá ekki með vængi? Nákvæm-
lega! Hver samdi þessar spurningar
eiginlega? Hringið í Nobel!
Hvað er framundan um helgina? Þarf að
passa upp á ykkur alla helgina, þannig að
verið þið þæg.
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, hefur vakið
athygli á samfélagsmiðlum fyrir ákveðnar skoðanir sínar, bæði hvað
varðar löggæsluna í landinu, sem og aðra þjóðfélagsumræðu. Biggi gaf
sér tíma á frívaktinni til að sýna lesendum DV á sér hina hliðina.
HIN HLIÐIN
Skór Helga keppa um að komast í framleiðslu
Helgi Líndal er 17 ára nemandi í fatahönnun við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann hefur brennandi
áhuga á fötum og skóm og hefur farið tvisvar til
Bandaríkjanna að læra skósmíði hjá virtum skó-
hönnuði. Skórnir sem hann smíðaði keppa nú í net-
keppni um að komast í framleiðslu.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is