Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Page 4
4 Ljósmæðrablaðið - desember 2014
Stórt og mikið blað er nú komið á koppinn,
ljósmæður eru duglegar að senda inn efni til
birtingar í blaðið, bæði ritrýndar greinar og
fræðslugreinar. Tvær ritrýndar greinar eru í
blaðinu, er það frábært í okkar litla ljósmæðra-
samfélagi að við náum að gefa út fagtímarit
tvisvar á ári með ritrýndum greinum.
Axlarklemma er bráðaatvik sem orðið getur í
fæðingu og oftast án þess að gera boð á undan
sér. Mikilvægt er að fagfólk sem starfar við
fæðingar hafi góða faglega og verklega þekk-
ingu til að takast á við slíkt. Í blaðinu er ritrýnd
grein um þetta viðfangsefni. Af frásögnum ljós-
mæðra sem þátt tóku í rannsókninni má álykta
að þær séu úrræðagóðar og með mikla þekk-
ingu og færni í að takast á við axlarklemmu í
fæðingu. Engu að síður hafa þær upplifað streitu
og andlegt og líkamlegt álag í kjölfar slíkra
atburða. Á Landspítalanum eru skipulagðar
bráðaæfingar í fæðingarhjálp, kallað PROMT,
kynning á þeim er í blaðinu. Allir sem vinna við fæðingarhjálp á
Landspítala þurfa að fara á þessar bráðaæfingar einu sinni á ári, þar
er meðal annars farið yfir viðbrögð við axlarklemmu og er mikil-
vægt að samhæfa og æfa rétt verklag.
Til langs tíma hefur ekki verið einhugur um skilgreiningu of
lágs blóðsykurs hjá nýburum og engar leiðbeiningar verið til um
eftirlit með blóðsykri nýbura á kvenna- og barnasviði Landspít-
ala. Ákvörðun um mælingu blóðsykurs hjá nýbura ætti að byggja
á nákvæmu mati á heilsufari móður á meðgöngu, gangi fæðingar
og ástandi barns með tilliti til áhættuþátta og einkenna blóðsykurs-
lækkunar. Í blaðinu er ritrýnd grein um blóðsykursmælingar hjá
nýburum. Í niðurstöðum greinarinnar kemur fram að nauðsyn sé
á leiðbeiningum, sem byggðar eru á gagnreindri þekkingu, til að
styðja við klíníska ákvarðanatöku hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og
lækna og draga þannig úr bæði of- og vangrein-
ingu lágs blóðsykurs hjá nýburum. Skilgreina
þarf aðgerðarmörk of lágs blóðsykurs í þeim
tilgangi að draga úr breytileika í ákvarðanatöku
og auka þannig gæði þjónustu við nýbura og
foreldra þeirra.
Dr. Dennis Walsh, ljósmóðir frá Bretlandi,
kom til landsins í október sl. til að hafa fræðslu-
dag fyrir starfsfólk fæðingarvaktar á Landspít-
ala. Megin þema dagsins var hvernig á að
standa vörð um eðlilegar fæðingar. Hann lagði
mikla áherslu á að konur hefðu góðan aðgang
að baði í fæðingunni og hann hvatti okkur til að
reyna að hafa hana sem náttúrulegasta þrátt fyrir
einhver inngrip, eins og gangsetningar. Hann
talaði um að ljósmæður þyrftu að hlusta á sitt
innsæi, en í dag getur það stangast á við verk-
lagsreglur. Hann talaði um að ljósmæður þyrftu
að vera sveigjanlegar í sínum störfum, því engin
kona er eins.
Íslenskar ljósmæður hafa verið í útrás, kannski aldrei meira en á
þessu ári sem er að líða, gaman er að lesa sögu Ólafíu sem var að
vinna í Hong Kong í rúmt ár. Hugleiðingar að þessu sinni eru frá
nokkrum ljósmæðrum sem hafa farið til Noregs til að vinna á vegum
starfsmannaleigu. Greinilegt er, að þó að fæðingar séu ekkert öðru-
vísi en á Íslandi, þá þarf að setja sig inn í heilmikið í kringum þær,
eins og tölvukerfi, tungumálið og tæki og tól á deildunum. Það má
segja að útrásin sé ekki einungis á erlendri grundu því tvær ljós-
mæður tóku við rekstri 9 mánaða á þessu ári. Í haust voru þær með
opið hús til að kynna starfsemina. Fjölbreytt starfsemi er hjá þeim
Guðrúnu (Gúu) og Elínu Örnu og verður spennandi að fylgjast með
þeim í framtíðinni.
Ég óska ljósmæðrum og öðrum lesendum blaðsins gleðilegrar
jólahátíðar og farsældar á nýju ári.
Ritstjóraspjall
Hrafnhildur Ólafsdóttir
ritstjóri Ljósmæðrablaðsins
R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L
Ljósmæðrafélag Íslands óskar öllum ljósmæðrum og fjöskyldum
þeirra, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum þeim fjölmörgu
ljósmæðrum sem unnið hafa óeigingjarnt starf fyrir félagið.
Með kærri kveðju - Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands