Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Side 31
31Ljósmæðrablaðið - desember 2014
samantektar um val á fæðingarstað og þar kemur alveg skýrt fram
að tíðni eðlilegra fæðinga er hærri á ljósmæðrareknum einingum eða
í heimafæðingum. Ég virði, þrátt fyrir það, ákvarðanir ykkar. Þið
hafið ykkar ástæður til að gera þetta svona. En helsta áskorun ykkar
þegar þið blandið deildunum saman er að leggja áherslu á eðlilegar
fæðingar. Þetta er ekki stór deild. Margar rannsóknir sýna að þegar
fæðingardeildir eru mjög stórar, þá gangi síður að viðhalda eðlilegu
fæðingarferli, en ef deildin er með færri en 3.000 fæðingar á ári, þá
eru fleiri tækifæri og meiri styrkur til að halda í eðlilegt ferli. Þetta er
ekki eins og verksmiðja, þetta er persónulegt. Þið getið unnið saman
í teymi en þetta er mikil áskorun fyrir ykkur. Við skulum vona að þið
verði eða verðið fyrsti staðurinn sem sýnir að þetta sé hægt.
Getur þú gefið okkur einhver ráð?
Á þessum tveimur dögum sem við höfum verið hérna saman þá
tók ég eftir einu jákvæðu. Það komu tveir fæðingarlæknar sem segir
mér að bæði ljósmæður og læknar hafa skilning á mikilvægi þess að
viðhalda eðlilegum fæðingum. Eins og annar læknirinn sagði: „Við
erum ekki svo ólík, við viljum það sama“. En þið verðið að vera mjög
einbeitt og skuldbundin eðlilegum fæðingum. Ekki hagræða lífeðlis-
fræðinni hjá konum með áhættuþætti.
Svo hvernig farið þið að þessu? Í fyrsta lagi skuldbindið þið ykkur
sömu hugmyndafræðinni og í öðru lagi þurfa ljósmæðurnar að hafa
trú á eðlilegum fæðingum svo að læknar verði ekki kallaðir til. Þú
kallar bara í þá ef þörf er á. Þú reynir að vernda eðlilegar fæðingar
þó að þið vinnið á sama svæði. Þið verðið að mæla og þið eruð að
gera það. Þið verðið að halda utan um tölfræðina sem segir ykkur
að þið séuð að ná markmiðunum, ég veit að þið eruð að gera það að
einhverju leyti. Ég myndi hvetja ykkur til að mæla einnig fæðingar-
stellingar, nálastungur, hypnobirth, vatnsbólur, nudd, eða þær aðferðir
sem eru til þess fallnar að lækka tíðni mænurótardeyfinga. Eftir þessa
tvo daga finnst mér að þið þurfið að undirbúa konur á meðgöngu, efla
foreldrafræðslu, ræða fæðingaráætlun við þær, því það er gott fyrir
þær að byrja að plana fæðinguna, þá er þetta þeim efst í huga. Held að
óskin um mænurótardeyfingu sé mikil áskorun fyrir ykkur, þið eruð
með háa tíðni hér á landi.
Þú talaðir um sveigjanleika til að aðstoða konur í áhættufæðingu
til að fæða eðlilega, styðja við eðlilegt ferli eins og hægt er, segðu
okkur frá því.
Ég held að þó að konan þurfi að fá vissa meðferð, lyf eða gangsetn-
ingu, sé samt mikilvægt að reyna að styðja eðlilegt fæðingarferli. Það
sem ég sting upp á til að hjálpa til við það er góður aðgangur að baði.
Fæðing í vatni hefur marga kosti fyrir konur, hún dregur úr epidural
tíðni, eykur líkur á/styður við upprétta stellingu, býr til næði eða
ákveðna friðhelgi í herberginu. Konan er við stjórn, því hún er í vatn-
inu og það ver hana fyrir því að ljósmóðirin geri eitthvað við hana.
Svo ég held að það séu margir kostir við að stuðla að vatnsfæðingu
fyrir konur í áhættumeðgöngu. Ég myndi líka hvetja ykkur til að
rannsaka betur vatnsfæðingar, ég held að þið séu ekki að gera mikið
af því. Þið ættuð að íhuga það af því ég tel að hún verndi spöngina.
Ég veit að þið eruð með sérstakt átak hér um verndun spangarinnar,
en ég tel að heildarsýnina skorti ef þið rannsakið ekki vatnsfæðingar
sérstaklega. Þetta er eitthvað sem þið getið gert fyrir þennan hóp.
Mælir þú með lífeðlisfræðilegri fæðingu á 3ja stigi fæðingar, þ.e.
að fylgjan fæðist í baðinu?
Já, það er í lagi, í Englandi er engin ákveðin regla. Eitt af því sem
er gott við það er að þegar barnið er fætt er vatnið heitt, móðirin
heldur á barninu, jafnvel með það á brjósti. Það er þægilegt og gott
því umhverfið er gott. Því er það synd að biðja konuna að koma upp
úr baðinu og trufla þessa stund. Það er hægt að fæða fylgjuna í vatn-
inu. En það gildir bara fyrir þær konur sem eru með eðlilegt fyrsta og
annað stig fæðingar. Annað gildir fyrir konur sem eru með einhverja
fylgikvilla. En fyrir konur sem eru í eðlilegri meðgöngu þá ætti þetta
að vera í boði.
tíma rakadrægniAllt að
Pampers leggur mikla áherslu á vöruþróun, með það að markmiði að bjóða bestu
bleiu sem foreldrar geta valið fyrir börnin sín. Pampers hefur þróað nýtt og
stærra yfirlag á bleiurnar sem dregur bleytu hraðar frá viðkvæmri húð barnsins.
Húðin helst þurr og barnið getur sofið ótruflað lengur.
Pampers bleiur hafa nú fengið viðurkenningu fyrir gæði
frá Skin Health Alliance, óháðum samtökum húðlækna
sérfræðinga og vísindamanna á því sviði.