Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Síða 38
38 Ljósmæðrablaðið - desember 2014
þær að hafa minnst eins árs starfsreynslu í heimalandinu. Ákveðið var
að stjórn NJF sendi ráðherranefnd Norðurlandasamtakanna bréf þar
sem bent væri á að menntun landanna sé mjög lík og samstarfssamn-
ingur milli landanna hafi verið í gildi. Þetta skjóti því skökku við og
samræmist heldur ekki EU-regluverkinu.
Vinnulag á stjórnarfundum NJF
Tillaga kom fram frá finnska ljósmæðrafélaginu að á fundunum
væri lögð áhersla á eitt eða tvö málefni sem væri mikilvægt fyrir
alla. Mikill tími hefur farið í umfjöllun um skýrslur landanna sem
flestum finnst afar mikilvægt. Aftur á móti vill brenna við að mætt sé
á fundina án þess að hafa kynnt sér vel skýrslur landanna sem eiga
að berast minnst fjórum vikum fyrir fundinn. Einnig var rætt enn
einu sinni að gott væri að ályktun eða fréttatilkynning færi frá öllum
aðildarlöndunum að fundi loknum þar sem fram kæmi það sem hæst
bar í umræðunum.
Ýmis önnur mál voru rædd á fundinum og eitt margra mála var
umræða um hversu löng vinnuvika er hjá ljósmæðrum sem vinna
fulla vinnu í löndunum:
Danmörk: 37 tímar (hægt er að taka kvöld- og næturvaktarálag út í
fríum sem þýðir þá 30‒32 stunda vinnuvika. Hádegishlé
er innifalið.
Finnland: 38,15 stundir eða 114 klst. og 45 mín. á þremur vikum ef
unnin er vaktavinna.
Færeyjar: 40 stundir, óháð því hvor unnin er vaktavinna eða ekki.
Hádegishlé er innifalið.
Ísland: Sama og í Færeyjum.
Noregur: 37,5 stundir (hádegishlé innifalið) ef ekki er unnin vakta
vinna. 35,5 stundir ef unnar eru þrískiptar vaktir. Ef
vaktir eru mikið um helgar eða t.d. á hátíðisdögum getur
vinnuskylda farið niður í 33,5 stundir).
Svíþjóð: 40 stundir í dagvinnu, 37‒38,25 stundir (án hádegishlés)
ef unnið er á vöktum.
Framundan
Næsti stjórnarfundur verður haldinn í Reykjavík 19‒20 maí 2015.
Næsta ráðstefna Norðurlandasamtakanna verður í Gautaborg 12.‒14.
maí 2016 en þá er sænska ljósmæðrafélagið 130 ára. Stjórnarfundur
NJF verður haldinn fyrir fundinn. Ísland mun svo halda ráðstefnuna
2019, á 100 ára afmæli LMFÍ. Allar frekari upplýsingar er hægt að
nálgast hjá undirrituðum.
Fylgstu með okkur á Facebook / www.gamlaapotekid.is Fást í öllum helstu apótekum um land allt VELJUM ÍSLENSKT
Barnalínan frá Gamla apótekinu inniheldur engin viðbætt ilm-
og litarefni. Vörurnar í Barnalínunni eru íslenskar vörur þróaðar
í samstarfi við lækna og lyfjafræðinga.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
31
0
32
/ BARNIÐ
Verndar
og nærir
dýrmæta húð