Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 6
6 30 nóvember 2018FRÉTTIR
Reykjavíkurborg skrifaði undir
samning um leigu á einbýlishúsi
í Stigahlíð af aðilum sem tengd
ust GAMMA áður en leigusalarn
ir höfðu gengið frá kaupsamn
ingi um eignina. Leigusalarnir
keyptu húsið á 76 milljónir króna
en fasteignin hefur skilað þeim
um 47 milljónum króna í leigu
tekjur frá reykvískum skattgreið
endum á aðeins þremur árum.
Húsið var hugsað sem athvarf
fyrir hælisleitendur og um tíma
dvöldu allt að tuttugu hælisleit
endur í húsinu, sem er 350 fer
metrar að stærð. Það var rýmt í júlí
á þessu ári vegna slæms ástands
þess. Reykjavíkurborg hefur síðan
greitt leigu fyrir tómt hús. „Þetta
var neyðarúrræði,“ segir upp
lýsingastjóri Reykjavíkurborgar
aðspurður um hátt leiguverð
og einkennilegan aðdraganda.
Nýttu sér neyðarástand til hins
ýtrasta
Þann 20. nóvember 2015 skrifaði
stærsti eigandi fyrirtækisins Karls
Mikla ehf., Arnar Hauksson, und
ir leigusamning við Reykjavíkur
borg um leigu á áðurnefndu 350
fermetra húsnæði við Stigahlíð 61.
Þá var umrætt hús í eigu annars
fyrirtækis sem tengist málinu ekki.
DV hefur heimildir fyrir því að til
boð Karls Mikla ehf. í fasteignina
hafi verið samþykkt þann 18. nóv
ember 2015 og því tók aðeins tvo
daga fyrir eigendurna að ganga
frá leigusamningi við Reykjavíkur
borg. Ekki var gengið frá form
legum kaupsamningi fyrr en 12.
desember 2015 og afsali þann 11.
apríl 2016. Reykjavíkurborg samdi
því um leigu við aðila sem átti ekki
einu sinni fasteignina sem leigan
snerist um.
Arnar Hauksson var á þessum
tíma starfsmaður fjármálafyrir
tækisins GAMMA en hann á
50% hlut í Karli Mikla ehf. Aðrir
eigendur félagsins eru þeir Gísli
Hauksson, bróðir Arnars og þáver
andi forstjóri GAMMA, og Pétur
Árni Jónsson, fjárfestir og núver
andi framkvæmdastjóri Heildar
fasteignafélags, dótturfélags
GAMMA. Þess má geta að Arnar
og Pétur Árni eru í eigendahópi
umsvifamestu starfsmannaleigu
landsins, Elju – þjónustumiðstöð
atvinnulífsins ehf., sem hefur ver
ið mikið í umræðunni undanfarið.
DV hefur borið leigusamn
inginn undir fagaðila og eru þeir
á einu máli um að hann sé afar
óhagstæður borginni. Í samtali við
DV segir Bjarni Brynjólfsson, upp
lýsingastjóri Reykjavíkurborgar,
að ástæðan fyrir því að þessi óhag
stæði samningur var gerður og
það í miklum flýti hafi verið sú að
neyðarástand hafi skapast við hýs
ingu hælisleitanda. Samkvæmt
heimildum DV var ástæðan fyrir
neyðarástandinu sú að fasteigna
félög í eigu GAMMA höfðu nokkru
áður sagt upp leigusamningum
sínum við Reykjavíkurborg á eign
um sem hýstu hælisleitendur.
Þetta vissu eigendur Karls Mikla
ehf. fullvel en buðu Reykjavíkur
borg upp á lausn. Rándýra lausn.
Hækkuðu leiguna út af smá-
vægilegum framkvæmdum
Leigusamningurinn sem skrifaður
var undir var tímabundinn eða til
þriggja ára. Aðspurður hvort að
ekki hefði verið skynsamlegra að
semja til styttri tíma í ljósi þess að
um neyðarráðstöðvun var að ræða
segir Bjarni: „Leigusalarnir kröfð
ust þess að samið yrði til þriggja
ára.“ Áttu leigugreiðslur að hefjast
þann 1. desember 2015 og á leig
utímabilinu að ljúka þann 31. des
ember 2018. Í leigusamningi seg
ir að afhending hússins geti ekki
orðið fyrr en 15. febrúar 2016. Á
meðan myndu leigusalar útvega
hælisleitendunum athvarf í þrem
ur fjögurra herbergja íbúðum í
eigu leigusala.
Eins og áður segir verður leigu
samningurinn um Stigahlíð 61 að
teljast í meira lagi hagstæður fyrir
eigendur Karls Mikla ehf. Húsið
var í bágbornu ásigkomulagi en
leigusalinn skuldbatt sig til þess að
lagfæra þá smáhluti sem hugsan
lega voru í ólagi í húsinu fyrir af
hendingu en að öðru leyti hvíldi
ábyrgðin á að gera það íbúðarhæft
á Reykjavíkurborg. Á tímabilinu 1.
desember 2015 til 15. febrúar 2016
greiddi Reykjavíkurborg 800 þús
und krónur á mánuði í leigu en sú
upphæð hækkaði upp í 1.140 þús
und krónur um leið og einbýlis
húsið í Stigahlíð fékkst afhent.
Í byrjun febrúar varð ljóst
að gera þyrfti smávægilegar
breytingar á húsinu til þess að
það hentaði sem best undir starf
semina. Bæta þurfti við salerni í
tilteknu rými og sturtuaðstöðu í
öðru rými. Þá þurfti einnig að út
búa auka svefnherbergi. Í viðauka
við leigusamninginn kemur fram
að forsvarsmenn Karls Mikla ehf.
hafi gert Reykjavíkurborg tilboð
um að fara í þessar framvæmdir
gegn því að leigan yrði hækkuð um
144 þúsund krónur á mánuði út
leigutímann. Þannig var heildar
leigan 1.284.000 krónur á mánuði
og var upphæðin tengd við vísitölu
neysluverðs. Í dag greiðir Reykja
víkurborg rúmlega 1.362.0000
krónur á mánuði fyrir fasteignina
sem stendur auð. n
FÖSTUDAGINN 30.
NÓV. OG 7. DESEMBER
LAUGARDAGANA
1. OG 8. DESEMBER
JÓLAHLAÐBORÐ
Jólagleði á Ránni í
Reykjanesbæ
Eyfi sér um jólastemminguna
BORÐAPANTANIR Í
SÍMA: 852 2083
PANTANIR@RAIN.IS
Reykjavíkurborg leigði einbýlishús
af leigutaka sem átti ekki húsið
n Leigusalarnir tengjast GAMMA n Nýttu sér neyðarástand varðandi húsnæði fyrir hælisleitendur
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is