Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 14
14 30 nóvember 2018FRÉTTIR
Þ
ú ert komin út á rosa-
lega skrýtna vegferð með
þessu,“ sagði Gunnar Bragi
Sveinsson, þingmaður
Miðflokksins, þegar DV hringdi í
hann á miðvikudag. Það var áður
en nokkur frétt um fund sex þing-
manna Miðflokksins og Flokks
fólksins á Klaustri hafði verið birt.
Gunnar hló og gerði lítið úr spurn-
ingum blaðamanns. Síðan þá
hafa DV og Stundin greint ítarlega
frá samtölum þingmannanna á
Klaustri, óhefluðum talsmáta um
konur, samkynhneigða og fatlaða.
Einnig að Gunnar hafi grobbað sig
af því að hafa „dílað“ með sendi-
herrastöður til að eiga inni greiða.
„Óskaplega skítlegt af þér“
„Heldur þú að ég hefði ekki sagt
eitthvað ef það hefði átt að setja
mig af sem þingflokksformann?“
sagði Gunnar og var ekki sáttur
við spurningar blaðamanns DV.
„Þetta er svo vitlaust, að halda að
menn séu að gera svona yfir bjór.“
Þegar Gunnari var gert ljóst
að samtalið hefði verið tekið upp
varð hann hneykslaður. „Hver er
að taka það upp þegar menn eru
að skemmta sér með vinum sín-
um? Skítaháttur er þetta. Við vor-
um að tala um allan fjandann.
Vá, hvað þetta er ómerkilegt. Mér
finnst ótrúlegt að þið séuð að fjalla
um eitthvað sem er tekið á laun.“
Blaðamaður gekk á Gunnar
og spurði hvort alvara hefði verið
með því að bjóða Ólafi og Karli að
ganga í flokkinn.
„Þetta er algjör þvæla og mér
þykir leitt að þið ætlið að fara að
snúa þessu upp í eitthvað svona
rugl. Menn verða að geta sest nið-
ur, haft gaman með félögum sín-
um. Þú ert að hlusta á hljóðupp-
töku sem var tekin upp án okkar
vitundar. Mér finnst það óskap-
lega skítlegt af þér sem fjölmiðla-
manni að ætla að fara að nýta þér
það. Auk þess að snúa út úr því,“
sagði Gunnar og byrsti sig.
Auðmjúkur eftir fréttaflutning
Eftir að efni upptakanna hefur ver-
ið gert opinbert og almenningur
fengið að sjá inn í „reykherbergið“
hefur talsmáti Gunnars breyst til
muna. Í viðtali á Rás 2 á fimmtu-
dagsmorgun var hann auðmýktin
uppmáluð.
„Menn gera alls konar vitleysu
þegar þeir eru drukknir, en það
réttlætir það samt ekki að setja
hlutina svona fram. Ég sagði þarna
hluti sem ég – mér bara dauðbrá
þegar ég heyrði þetta, en man ekki
allt sem fór þarna fram – en til
dæmis ummæli mín um Oddnýju
Harðardóttur eru bara hræðileg,“
sagði Gunnar.
Þá sagðist hann til dæmis hafa
beðið Friðrik Ómar Hjörleifs-
son söngvara afsökunar.
Á upptökunum heyrist
Gunnar tala um „smjör
á smokknum hjá hon-
um þarna Friðriki
Ómari.“
Hann sagði einnig
að það væri lang-
ur listi af fólki sem
hann þyrfti að biðja
afsökunar. n
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
MIKILL MUNUR Á ORÐ-
RÆÐU GUNNARS FYRIR
OG EFTIR BIRTINGU„Vá, hvað
þetta er
ómerkilegt.
Kristinn Haukur Guðnason
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is / kristinn@dv.is