Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 25
„Dömur mínar og lollarar, ég þakka ykkur frá innstu hjartarótum fyrir að setja ykkur í samband en há- værar frásagnir af afhroði mínu, hruni, dauða, æru- leysi og eignabruna eru sem sagt heldur orðum auknar: Ég lifi, sprikla og dilla mér þótt fjölmiðlar beri á mig ímyndaðar sakir og leyfi sérfræðingum (lol) að skálda í eyðurnar af sínu annálaða andríki. Það er ekki liðin heil nótt frá því lögreglan barði að dyrum á Samastað, ekki hálf klukkustund frá því ég var sjálft hrakið á flótta, og sögurnar sem ég hef fyr- ir kærleika guðanna fengið að lesa um sjálft mig í þeim miðlum sem kalla sig „hefðbundna“ eða jafnvel „krítíska“ (he he) telja sennilega á annan tug. Það er að sönnu gaman að fylgjast með – svona einsog það er gaman að horfa á skordýr sem lent hefur á bak- inu sprikla í þeirri von að finna fæturna aftur – en er þetta ekki pínulítið aumkunarvert? Í alvöru. Fyrir 22 klst. 11 mín. síðan. 622 líkar við þessa stöðu. 181 hafa gert athugasemd.“ Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Hvað gerði hán? „Hæfileiki hans til að koma auga á það sem er efst á baugi, draga það út á öxul tímans og snúa upp á það gerir hann að frábærum satíruhöfundi.“ N A I M A C H A H B O U N / B O R Å S T I D N I N G „Eiríkur er einn af albestu stílistum lands- ins og Hans Blær er ókynja, gervamölvandi, sílækað og fyrirlitið hán sem étur samtímann í morgunmat.“ S T E I N A R B R A G I „Grillandi heit skáldsaga. Heldur manni allan tímann og rúmlega það.“ M U G I S O N Spenn ndi skáldsaga um nettröll á flótta undan réttvísinni eftir einn beittasta höfund landsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.