Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 32
Bækur og menning 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Sýning og kvöldverður
– tilvalin jólagjöf
Spennandi sýningar fram undan á Sögulofti LandnámssetursGrettir og Auður djúpúðga snúa
aftur og tvær sýningar bætast við.
Grettis saga Einars Kárasonar og
Auðar saga Vilborgar Davíðsdóttur
hafa notið gífurlegra vinsælda
á Sögulofti Landnámssetursins í
Borgarnesi. Sýningum átti að ljúka
í haust en til að koma á móts við
þá sem þurftu frá að hverfa verða
nokkrar sýningar eftir áramót. Auk
þess verða tvær nýjar sýningar
frumsýndar á Söguloftinu; FARÐU Á
ÞINN STAÐ eftir Theodór Þórðarson
(Tedda löggu) og Njálssaga Bjarna
Harðarssonar. Það er einfalt að
kaupa gjafabréf á sýningarnar á
Söguloftinu og hægt að bæta við
kvöldverði sem gerir upplifunina enn
eftirminnilegri. Best er að senda
tölvupóst á landnam@landnam.is
en einnig er hægt að kaupa miða á
heimasíðu Landnámsseturs: www.
landnam.is/viðburðir
„Fyrirbærið Söguloft er einstakt á
heimsvísu, það þori ég að fullyrða, og
starfsemin þar blómstrar, sem betur
fer.“ (Silja Aðalsteinsdóttir TMM). n
Vilborg Davíðsdóttir heillaði áhorfendur upp úr skónum þar sem hún lagði með þá í
ferðalag um slóðir Auðar djúpúðgu
á Bretlandseyjum og í kjölfarið til
eylandsins á enda veraldar. Saman
við viðburðaríkt líf Auðar á Írlandi
og Skotlandi fléttast atburður sem
markaði upphaf landnámsins blóði:
þrælauppreisn á suðurströnd Íslands.
Sýningar í febrúar.
laugardagur 2. febrúar kl. 20.00
sunnudagur 3. febrúar kl. 16.00
laugardagur 16. febrúar kl. 20.00
sunnudagur 17. febrúar kl. 16.00
sunnudagur 10. mars kl. 16.00
Auðar saga djúpúðgu
Grettis saga Einars Kárasonar
Einar er sá listamaður sem hefur verið með flestar frumsýningar í Landnámssetrinu. Þetta er
hans sjötta sýning en mörgum er enn
í fersku minni frábær flutningur hans
á Skáldinu Sturlu og Óvinafagnaði.
„Það sem Einar gerir best er
hvernig hann tekur söguna saman,
þjappar henni þannig að hún rúmist
á tveim tímum og hvernig hann – um
leið og hann styttir – túlkar hana og
opnar hana fyrir manni án þess að
fara nokkurn tíma offari í skýringum.“
(Silja Aðalsteinsdóttir TMM) Sýningar
í janúar.
laugardagur 12. janúar kl. 20.00
sunnudagur 13. janúar kl. 16.00
laugardagur 9. febrúar kl. 20.00
sunnudagur 10. febrúar kl. 16.00
Farðu á þinn stað
Tedda löggu þarf ekki að kynna fyrir Borgfirðingum og margir landsmenn þekkja hann úr
Laufskálanum í útvarpinu. Í þessari
sýningu tekur hann sjálfan sig til
kostanna í sjálfsævisögulegum einleik
þar sem ferðast er frá Kínahverfinu í
Borgarnesi og alveg út á Ystu Nöf, þar
sem hann nú býr. Hann rekur í máli og
myndum ýmis atvik í samskiptum sínum
við samferðafólk sitt, allt frá barnæsku
og fram til vorra daga. Frumsýnt í
janúar.
laugardagur 19. janúar kl. 20.00
forsýning
laugardagur 26. janúar kl. 20.00
frumsýning
laugardagur 27. janúar kl. 16.00
föstudagur 1. febrúar kl. 20.00
laugardagur 16. febrúar kl. 16.00
laugardagur 23. febrúar kl. 20.00
sunnudagur 24. febrúar kl. 16.00
Njála Bjarna Harðarsonar
Bjarni Harðarson flytur sína Njálu þannig að nýr skilningur mun vitrast þeim sem eru
reiðubúnir að opna bæði hug og
hjarta fyrir fagnaðarerindinu.
Sunnlendingurinn Bjarni er alinn
upp með Njálu sér við hjartastað.
Hann þykist því þess umkominn að
tala eins og sá sem valdið hefur
þegar kemur að því að rýna og
túlka þessa bók bókanna í íslenskri
miðaldamenningu. Komið og
ykkur mun opnast ný Íslandssaga.
Frumsýnt í mars.
laugardagur 2. mars kl. 20.00
frumsýning
sunnudagur 3. mars kl. 16.00
laugardagur 16. mars kl. 20.00
sunnudagur 17. mars kl. 16.00