Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 43
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
BARNA- OG UNGLINGABÆKURNAR FRÁ UGLU:
Kitlandi spenna, ískrandi
húmor og hugljúf ævintýri
Dag einn í ósköp venjulegu húsi varð ósköp venjulegri stelpu — henni Rúnu — það á að gefa frá sér mjög óvenjulegan ROPA. ROPA
sem var svo óvenjulegur að hann feykti hlutum
um koll. Þvílíkt ROPTRÚLEGT leyndarmál hlaut að
kvisast út. Áður en varði var Rúna orðin ROPANDI
fræg um allan heim …
Hyldýpið er fyrsta bókin í mögnuðum þríleik sem mæðgurnar Camilla og Viveca Sten, hinn vinsæli glæpasagnahöfundur, hafa
skrifað um Hafsfólkið. Bækurnar slógu í gegn í
Svíþjóð og hafa fengið mjög lofsamlega dóma
gagnrýnenda.
A llt sitt líf hefur Anna verið ein á báti og þurft að treysta á sjálfa sig. Núna stendur hún frammi fyrir því að
svíkja þá sem hún elskar mest til að bjarga
systur sinni. Annað bindi í æsispennandi og
bráðskemmtilegum þríleik.
Bold-fjölskyldan býr í venjulegu húsi í ósköp venjulegu úthverfi – en hún er fjarri því að vera venjuleg fjölskylda. Hún á sér nefnilega
ótrúlegt leyndarmál. Frábærlega skemmtileg
bók fyrir börn á öllum aldri eftir breska grínistann
Julian Clary. Fyndnasta bók ársins!
Í húsi þúsund óska verður allt, sem Harvey hefur látið sig dreyma um, að veruleika. Líka martraðirnar hans. Ætíðarþjófurinn
eftir Clive Barker er ein frægasta
fantasíubók síðari ára fyrir börn og unglinga
á öllum aldri.
Elmar sér og heyrir margt ótrúlegt í göngutúrnum sínum, en hin dýrin eru of önnum kafin til að stoppa og njóta þess með honum.
Hvað skyldum við uppgötva í göngutúrnum hans
Elmars?
Litskrúðugi fíllinn Elmar hefur unnið hug og hjörtu barna um allan heim. Hugljúf og skemmtileg barnabók um fíl sem sker sig úr fílahjörðinni
vegna litarafts síns. Einstaklega fallega myndskreytt
bók um gleði, umburðarlyndi og fjölbreytileika.