Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Qupperneq 56
Hreint fyrir jólin 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Þvottahúsið Fjöður ehf. er alhliða þvottahús, efnalaug og hreinsun sem hefur áratuga
langa reynslu í þjónustu við fyrirtæki
og einstaklinga varðandi allan þvott.
„Okkar helstu viðskipti í dag eru við
hótel, veisluþjónustur og stofnanir,
en slíkir aðilar þurfa að láta þvo
umtalsvert magn af þvotti reglulega,
svo sem dúka, sængurföt og fleira.
Að sjálfsögðu þjónustum við einnig
einstaklinga með þvott og hreinsun
á líni og fatnaði. Að auki bjóðum
við upp á leigu á líni og dúkum fyrir
einstaklinga og fyrirtæki,“ segir
Baldur.
Nýjar sérhæfðar græjur
„Við stofnuðum þvottahúsið Fjöður
árið 2007 og byrjuðum á að sjá
um þvott fyrir þrjú hótel. Þá voru
þrír starfsmenn. Í dag hefur Fjöður
heldur betur vaxið fiskur um hrygg
og eru starfsmenn orðnir tólf talsins.
Okkar þvottur fer í gegnum nýjustu
græjurnar. Við erum með góðar
stórar þvottavélar og hágæða
strauvélar sem skila þvottinum af sér
brakandi sléttum og glansandi fínum.
Okkar metnaður liggur í því að skila
verkinu frá okkur hratt, örugglega
og með fyrsta flokks frágangi,“ segir
Baldur.
Hagkvæmur kostur fyrir hótel og
Airbnb-gestgjafa
Undanfarin ár hefur meira borið
á túrisma í kringum hátíðarnar
og ferðamenn flykkjast að til
þess að upplifa íslensk áramót.
Ferðamennirnir gista á hótelum
og í Airbnb-íbúðum og hefur þessi
aukning í túrisma yfir vetrarmánuðina
að sjálfsögðu bein áhrif á starfsemi
þvottahúsanna. „Hjá Fjöður erum
með hagkvæman kost fyrir hótel og
Airbnb-gestgjafa sem léttir þeim
vinnuna töluvert við gestaskipti. Við
bjóðum upp á línleigu auk þess að
vera með alhliða umsjón á þvotti.
Við erum einnig með þjónustu þar
sem við sækjum og skilum sé þess
óskað. Öll þjónusta er sniðin að
þörfum viðskiptavinarins varðandi
afhendingu og frágang, allt lín
straujað og brotið saman og kemur
tilbúið beint á rúmið,“ segir Baldur. Sé
um regluleg viðskipti að ræða gerir
Fjöður föst verðtilboð.
Nánari upplýsingar má nálgast á
fjodur.is, https://www.fjodur.is/ og á
Facebook-síðunni Þvottahúsið Fjöður.
Fyrirtækið er staðsett að Ármúla
44, 108 Reykjavík.
Sími: 553-7979
Farsími: 846-4611
Netpóstur: fjodur@fjodur.is n
ÞVOTTAHÚSIÐ FJÖÐUR:
Þvær fyrir þig