Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 59
Hreint fyrir jólin 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ … og eftir Prolan. Fyrir …Það var ekki fyrr en ég komst í tæri við undraefnið Prolan frá Nýja-Sjálandi, að ég fann hið fullkomna ryðvarnar- og smurefni. Þetta er undantekningarlaust það besta sem ég hef komist í tæri við,“ segir Smári Hólm Kristófersson, stofnandi og eigandi ryðvarnarverkstæðisins Hjá Smára Hólm, á Rauðhellu 1, Hafnarfirði. Í seinni tíð hefur Smári í auknum mæli sérhæft sig í forvörnum gegn ryði. Við þá þróun hafa starfsmennirnir leitað að nýjum og árangursríkum leiðum til þess að takast á við ryð og hin hvimleiðu vandamál sem hljótast af því. Það var þá sem þeir rákust á Prolan. Efnið er unnið úr lanolín, öðru nafni ullarvaxi sem myndast í fitukirtlum dýra sem hafa ullarfeld. Lanolin er sannkallað undraefni og er m.a. uppistaða í mörgum snyrtivörum, sem og sérhæfðum smur- og varnarefnum fyrir matvælaiðnað og flugvélar. Óhætt að nota í matvælaiðnaði Prolan hefur varið miklu í vöruþróun sem stuðlar að því að útbúa sérhæfðar lausnir fyrir krefjandi aðstæður. Vörurnar frá Prolan hafa þá verið þrautprófaðar við ýmsar öfgafullar aðstæður og er útkoman sú að það stenst m.a. allar kröfur NSF-vottunar, sem þýðir að fullkomlega óhætt er að nota efnið í matvælaiðnaði. M.a. stenst efnið háþrýstiþvott með allt að 170 bara þrýstingi. Einnig þolir efnið klór og sterk sápuefni auk þess sem skítur og ryk loðir ekki við það. Að auki skemmir Prolan ekki gúmmi (getur haft áhrif á EPDM-gúmmí), þvert á móti ver það gúmmí og smyr. Bændur geta því að skaðlausu úðað efninu yfir heyvinnuvélar, dráttarvélar og önnur tæki á haustin. Þegar vélarnar eru teknar í notkun á vori er óþarfi að þvo efnið af. Því hafa íslenskir bændur sýnt Prolan- efnunum mikinn áhuga, því óhætt er að nota þau sem ryðvörn á dráttarvélar og önnur tæki án þess að valda skaða í umhverfinu eða á framleiðsluvörum bænda. Ótrúleg virkni Það hafa margir heyrt um WD 40 enda varla til það heimili sem er ekki með efnið í kústaskápnum til þess að laga hin ýmsu vandamál sem koma upp á heimilinu. „Ég get fullyrt að Prolan gerir allt sem WD 40 gerir, og meira til. Prolan er líka smurefni. Þess vegna hefur Prolan margfalt meiri virkni. Sjálfur hef ég gert tilraunir með virkni Prolan. M.a. er hægt að nota það til að verja keðjur, járn og ál. Ég setti til dæmis upp rekka við Hellisheiðarvirkjun til að prófa hvort Prolan stæðist tæringu af völdum brennisteinsvetnis, en þekkt er að gufa frá virkjuninni tæri allar rafmagnssamstæður í flutningslínum á Hellisheiði. Ég setti þetta líka á bíla frá Tempra og fleiri fyrirtækjum. Auk þess hef ég prófað þetta sem felgubón og fleira. Prolan hefur ótrúlega virkni á allt sem ég hef prófað það á og meira til. Prolan hefur ótrúleg áhrif á klakasöfnun á bretti og undirvagna á bílum. Jeppakarlarnir sem ösla í klaka og krapa uppi á jöklum og nota Prolan segja mér að það festist aldrei klaki undir bílunum hjá þeim. Það eina sem hefur áhrif á Prolan undir bílunum er barningur af sandi frá hjólbörðum sem virkar þá eins og sandblástur. Það stenst í raun ekkert efni slíkt, en þá þarf bara að úða aftur á þá álagsstaði með Prolan. Þegar menn gera við bíla sem áður hafa verið úðaðir með Prolan-efni eru aldrei vandræði með að boltar og skrúfur hafi ryðgað fastar. Enda smýgur Prolan inn í allar glufur og gengjur og smyr. Felguhringir á vörubílum sem gjarnir eru á að ryðga fastir hætta að vera til vandræða sé Prolan borið á þá. Því eru vörubílstjórar í Danmörku mikið farnir að nota Prolan. Sama á við bremsurnar, en hægt er að úða Prolan á bremsudælur sem eiga til að ryðga fastar í bílum til að koma í veg fyrir það. Einnig er þjóðráð að bera Prolan á gúmmífattningar (með svampi) í bílhurðum á veturna til þess að koma í veg fyrir að þær frjósi fastar.“ Sjá nánar á Facebook-síðunni Prolan ryðvörn og vefsíðunni smariholm.com Rauðhella 1, Hafnarfirði Sími: 861-7237 n PROLAN: „Besta ryðvarnar- og smurefni sem ég hef komist í tæri við“ … og eftir Prolan. Fyrir …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.