Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 62
62 SPORT 30 nóvember 2018
A
ron Einar Gunnarsson,
fyrirliði karlalandsliðsins
í fótbolta, var að gefa út
ævisögu sína. Aron – sagan
mín kom í verslanir á dögunum
en þar fer Aron yfir feril sinn sem
knattspyrnumaður, frá æskuár-
unum á Akureyri og yfir í stærstu
augnablik í íþróttasögu Íslands
þegar íslenska karlalandsliðið
fór á Evrópumótið í Frakklandi
og heimsmeistaramótið í Rúss-
landi. Bókin er mjög vel heppnuð,
undirritaður fékk bókina í hendur
á mánudagskvöld og kláraði hana
seint, kvöldi síðar. Saga Arons er
merkileg, hann kemur úr stórri
fjölskyldu og er vel virkur og fyrir
mann eins og mig eru skemmti-
legustu kaflarnir í bókinni í fyrri
hlutanum. Saga sem maður hef-
ur ekki heyrt áður, í seinni hlutan-
um hefur Aron verið einn frægasti
Íslendingurinn og margt komið
fram, hann bætir þó við skemmti-
legum sögum sem halda manni
við efnið. Einar Lövdahl Gunn-
laugsson skrifar söguna og tekst
honum vel
til. Þekkjandi Aron örlítið fannst
mér það vel heppnað hjá Einari
að skrifa bókina eins og Aron talar,
snáði, böllur og fleiri orð sem Aron
notar í tali sínu, fara á prent og það
gerir bókina að hans. Ef gagnrýna
mætti eitthvað þá hefði Aron mátt
vera neikvæðari í garð einstak-
linga sem hann hefur lent upp á
kant við á ferli sínum. Að mínu viti
hefði mátt koma fram allt fylleríið
sem var í kringum liðið framan af.
Þegar starfsmenn KSÍ voru oftar
en ekki að trufla undirbúning leik-
manna og drekka óhóflega í ferð-
um þegar liðið var í verkefni. Bók-
in er hins vegar mjög vel heppnuð
og er ekki bara fyrir þá sem hafa
áhuga á íþróttum. Hugarfar Arons
Einars er smitandi og getur kveikt
neista hjá hverjum sem er.
Súpurnar sem hafa
yljað landann um áraraðir
Fyrirliðinn
með neglu
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Bækur
Aron, sagan mín
Höfundur: Aron Einar Gunnarsso,
Einar Lövdahl
Útgefandi: Fullt tungl
302 bls.
HAFNAR ÁSÖKUNUM
INGÓS VEÐURGUÐS
n Var alvarlegt veðmálasvindl á Íslandi? n Málið kom upp árið 2016 en
maðurinn neitar sök í samtali við DV
I
ngólfur Þórarinsson, stund-
um kallaður Ingó Veðurguð,
er í áhugaverðu viðtali við
Fótbolta.net sem birtist í vik-
unni. Þar sakar hann liðsfélaga
sinn úr Ægi, sumarið 2016, um að
hafa hagrætt úrslitum. Málið kom
upp þetta sumarið en ekkert tókst
að sanna. Leikmaðurinn sem
Ingólfur nefnir til sögunnar er frá
Austurblokkinni, lék á Íslandi frá
2009 til 2016, hann kom við sögu
hjá Haukum, Keflavík og fleiri lið-
um áður en hann lauk ferli sínum
á Íslandi þetta umrædda sumar.
Aldrei var hægt að tengja hann
við hagræðingu úrslita.
Samkvæmt heimildum DV úr
herbúðum KSÍ áttu sér ekki stað
nein óeðlileg veðmál í kringum
þennan leik, þá var ekki hægt að
rekja neina slóð sem lá til manns-
ins sem Ingólfur ræðir um. Um-
ræddur leikmaður lék aðeins ör-
fáa leiki með Ægi þetta sumar,
hann hætti þegar ásakanir um
svindlið fóru á flug.
Í samtali við DV.is harðneitar
umræddur leikmaður ásökun-
um Ingólfs. „Þetta er ekki satt, ég
átti í vanda með einum liðsfélaga
minna þarna. Hann var að reyna
að komast í liðið á minn kostn-
að og fór að bera út þessar sög-
ur,“ sagði leikmaðurinn þegar
DV bar málið undir hann. „Hann
spilaði sömu stöðu og ég og var
ekki að spila.“ Ægir fékk dæmdar
á sig vítaspyrnur í fyrstu þremur
leikjum tímabilsins og var það eitt
af því sem nefnt var til sögunnar
þegar kom að hagræðingu úr-
slita. Sögur um þetta fóru strax
á flug. Leikmaðurinn lék ekkert
með Ægi eftir þetta, en tveir liðs-
félagar hans í létu vita af málinu
sem aldrei tókst að sanna. Hann
hefur ekkert spilað á Íslandi eftir
þetta atvik.
Leikmenn klöguðu
„Fyrir einn leikinn tilkynntu tveir
Serbar í liðinu þjálfaranum og
stjórninni að einn leikmaður í
liðinu hefði boðið þeim peninga
fyrir að breyta úrslitum í leiknum
og svindla,“ sagði Ingólfur í Hlað-
varpsþættinum Miðjunni á Fót-
bolta.net í vikunni og átti þar við
umræddan leikmann.
„Mér fannst þetta mál ekki
sigla hátt. Eins og samfélagið er
þá ertu saklaus þangað til sekt er
sönnuð. Þetta mál var erfitt út af
því að þetta var orð á móti orði.
Það er hrikalegt ef þetta er satt
eins og allt bendir til. Að leikmað-
ur í liðinu hafi verið að breyta úr-
slitum og gefa vítaspyrnur og alls
konar hluti þegar tuttugu leik-
menn eru búnir að æfa allan vet-
urinn. Þá er ekki hægt að standa
í þessu. Svona veðmálasvindl eru
algjör þvæla,“ sagði Ingó í Miðj-
unni.
Veðmálasvindl er þekkt
vandamál í íþróttum, slíkt mál
hafa komið upp á Íslandi en
aldrei hefur tekist að sanna neitt.
„Ég veit ekki hvernig þetta
var tæklað en mér fannst verst
að þetta hafi ekki verið gert
meira opinbert og fylgt betur
eftir. Bæði hjá KSÍ og klúbbn-
um. Til að koma í veg fyrir að
leikmenn geri þetta aftur og
sérstaklega þessi leikmaður
ef þetta var satt. Ég trúi þessu
persónulega 100%. Þetta lá eig-
inlega í augum uppi. Þetta var
góður leikmaður en það komu
augnablik í leikjum þar sem
maður skildi ekki hvað hann var
að gera. Maður hélt kannski að
hann væri klaufskur en þegar
þessar ásakanir komu fram þá
lagði maður saman tvo og tvo
og þá var þetta frekar augljóst.
Að sama skapi finnst mér vont
ef það er verið að saka hann um
eitthvað sem er ekki rétt. Þess
vegna er mikilvægt fyrir alla að-
ila að þetta sé leitt til lykta. Var
hann að þessu eða ekki? Það
þurfa að vera yfirheyrslur eða
eitthvert kerfi. Maður sér hvað
þetta er stórt vandamál í heim-
inum og það þarf að hafa kerfi á
þessu.“
Af hverju hætti hann í Ægi
eftir þessar ásakanir?
Athygli vakti sumarið 2016 að
leikmaðurinn hætti að leika
með Ægi eftir að þessar ásakan-
ir komu upp. Hann segir það ekki
tengjast þeim. „Ég var meiddur á
þessum tíma, ég talaði við stjórn-
ina og við ákváðum að láta staðar
numið. Það var aldrei neitt sannað,
ég gerði þetta ekki. Ég veit ekki hvað
ég á að segja. Ég er hættur í fótbolta,
málinu er lokið, ég er bara að vinna
á Íslandi í dag.“ n