Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 78
78 30 nóvember 2018JÓL
SEGÐ
U NE
I
VIÐ P
LAST
I
„Hefðbund-
in skógjöf
kostar á bilinu
300 til 500 krónur
Jólagjafir Langstærsti
útgjaldaliðurinn.
Hangikjöt Dýrara en
hamborgarhryggur.
Skreytingar Minnsti kostn-
aðurinn við jólin.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Jólagjafir
Dýrustu jólagjafirnar eru
yfirleitt til maka og barna.
Má ætla að hver gjöf sé að
minnsta kosti 20 þúsund
króna virði. Þar að auki eru
keyptar gjafir handa vinum
og ættingjum. Verð þeirra
er yfirleitt á bilinu 3.000–
4.000 krónur. Í tilfelli fjögurra
manna fjölskyldu er gert ráð
fyrir tólf slíkum gjöfum.
122.000 kr.
Skógjafir
Þetta er dulinn kostnað-
ur sem ekki má ræða nema
að mjög takmörkuðu leyti.
Til eru dæmi um óða „jóla-
sveina“ sem gefa börnum
rándýrar skógjafir. Hefðbund-
in skógjöf kostar á bilinu 300
til 500 krónur. Kertasníkir er
undantekningin því hann fær
að gefa fyrir um það bil 2.000
krónur til að stytta börnunum
stundir á aðfangadag.
13.600 kr.
Skreytingar
Jólatréð er yfirleitt langdýrasti
skreytingakostnaðurinn, yfir-
leitt á bilinu 4.000–10.000 krón-
ur og fer eftir stærð og tegund.
Flestir eiga töluvert magn af
jólaskrauti í geymslunni en þó
bætist reglulega við eitthvert
smáræði. Sum árin þarf að
endurnýja stærri hluti eins og
seríur.
8.000 kr.
Fatnaður
Fæst fullorðið fólk kaupir sér
sérstök spariföt fyrir jólin enda
er það löngu hætt að vaxa lóð-
rétt. Annað gildir hins vegar
um börnin sem umbreytast
mikið milli jóla. Gjarnan er
keyptur kjóll, sokkabuxur og
skór fyrir stúlkur. Skyrta, vesti,
buxur og skór fyrir drengi.
Kostnaðurinn er mjög svipað-
ur á milli kynjanna, um 15.000
krónur á haus.
30.000 kr.
Þorláksmessa
Aðeins gamalt fólk og sveitalar-
far fá sér skötu á Þorláksmessu.
Á Þorláksmessu hefur fólk allt
of mikið að gera til þess að elda
eitthvað flókið. Því er tilvalið að
panta pítsu.
4.500 kr.
Aðfangadagur
Á aðfangadag er vitaskuld gert
vel við sig í mat og drykk. Mis-
munandi er hvað landsmenn
velja sem sinn aðfangadags-
mat en flestir eru með ham-
borgarhrygg. Það er aðgengi-
leg máltíð sem flest börn sætta
sig við. DV gerði ráð fyrir að í
máltíðinni fælust einnig brún-
aðar kartöflur, Waldorf-salat,
baunir, malt og appelsín, kók,
ís og konfekt.
Hamborgarhryggur 3.998 kr.
Kartöflur 719 kr.
Gular baunir 199 kr.
Rjómi 533 kr.
Smjör 481 kr.
Suðusúkkulaði 269 kr.
Vínber 499 kr.
Malt 680 kr.
Appelsín 311 kr.
Kók 295 kr.
Ís 598 kr.
Íssósa 419 kr.
Nóa konfekt 3.839 kr.
Mackintosh’s 1.379 kr.
Annað 1.000 kr.
10.001 kr.
Jóladagur
Jóladagur er öllu fastmótaðri
en aðfangadagur. Þá borða
langflestir hangikjöt. Kjötið
sjálft er mun dýrara en ham-
borgarhryggurinn en yfirleitt
er afgangur að öðrum mat
frá deginum áður.
Hangilæri 6.091 kr.
Kartöflur frá deginum áður
Grænar baunir 159 kr.
Rauðkál 299 kr.
Laufabrauð 2.387 kr.
Malt, appelsín og kók frá
deginum áður
Ís og konfekt frá deginum
áður
Annað 1.000 kr.
9.936 kr.
Annar í jólum
Hér er engin nauðsyn að
draga upp budduna. Mamma
og pabbi eða tengdó bjóða í
matarboð.
Hvað kosta jólin?
n 200 þúsund fyrir fjögurra manna fjölskyldu n Gjafirnar tveir þriðju af heildarkostnaði
Hefðbundin jól fjögurra manna fjölskyldu kosta um
200 þúsund krónur. Þetta er viðmiðunarkostnaður
sem DV reiknaði út miðað við par með tvö börn.
Stærstur hluti jólakostnaðarins snýr að gjöfunum,
eða um tveir þriðju. Sparifatnaður kemur þar á
eftir en skreytingar og matur eru frekar lítill hluti af
heildarkostnaðinum.