Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 14
14 7. desember 2018FRÉTTIR
F
yrir helgi var tilkynnt að fjár
festingarfyrirtækið Indigo
Partners, sem er með höfuð
stöðvar í Phoenix í Banda
ríkjunum, ætli að koma inn í
rekstur WOW air og kaupa hluta
fé í flugfélaginu. Tilkynnt var um
þetta skömmu eftir að Icelandair
tilkynnti að fyrirtækið væri hætt við
að kaupa WOW air.
Hvað er Indigio Partners og
hvernig vinnur fyrirtækið? Fyrir
tækið hefur fjárfest í lággjalda
flugfélögum í SuðurAmeríku og
Evrópu. Í fréttatilkynningu frá fyrir
tækinu er haft eftir Bill Franke,
forstjóra þess, að fyrirtækið hafi
ákveðna framtíðarsýn fyrir WOW
air og hlakki til að starfa með starfs
fólki WOW air og öðrum við að
hrinda þeirri framtíðarsýn í fram
kvæmd. Franke er ekki óþekktur
í heimi lággjaldaflugfélaga en
Indigio Partners kom til dæmis
að rekstri Spirit Airlines, átti fyrir
tækið, og kom því á réttan kjöl en
fyrirtækið hafði glímt við mikla
rekstrarerfiðleika. Indigio á einnig
hlut í Frontier Airlines, JetSmart í
Chile, Volaris Airlines í Mexíkó og
Wizz Air í Ungverjalandi sem flýg
ur einmitt hingað til lands. Allt eru
þetta lággjaldaflugfélög. Indigo er
einnig stór kaupandi Airbusflug
véla en WOW air hefur einmitt
eingöngu verið með Airbusvélar í
flugflota sínum.
En þótt að Indigo Partners og
WOW air hafi náð samkomulagi
um aðkomu fyrrnefnda félagsins
að því síðarnefnda er málið ekki
frágengið. Í tilkynningu frá Indigo
kom fram að félagið muni fjár
festa í WOW air að áreiðanleika
könnun lokinni. Einnig kom fram
að Skúli Mogensen, stofnandi og
aðaleigandi WOW air, verði áfram
kjölfestufjárfestir í fyrirtækinu ef
gengið verður frá aðkomu Indigo.
Fyrirtækin ætla að vinna eins hratt
og hægt er að því að ljúka málinu.
Indigo Partners er líklegast eitt
þekktasta fjárfestingarfyrirtæk
ið í einkaeigu sem einblínir á fjár
festingar í fluggeiranum, og það
sem hefur náð bestum árangri. Fé
lagið hefur náð góðum árangri með
aðkomu sinni að Spirit Airlines,
Volaris og Wizz air. Einnig hefur
fyrirtækið fjárfest í ýmsum öðrum
flugfélögum í gegnum tíðina.
Eins og kunnugt er hefur rekstur
WOW air gengið illa og í nýlegri til
kynningu frá félaginu kom fram að
rekstrarniðurstaða fjórða ársfjórð
ungs yrði verri en reiknað var með.
Einnig kom fram að lánardrottnar
félagsins hefðu krafist þrengri
greiðsluskilyrða. Þá skilaði félagið
fjórum Airbusvélum sem það
hafði haft á leigu.
Hvað ætlar Indigo sér með
WOW air?
Ef af fjárfestingu Indigo í WOW air
verður má teljast öruggt að fyrir
tækið ætli sér að gera ákveðnar
breytingar á rekstri WOW air til
að tryggja rekstur félagsins og
framtíð. Samkvæmt því sem sér
fræðingar á markaðnum segja má
reikna með að Indigo gangi fram
af festu ef og þegar lokið verð
ur við að ganga frá aðkomu fyrir
tækisins að WOW air. Bill Franke
er sagður vera fjárfestir sem vill
vera með fingurna á púlsinum og
setji venjulega mark sitt á flug
félögin sem Indigo á hlut í. Hann
er sagður vera nánast ofstækisfull
ur þegar kemur að rekstrarkostn
aði og fyrir að vera slægur samn
ingamaður.
Því hefur meðal annars verið
varpað fram hvort Indigo muni
krefjast þess að áhafnir WOW
air verði ráðnar í gegnum starfs
mannaleigur í því skyni að lækka
launakostnað. Slík viðskiptamód
el eru velþekkt í flugbransanum og
nýtti Primera Air, sem nú er gjald
þrota, þetta módel meðal annars.
Það sama á við um Ryanair sem
nýtir það fyrir hluta áhafna sinna.
Slík ráðningarform eru þyrnir
í augum stéttarfélaga enda eru
réttindi starfsfólks þá mun minni,
til dæmis hvað varðar veikindi og
frí, og launin mun lægri en kveðið
er á um í kjarasamningum. Sömu
sögu er að segja um þá sem starfa
við afgreiðslu véla á jörðu niðri,
þar kýs Indigo að notast við verk
takasamninga.
Indigo kýs yfirleitt að fjárfesta
í lággjaldaflugfélögum sem fljúga
á stuttum leiðum, eins og Ryana
ir leggur áherslu á. Mikil áhersla
er lögð á mikla nýtingu flugvéla
þannig að þær stoppi ekki lengi
við á flugvöllum og yfirleitt er
rukkað fyrir næstum allt um borð,
mat og drykki.
Það er því spurning hvað Indigo
vill láta gera við lengri flugleiðir
WOW air eins og til Bandaríkjanna
og svo auðvitað fyrirhugað flug til
Indlands. Viðskiptamódel WOW
air hefur verið byggt upp á svipað
an hátt og hjá Icelandair, að nota
Keflavíkurflugvöll sem skipti og
tengiflugvöll fyrir farþega á leið
þeirra yfir Atlantshafið.
Ekki er ólíklegt að Indigo vilji
leggja áherslu á stuttu flugleið
irnar í leiðakerfi WOW air en á
þeim eru yfirleitt meiri möguleik
ar til kostnaðarhagræðingar en á
löngu leiðunum. Einnig má telja
líklegt að Indigo vilji endursemja
við birgja og smásala til að lækka
verð og þar með kostnað WOW air.
Þá hafa sérfræðingar á flugmark
aði velt fyrir sér hvort WOW air, að
ósk eða kröfu Indigo, muni hætta
að nota Airbus A330 og skipta yfir í
Airbus A320 en Indigo kýs yfirleitt
að nota þær flugvélar hjá félögum
sem fyrirtækið hefur fjárfest í. n
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þú að skilgreining
á sótthita breytist eftir aldri?
Thermoscan eyrnahita-
mælirinn minn veit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Hvað ætlar
Indigo sér
með WOW air?
Indigo Partners kemur WOW air til bjargar
Bill Franke Leggur
áherslu á að halda
kostnaði niðri.
Skúli Mogensen
Líklega verða
breytingar hjá
WOW á næstunni.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is