Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 14
14 7. desember 2018FRÉTTIR F yrir helgi var tilkynnt að fjár­ festingarfyrirtækið Indigo Partners, sem er með höfuð­ stöðvar í Phoenix í Banda­ ríkjunum, ætli að koma inn í rekstur WOW air og kaupa hluta­ fé í flugfélaginu. Tilkynnt var um þetta skömmu eftir að Icelandair tilkynnti að fyrirtækið væri hætt við að kaupa WOW air. Hvað er Indigio Partners og hvernig vinnur fyrirtækið? Fyrir­ tækið hefur fjárfest í lággjalda­ flugfélögum í Suður­Ameríku og Evrópu. Í fréttatilkynningu frá fyrir­ tækinu er haft eftir Bill Franke, forstjóra þess, að fyrirtækið hafi ákveðna framtíðarsýn fyrir WOW air og hlakki til að starfa með starfs­ fólki WOW air og öðrum við að hrinda þeirri framtíðarsýn í fram­ kvæmd. Franke er ekki óþekktur í heimi lággjaldaflugfélaga en Indigio Partners kom til dæmis að rekstri Spirit Airlines, átti fyrir­ tækið, og kom því á réttan kjöl en fyrirtækið hafði glímt við mikla rekstrarerfiðleika. Indigio á einnig hlut í Frontier Airlines, JetSmart í Chile, Volaris Airlines í Mexíkó og Wizz Air í Ungverjalandi sem flýg­ ur einmitt hingað til lands. Allt eru þetta lággjaldaflugfélög. Indigo er einnig stór kaupandi Airbus­flug­ véla en WOW air hefur einmitt eingöngu verið með Airbus­vélar í flugflota sínum. En þótt að Indigo Partners og WOW air hafi náð samkomulagi um aðkomu fyrrnefnda félagsins að því síðarnefnda er málið ekki frágengið. Í tilkynningu frá Indigo kom fram að félagið muni fjár­ festa í WOW air að áreiðanleika­ könnun lokinni. Einnig kom fram að Skúli Mogensen, stofnandi og aðaleigandi WOW air, verði áfram kjölfestufjárfestir í fyrirtækinu ef gengið verður frá aðkomu Indigo. Fyrirtækin ætla að vinna eins hratt og hægt er að því að ljúka málinu. Indigo Partners er líklegast eitt þekktasta fjárfestingarfyrirtæk­ ið í einkaeigu sem einblínir á fjár­ festingar í fluggeiranum, og það sem hefur náð bestum árangri. Fé­ lagið hefur náð góðum árangri með aðkomu sinni að Spirit Airlines, Volaris og Wizz air. Einnig hefur fyrirtækið fjárfest í ýmsum öðrum flugfélögum í gegnum tíðina. Eins og kunnugt er hefur rekstur WOW air gengið illa og í nýlegri til­ kynningu frá félaginu kom fram að rekstrarniðurstaða fjórða ársfjórð­ ungs yrði verri en reiknað var með. Einnig kom fram að lánardrottnar félagsins hefðu krafist þrengri greiðsluskilyrða. Þá skilaði félagið fjórum Airbus­vélum sem það hafði haft á leigu. Hvað ætlar Indigo sér með WOW air? Ef af fjárfestingu Indigo í WOW air verður má teljast öruggt að fyrir­ tækið ætli sér að gera ákveðnar breytingar á rekstri WOW air til að tryggja rekstur félagsins og framtíð. Samkvæmt því sem sér­ fræðingar á markaðnum segja má reikna með að Indigo gangi fram af festu ef og þegar lokið verð­ ur við að ganga frá aðkomu fyrir­ tækisins að WOW air. Bill Franke er sagður vera fjárfestir sem vill vera með fingurna á púlsinum og setji venjulega mark sitt á flug­ félögin sem Indigo á hlut í. Hann er sagður vera nánast ofstækisfull­ ur þegar kemur að rekstrarkostn­ aði og fyrir að vera slægur samn­ ingamaður. Því hefur meðal annars verið varpað fram hvort Indigo muni krefjast þess að áhafnir WOW air verði ráðnar í gegnum starfs­ mannaleigur í því skyni að lækka launakostnað. Slík viðskiptamód­ el eru velþekkt í flugbransanum og nýtti Primera Air, sem nú er gjald­ þrota, þetta módel meðal annars. Það sama á við um Ryanair sem nýtir það fyrir hluta áhafna sinna. Slík ráðningarform eru þyrnir í augum stéttarfélaga enda eru réttindi starfsfólks þá mun minni, til dæmis hvað varðar veikindi og frí, og launin mun lægri en kveðið er á um í kjarasamningum. Sömu sögu er að segja um þá sem starfa við afgreiðslu véla á jörðu niðri, þar kýs Indigo að notast við verk­ takasamninga. Indigo kýs yfirleitt að fjárfesta í lággjaldaflugfélögum sem fljúga á stuttum leiðum, eins og Ryana­ ir leggur áherslu á. Mikil áhersla er lögð á mikla nýtingu flugvéla þannig að þær stoppi ekki lengi við á flugvöllum og yfirleitt er rukkað fyrir næstum allt um borð, mat og drykki. Það er því spurning hvað Indigo vill láta gera við lengri flugleiðir WOW air eins og til Bandaríkjanna og svo auðvitað fyrirhugað flug til Indlands. Viðskiptamódel WOW air hefur verið byggt upp á svipað­ an hátt og hjá Icelandair, að nota Keflavíkurflugvöll sem skipti­ og tengiflugvöll fyrir farþega á leið þeirra yfir Atlantshafið. Ekki er ólíklegt að Indigo vilji leggja áherslu á stuttu flugleið­ irnar í leiðakerfi WOW air en á þeim eru yfirleitt meiri möguleik­ ar til kostnaðarhagræðingar en á löngu leiðunum. Einnig má telja líklegt að Indigo vilji endursemja við birgja og smásala til að lækka verð og þar með kostnað WOW air. Þá hafa sérfræðingar á flugmark­ aði velt fyrir sér hvort WOW air, að ósk eða kröfu Indigo, muni hætta að nota Airbus A330 og skipta yfir í Airbus A320 en Indigo kýs yfirleitt að nota þær flugvélar hjá félögum sem fyrirtækið hefur fjárfest í. n Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þú að skilgreining á sótthita breytist eftir aldri? Thermoscan eyrnahita- mælirinn minn veit það.“ Braun Thermoscan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Hvað ætlar Indigo sér með WOW air? Indigo Partners kemur WOW air til bjargar Bill Franke Leggur áherslu á að halda kostnaði niðri. Skúli Mogensen Líklega verða breytingar hjá WOW á næstunni. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.