Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 18
18 UMRÆÐA
Sandkorn
7. desember 2018
Spurning vikunnar
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Enn af klaustri
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
E
ins og glöggt má sjá á síðum
helgarblaðs DV þá er fókus
blaðamanna enn á Klaust-
urmálinu svokallaða og eft-
irmálum þess. Það er eðlilegt enda
er málið fordæmalaust með öllu í
íslenskri stjórnmálasögu. Eins og
staðan er núna virðast allir þing-
mennirnir ætla að freista þess að
hanga á þingsætum sínum eins og
hundar á roði. Vandséð er hvort
það sé skynsamlegasti leikurinn í
stöðunni.
Það er eftirtektarvert að sjá þró-
unina á tilsvörum þingmannanna.
Fyrstu viðbrögð Gunnars Braga
Sveinssonar var að hlægja og gera
lítið úr fyrirspurn blaðamanns
DV um Klausturupptökuna. „Mér
finnst það óskaplega skítlegt af þér
sem fjölmiðlamanni að ætla að
fara að nýta þér það,“ sagði Gunn-
ar Bragi þegar hann var spurður
út í upptökurnar. Hljóðið í honum
átti þó eftir að breytast þegar alvar-
leiki málsins varð honum ljós.
Og alvarleiki málsins er mik-
ill. Þjóðin er agndofa yfir þeim
orðum sem sumir þingmennirn-
ir létu falla þetta örlagaríka kvöld.
Bergþór og Gunnar Bragi voru
sýnu verstir og vandséð er að þeir
eigi afturkvæmt úr leyfi sínu frá
Alþingi. Karl Gauti og Ólafur úr
Flokki Fólksins létu fá, ef nokkur,
ósæmileg orð falla þó að ummæli
þeirra um leiðtogahæfileika Ingu
Sæland hafi gert það að verkum að
þeim var ekki vært í Flokki fólks-
ins. Líklega lifa þeir félagarnir af út
kjörtímabilið sem þingmenn þó að
þeir séu verulega laskaðir.
Staða Sigmundar Davíðs og
Önnu Kolbrúnar er síðan ansi
flókin. Sigmundur Davíð sat lengi
að sumbli með þeim Bergþóri og
Gunnari Braga og lét sér vel líka
groddaralegur talsmáti þeirra. Ég
dreg það ekki í efa að hann hafi oft
orðið vitni af grófari talsmáta með-
al annarra þingmanna. Vanda-
málið er að hann var gripinn í
bólinu og það að benda á aðra er
málsvörn sem hæfir leikskóla-
börnum. Enn verri voru fyrstu við-
brögð hans þar sem ábyrgðinni var
varpað á Marvin, þann er tók sam-
tal þingmannanna upp, og dreg-
in upp langsótt samsæriskenn-
ing. Höggið sem Lilja Alfreðsdóttir
veitti Sigmundi og félögum hans í
Miðflokknum í vikunni var þungt.
Sigmundur brást við með því að
koma loksins með einlæga og
mannlega afsökunarbeiðni. Hann
hefði þó mátt sleppa því að varpa
hluta ábyrgðarinnar yfir á Lilju
sjálfu. Líklega á Sigmundur Davíð
eftir að þráast við í einhvern tíma
en líklega er best fyrir hann og
Miðflokkinn að hann stígi til hlið-
ar. Hann getur svo freistað þess að
mæta auðmjúkur til leiks í næstu
kosningum og reynt að endurnýja
umboð sitt ef hugur hans stendur
til þess.
Anna Kolbrún Árnadóttir, þing-
kona Miðflokksins, hefur síð-
an verið eins og lauf í vindi. Einn
daginn algjörlega miður sín og
íhugar afsögn en þann næsta gerði
hún ekkert rangt. Það skal enginn
gleyma því að Anna Kolbrún byrj-
aði á því að uppnefna Freyju Har-
aldsdóttur sem „eyju“ auk þess
sem hún kallaði meðal annars
Oddnýju G. Harðardóttur, þing-
konu Samfylkingarinnar, „ræfil“.
Hún lifir í sjálfsblekkingu ef hún
telur sig ekki hafa gert neitt rangt
þetta kvöld.
Áhugavert verður að sjá hvern-
ig málið þróast á næstu dögum
og vikum. Vonandi verður þetta
mál til þess að þjóðfélagsumræð-
an færist á hærra plan. Við þurfum
sárlega á því að halda. n
„Bergþór og Gunnar Bragi voru sýnu verstir og
vandséð er að þeir eigi afturkvæmt úr leyfi sínu
frá Alþingi.
Áhrifalaus Halldór
Benjamín
Margir hafa á undanförnum
dögum gert grín að Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni fyrir mjög
hæpnar skýringar hluta Klaust-
ursupptakanna. Það er þegar
einhver heyrist augljóslega
herma eftir sel eða sæljóni.
Skýringarnar sem gefnar hafa
verið á þessu eru að einhver
hafi mögulega verið að færa
stól eða bremsa á reiðhjóli fyrir
utan. Sigmundur hringdi sér-
staklega í Freyju til að koma
þessum samsæriskenningum
áfram.
Staðreyndin er hins vegar sú
að samsæriskenningar höfða
til margra og þeir sem trúa
þeim fer fjölgandi, sérstaklega
á hægri væng stjórnmálanna.
Þetta sést til dæmis hjá stórum
hluta kjósenda Trump sem trúir
hugmyndinni um Qanon.
Hægt er að halda hverju sem
er fram svo lengi sem nógu
margir trúa.
Samfylkingarflokkarnir
Staksteinar Morgunblaðsins
uppnefna Samfylkinguna,
Pírata og Viðreisn reglulega
sem „Samfylkingarflokkana“.
Þessi lenska hefur tíðkast síð-
ustu ár, fyrst voru það Björt
framtíð og Samfylkingin, svo
bættu þeir Pírötum við og svo
tók Viðreisn við af Bjartri fram-
tíð. Enda var það vægast sagt
illa séð í Hádegismóum þegar
einstaklingar hættu í Sjálfstæð-
isflokknum og
fóru yfir í Við-
reisn. Uppnefnið
er kannski for-
tíðarþrá í tímann
þegar flokkarnir
voru að hámarki fimm. Það er
áhugavert að nota þessa skil-
greiningu ofan úr Hádegismó-
um á kannanir sem hafa birst
síðustu daga. Samfylkingin
mælist með rúm 20%, Pírat-
ar 14% og Viðreisn með 14%.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með svipað fylgi og Samfylk-
ingin. Þetta þýðir að „Samfylk-
ingarflokkarnir“ eru með meira
en helmingi meira fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn. Spurn-
ing hvort Hádegismórar þurfi
að safna saman „Sjálfstæðis-
flokksflokkum“ til að eiga roð í
„Samfylkingarflokkana“.
Hverjir af sexmenningunum á Klaustri eiga að segja af sér?
„Þeir eiga allir að segja af sér“
Geirfinnur Þórhallsson
„Bara allir“
Aníta Kristjánsdóttir
„Allir með tölu“
Ragnheiður Jónsdóttir
„Bergþór Ólason og
Gunnar Bragi“
Elvar Sturlaugsson
Ágúst Bent.