Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 24
24 SPORT 7. desember 2018
Hvaða leikmenn komast í besta íslenska
landslið allra tíma? - Sérfræðingar velja
A
ð velja besta landslið allra
tíma getur verið flókið
og aldrei verða allir sam-
mála um slíkt. Guðmund-
ur Benediktsson, gefur út bók
þessi jólin og þar velur hann með-
al annars besta íslenska karla-
landslið allra tíma. Liðið sem Guð-
mundur stillir upp er skemmtilegt
en þar vantar líka marga frábæra
leikmenn, enda erfitt að koma öll-
um fyrir þegar aðeins 11 pláss eru
í liðinu. Við fengum nokkra öfl-
uga einstaklinga til að stilla upp
sínu besta landslið. Liðin litast
því af þeirri staðreynd að menn
eru fæddir á mismunandi aldri og
sumir tóku þá ákvörðun að velja
aðeins leikmenn sem þeir fylgdust
með. Einnig völdum við okkar lið
en beðið var um að rökstuðningur
fylgdi liðinu.
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Ég ákvað að stilla upp í 3-4-3 kerfi sem landsliðið notar ekki mikið.
Með því kerfi náði ég að koma inn flestum af þeim leikmönnum sem
ég hef séð með landsliðinu, og taldi eiga heima í svona liði. Ég horfði
aðeins í frammistöðu með landsliðinu og þar sem ég er fæddur árið
1990 get ég ekki dæmt um það sem var í gangi áður. Ásgeir Sigurvins-
son, Arnór Guðjohnsen og fleiri komu ekki til greina hjá mér en ættu
líklega heima í svona liði. Tveir leikmenn koma frá gamla tímanum,
þar sem lítið gekk með landsliðinu. Leikmenn sem stóðu alltaf fyrir
sínu. Það sem vafðist mest fyrir mér var hvort ég ætti að hafa Birkir
Bjarnason
eða Alfreð
Finnboga-
son í liðinu.
Að lokum
valdi ég
Alfreð því
hans fram-
lag, þegar
hann hefur
fengið stórt
hlutverk,
hefur reynst
liðinu ómet-
anlegt.
Ég mætti á minn fyrsta landsleik árið 1998 og hef mætt á nánast alla
leiki síðan þá. Val mitt litast af aldri mínum, ég hef ekki séð nema
smá sjónvarpsklippur úr mörgum leikjum sem voru spilaðir á síð-
ustu öld! Sjö leikmenn í liðinu koma úr hópnum sem fór í 8-liða úr-
slit á EM 2016 og margir miðjumenn eru á blaði. Í vörninni eru síðan
þrír grjótharðir miðverðir.
Ég stilli upp í 4-4-2 kerfið, það sem hefur reynst okkar landsliði best.
Hannes er í markinu, það er ekki spurning, sá besti sem við höf-
um átt. Í varnarlínunni er ég með öfluga sveit, Guðni var magnaður
varnarmaður, fljótur og las leikinn vel. Lék mestmegnis sem mið-
vörður en einnig í bakverðinum. Í hjartanu er ég með Atla Eðvalds-
son, ótrúlega fjölhæfan leikmann og trúlega besta skallamann sem
við höfum átt. Kári er svo mikill leiðtogi og gerir aðra betri í kringum
sig. Í vinstri bakverðinum er ég með manninn með risastóra hjart-
að og ódrepandi baráttuvilja, Hermann Hreiðarsson. Á miðjunni er
ég með fjóra snillinga. Toddi Örlygs var gríðarlega góður leikmaður
og skoraði mikilvæg mörk. Mjög vanmetinn. Ásgeir Sigurvinsson, að
mínu mati sá besti sem við höfum átt. Um Gylfa þarf ekkert að fjöl-
yrða, Aron Einar er svo fyrirliði þjóðar. Í framlínunni er ég með feðga.
Eið Smára
(erfitt að
gera upp á
milli hans
og Ásgeirs
Sigurvins
sem þess
besta) og
Arnór sem
var ofboðs-
lega góður
í fótbolta.
Gríðarlega
kröftugur.
Breiðhyltingurinn hefur kannski ekki náð sömu
hæðum og Árni Gautur á félagsliðaferlinum en á
þeim 25 árum sem ég hef fylgst með landsliðinu
hefur enginn verið jafnstöðugur og átt jafnmarga
stórleiki og Hannes Þór. Ótrúleg saga.
Varnarlínan er með alvöru karakterum, besti
varnarmaður besta íslenska landsliðs sögunnar
er sjálfvalinn. Kári Árnason enn og aftur að sýna
mikilvægi sitt á þessum síðustu og verstu. Kóngur-
inn í teignum, leiðtogi og bara einfaldlega frábær
miðvörður. Miðvarðarteymið sem Ragnar Sigurðs-
son hefur skipað með Kára er það besta í sögunni
enda hefur liðið náð sögulegum árangri. Ótrúlegar
margar lykiltæklingar á lykilstundum í gegnum
tíðina. Geggjaður leikmaður. Við höfum átt marga
góða miðverði en Guðni Bergsson á hátindinum
var ekkert eðlilega góður. Öskufljótur, sterkur, góð-
ur skallamaður og mikill leiðtogi á vellinum. Hefði
auðvitað átt að spila miklu fleiri leiki.
Á miðsvæðinu verður kannski ekki mik-
ið varist hægra megin í mínu liði en af
þessum sem ég byrjaði að horfa á þegar að
ég var gutti var Arnór Guðjohnsen einn af
fáum í baráttuglöðu íslensku liði sem hafði
svo mikinn WOW-factor. Stundum hrein-
lega skildi ég ekki hlutina sem hann var að
gera inn á vellinum. Þetta var svo óíslenskt.
Fyrirliði þjóðarinnar, Aron Einar, og besti
fyrirliði sögunnar er að sjálfsögðu í mínu
liði. Hefur alltaf verið mikill leiðtogi en er
einnig orðinn, fyrir löngu síðan, frábær
miðjumaður sem stýrir liðinu eins og her-
foringi. Einn allra mikilvægasti leikmað-
ur besta landsliðs sögunnar. Ekki er hægt
að sleppa þeim leikjahæsta. Rúnar, stýrði
miðjunni í mjög mismunandi og stundum
ansi döprum landsliðum en sýndi alltaf gæði sín.
Manni leið alltaf vel með Rúnar á boltanum sem
var kannski alveg það sama og hægt var að segja
um marga samherja hans. Besti landsliðsmaður
sögunnar er í liðinu. Þetta er Gylfi Þór Sigurðsson.
Orð eru óþörf. Jóhann Berg, einn besti sóknarleik-
maður sem við höfum átt sem hefur bætt sig nán-
ast með hverjum leik. Orðinn frábær varnarmaður
sömuleiðis og einn af mikilvægustu mönnum þessa
magnaða liðs okkar í dag.
Í framlínunni er ég með bestu pjúra níuna í
sögunni. Raðaði inn mörkum reyndar á tiltölulega
stuttu tímabili en mörkin telja í þessu og Kolbeinn
gat/getur svo sannarlega skorað þau þegar að hann
er í toppstandi. Með honum er Eiður Smári, besti
leikmaður frá Íslandi sem ég hef séð spila fótbolta.
Sá markahæsti frá upphafi og bara sá besti þegar
talað er um hæfileika á þeim tíma sem ég hef horft
á landsliðið.
Hörður Magnússon
– Íþróttafréttamaður hjá Stöð2
Hörður Snævar Jónsson – Ritstóri 433.is
Fæðingarár – 1990
Tómas Þór Þórðarson – Íþróttafréttamaður hjá Stöð2
Fæðingarár – 1984
Magnús Már Einarsson – Ritstjóri Fótbolti.net
Fæðingarár – 1989