Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 32
32 7. desember 2018
S
kór, pípa, kokkahúfa og
dolla af hárgeli. Þetta virð-
ast ekki vera merkilegir
hlutir, hvað þá verðmætir og
þeir voru það örugglega ekki þann
14. apríl 1912. En skömmu fyr-
ir miðnætti það kvöld sigldi gufu-
skipið RMS Titanic, sem var í jóm-
frúarferð sinni frá Southampton á
Englandi til New York í Bandaríkj-
unum, á stóran borgarísjaka um
600 km sunnan við Nýfundnaland.
Klukkan 02.30 aðfaranótt 15. apr-
íl sökk skipið til botns eða niður á
tæplega fjögurra kílómetra dýpi.
Af þeim 2.244 sem voru um borð
létust 1.514. Slysið er því eitt versta
sjóslys sögunnar á friðartímum og
vekur enn mikla athygli og áhuga
fólks. Slysið gerði það að verkum
að fyrrgreindir skór, kokkahúfa,
pípa og hárgelsdolla eru mjög
verðmætir munir í dag.
Þrátt fyrir að frá upphafi hafi
verið vitað nokkuð nákvæmlega
hvar skipið sökk var ekki heiglum
hent að finna flakið og margar slík-
ar leitartilraunir fóru út um þúfur.
Það var ekki fyrr en þann 1. sept-
ember 1985 sem flakið fannst loks-
ins. Þá tókst bandaríska vísinda-
manninum og haffræðingnum
Robert Ballard að staðsetja flak-
ið. Hann er greinilega ekki van-
ur að gefast upp því fjórum árum
síðar fann hann flak þýska or-
ustuskipsins Bismarck sem var
sökkt í orustu á Norður-Atlants-
hafi 1941 og árið 2002 fann hann
flak hraðskeiða tundurskeytabáts-
ins PT-109 sem John F. Kennedy
hafði gegnt herþjónustu á. Ballard
tryggði sér ekki réttinn til að bjarga
verðmætum úr flökunum og hafði
ekki í hyggju að gera neitt í þá veru
þar sem hann taldi grafarró eiga
að ríkja við flökin.
Eftir töluverð lögfræðileg átök
var rétturinn til að sækja verð-
mæti niður að flaki Titanic veittur
bandaríska fyrirtækinu RMS
Titanic Inc. sem varð síðar hluti
af bandaríska fyrirtækinu Premi-
er Exhibitions. Frá 1985 til 2004
gerði RMS Titanic Inc. út átta stóra
leiðangra að flaki Titanic og tókst
að ná mörg þúsund hlutum upp
á yfirborðið. Hluti þeirra var seld-
ur til safna og einkasafnara en
stóru safni, um 5.500 munum, var
haldið saman og hefur það ver-
ið sýnt á fjölda sýninga um allan
heim, á vegum Premier Exhi-
bitions, en um 25 milljónir manna
hafa sótt þessar sýningar.
Árið 2010 var enn á ný kafað við
flak Titanic en þá var markmiðið
að ljósmynda flakið og leggja mat
á ástand þess eftir tæp 100 ár á
hafsbotni.
Safnið selt
2012 glímdi Premier Exhibitions
við mikla fjárhagserfiðleika og
neyddist til að selja Titanic-safnið
á uppboði en dómstóll hafði úr-
skurðað að selja skyldi safnið í
heilu lagi. Byrjunarverð á safn-
inu var um 180 milljónir dollara.
Uppboðið átti að vera þann 4. apr-
íl 2012, 10 dögum fyrir 100 ára af-
mæli slyssins. En uppboðið gat
ekki farið fram eins og til stóð því
ættingjar þeirra sem létust í slys-
inu mótmæltu hástöfum og sögðu
að um óhugnanlegt grafarrán væri
að ræða. Uppboðinu var síðan fre-
stað og síðar kom í ljós að enginn
var reiðubúinn til að greiða þær
180 milljónir dollara sem Premi-
er Exhibitions vildu að lágmarki fá
fyrir safnið.
Fyrir tveimur árum var Premi-
er Exhibitions, sem og öll dóttur-
fyrirtæki þess, úrskurðað gjald-
þrota. Skiptaréttur ákvað síðar
að safnið skyldi selja í heilu lagi
til hæstbjóðanda ásamt réttin-
um til að sækja fleiri muni í flak
Titanic. Kröfuhafar í bú Premier
Exhibitions höfðu krafist þess að
safninu yrði skipt upp og einstak-
ir hlutir seldir stakir en því hafn-
aði dómstóllinn. Eftir töluvert þras
úrskurðaði bandarískur dóm-
stóll að selja mætti safnið til hóps
vogunarsjóða sem höfðu tekið sig
saman um að bjóða í það. Þeir
greiddu 19,5 milljónir dollara fyrir
safnið. Ef fleiri boð hefðu borist og
þau hefðu náð 21,5 milljón dollara
hefði verið efnt til hefðbundins
uppboðs en þar sem enginn bauð
þá upphæð úrskurðaði dómstóll-
inn að selja mætti safnið til vog-
unarsjóðanna.
Hópur breskra safna, þar á
meðal National Maritime Muse-
um og National Museums
Northern Ireland, hafði einnig
hug á að bjóða í safnið í samvinnu
við Titanic Foundation Limited en
féllu frá boði í það þar sem þeim
tókst ekki að afla nægra fjármuna
til að geta komið með lágmarks-
boð í safnið en það var einmitt
19,5 milljónir dollara. Ekki er enn
ljóst hvað verður um safnið en
talsmenn safnanna, sem hugð-
ust bjóða í það, óttast að því verði
skipt upp og munirnir því dreifast
vítt og breitt og þetta einstaka safn
fari því nánast forgörðum. Líklegt
má telja að þessi ótti þeirra sé á
rökum reistur enda eru vogunar-
sjóðir þekktir fyrir allt annað en
að láta menningarverðmæti sitja
í fyrirrúmi, markmið þeirra er að-
eins eitt og það er að græða pen-
inga. Þeir hafa því væntanlega séð
sér leik á borði með því að kaupa
safnið og telja sig geta selt það fyrir
hærri upphæð og þannig hagnast
og þá væntanlega ekki um neina
smáaura. n
FRÉTTIR - ERLENT
Ekki ljóst hvað verður um safnið „Frá 1985 til 2004 gerði
RMS Titanic Inc. út átta
stóra leiðangra að flaki Titanic
og tókst að ná mörg þúsund
hlutum upp á yfirborðið
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
HÖRÐ BARÁTTA UM MIKIL
VERÐMÆTI ÚR FLAKI TITANIC
Titanic Sökk í jómfrúarferð sinni.