Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 34
Tómstundir og útivist 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
SUNDSKÓLI SÓLEYJAR:
Gæðastund fyrir fjölskylduna
Á nýju ári er alveg tilvalið að skella sér á sundnámskeið og hjá Sundskóla Sóleyjar
er af ýmsu að taka. „Við erum með
ungbarnasund, barnasund, einkatíma,
skriðsundnámskeið og vatnsleikfimi
fyrir fullorðna. Börn allt frá tveggja
mánaða aldri og upp í tólf ára
sækja einnig fjölbreytt námskeið hjá
mér allt árið,“ segir Sóley, eigandi
sundskólans, ungbarnasundkennari
og íþróttakennari. Sundskóli Sóleyjar
hefur verið starfandi í 20 ár og hefur
starfsemin vaxið jafnt og þétt. „Þetta er
fullt starf hjá mér í dag sem er ágætt
því þetta er það skemmtilegasta sem
ég geri,“ segir Sóley. Hjá sundskólanum
starfar einnig Ragnheiður
Sæmundsdóttir, ungbarnasundkennari
og íþróttakennari.
Sjálfsörugg í sundi
Ungbarnasund kom til sögunnar í
kringum árið 1990 og hefur lengi verið
vinsælt. Að sögn Sóleyjar hefur hins
vegar mesti vöxturinn undanfarin ár
verið í barnasundi. Slík tómstundaiðkun
barna hefur margvíslega kosti fyrir
utan þá að vera holl hreyfing. Til
dæmis er afar gott fyrir börn að
stunda sundnámskeið áður en þau
fara í skólasund því það gerir þau að
sterkari einstaklingum og þau verða
miklu sjálfsöruggari í skólasundinu.
Enn fremur eru barnanámskeiðin,
sem og ungbarnasundið, sannkölluð
gæðastund fyrir fjölskylduna því
foreldrar eru alltaf með barninu í
lauginni, nema þegar um einkakennslu
er að ræða.
Mikilvægt að halda sundinu við
„Það er líka mjög mikilvægt að viðhalda
kunnáttunni. Það hefur komið fyrir að
ég fái til mín fólk á ungbarnanámskeið
og svo kemur það aftur með barnið á
barnanámskeið fjórum árum síðar. En
í millitíðinni er barnið orðið vatnshrætt.
Það er því mikilvægt að fjölskyldan fari
reglulega í sund eða barnið haldi áfram
á námskeiðum eftir ungbarnasundið,“
segir Sóley.
Meiri árangur ofan í lauginni
Námskeiðin fara fram í tveimur
sundlaugum, önnur er á Hrafnistu
í Hafnarfirði en hin á Hrafnistu í
Kópavogi. „Okkar markmið er að kenna
börnum að synda í gegnum leik, þannig
að þau upplifi ekki þessa hefðbundnu
sundkennslu með kennarann uppi á
bakkanum. Í sundkennslunni förum við
Ragnheiður báðar ofan í laugina með
öllum. Það á einnig við um fullorðna
fólkið í skriðsundinu og vatnsleikfiminni
að þar er ég líka ofan í lauginni. Ég tel
mig ná betri árangi með því að vera
í augnhæð við nemendurna, sama á
hvaða aldri þeir eru, hvort sem þeir eru
tveggja mánaða eða sjötíu ára,“ segir
Sóley.
Sundkennsla á landsbyggðinni
„Við förum einnig út á land með
kennsluna okkar og bjóðum
landsbyggðarbörnunum sömu
þjónustu og börnunum hér í bænum.
Það er svo gaman að leyfa börnunum
á landsbyggðinni að upplifa
ævintýrið sem ég er með í gangi í
sundlauginni. Þá kennum við tvær
helgar á hverjum stað og börnin
mæta tvisvar á dag í sund. Síðast
í nóvember fórum við til dæmis í
Búðardal,“ segir Sóley.
Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni sundskoli.is og ástæða til
að hvetja foreldra til að skoða hana
vel.
Þar eru mjög fróðlegar
upplýsingar um námskeiðin auk þess
sem hægt er að skrá sig á námskeið
á vefnum. Skráning og kennsla er
nú þegar hafin og ekki ekki seinna
vænna að skrá sig fyrir nýja árið.
Sjá einnig Facebook-síðuna
Sundskóli Sóleyjar. n
Kraftlyftingar eru vinsæl íþrótt og yfir 1.500 iðkendur íþróttarinnar eru skráðir í félagagrunn ÍSÍ.
Á vissan hátt kemst meirihluti fólks
í ákveðna snertingu við íþróttina
vegna þess að greinarnar þrjár,
bekkpressa, hnébeygja og réttstöðulyfta
eru alþekktar og mikið iðkaðar í
líkamsræktarsölum landsins.
Margir sem taka ástfóstri við
þessar hollu og skemmtilegu æfingar
ganga síðan skrefi lengra og fara
að æfa íþróttina með keppni í huga.
„Það er einnig svo að styrktarþjálfun
kemur við sögu í nær öllum öðrum
keppnisíþróttum. Sumir fara þá að
keppa meira við sjálfa sig en aðrir og
hafa gaman af að lyfta sífellt þyngra.
Maður vill taka þetta á næsta stig.
Þannig byrjaði þetta hjá mér,“ segir
Aron Friðrik Georgsson, stjórnarmaður
í Kraftlyftingasambandi Íslands og
formaður lyftingadeildar Stjörnunnar.
Kraftlyftingar eru ein þeirra íþrótta
þar sem margfalt meiri tími fer í
æfingar en keppni. „Það eru bara
þessar þrjár greinar í kraftlyftingum
og í fullri keppni eru þrjár lyftur í hverri
grein. Keppnin er því það minnsta sem
maður gerir en þeim mun meiri tími og
orka fara í að byggja grunninn undir
þetta með stöðugri iðkun á þessum
þremur æfingum og svo ýmsum
hjálparæfingum,“ segir Aron.
Kraftlyftingaæfingarnar þrjár eru
mjög víðtækar æfingar fyrir líkamann
og taka á stórum vöðvahópum: „Sem
dæmi þá skipta fæturnir meira máli í
bekkpressu en margir gera sér grein
fyrir. Fyrir lengra komna er nefnilega
gott að ná sterkri spyrnu í gólfið til að
halda sér stöðugum.“
Kraftlyftingaæfingarnar þrjár eru
mjög hollar fyrir líkamann ef réttri tækni
er beitt og með réttri tækni er hægt að
forðast meiðsli og hámarka árangur
sinn. Að sama skapi hefur röng tækni
leitt til meiðsla hjá mörgum en afar
mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum
fagmanna um þessar lyftur.
Þess má geta að
Kraftlyftingasamband Íslands er
sérsamband innan ÍSÍ og iðkendur
gangast undir strangt lyfjaeftirlit.
Heilbrigð nálgun á íþróttina er ein af
megináherslum sambandsins.
Kraftlyftingar í blóma og stundaðar
um allt land
Hægt er að æfa kraftlyftingar í yfir 25
íþróttafélögum sem eru staðsett vítt
og breitt um landið. Eins og vænta má
eru þessar deildir misöflugar en margar
eru á uppleið og hjá sumum er aðstaða
til fyrirmyndar og margir afreksmenn í
íþróttinni verða til.
Á næsta ári eru nokkur spennandi
kraftlyftingamót á dagskrá en það
fyrsta er hluti af Reykjavíkurleikunum,
alþjóðlegt boðsmót sem fer fram í
Laugardalshöll sunnudaginn 27. janúar.
„Þetta mót er á mótadagskrá
alþjóðasambandsins og því geta fallið á
því heimsmet. Það verða 10 keppendur
í karlaflokki og jafnmargir í kvennaflokki
– blanda af innlendum keppendum
og erlendum gestum. Þetta er vigtar-
stigamót, það er að segja að reiknað
er út hlutfall líkamsþyngdar keppenda
og þeirra samanlagðrar þyngdar sem
þeir lyfta á mótinu. Stigin eru reiknuð út
frá þessu og stigahæstu keppendurnir
vinna mótið,“ segir Aron.
Ítarlegar upplýsingar um
kraftlyftingadeildir íþróttafélaga vítt og
breitt um landið og reglulega uppfærðar
fréttir af kraftlyftingum og mótamálum
er að finna á vefsíðunni kraft.is. n
Vinsæl og holl íþrótt