Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 38
Tómstundir og útivist 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
COERVER ICELAND:
Námskeið sem gerir góðan
leikmann betri
Coerver Iceland sérhæfir sig í knattspyrnuþjálfun og er hluti af Coerver Coaching,
sem var stofnað árið 1984 af Alfred
Galustian og Chelsea-goðsögninni
Charlie Cooke, undir áhrifum hins
goðsagnakennda hollenska þjálfara,
Wiel Coerver. Þjálfunin byrjaði hér
á landi árið 2013 og er Heiðar Birnir
Torleifsson framkvæmdastjóri og
yfirþjálfari Coerver Iceland. „Við
hjá Coerver erum með okkar eigin
kennslu- og æfingaáætlun og í dag
störfum við í 44 löndum og þjálfunin er
í boði allt árið um kring,“ segir Heiðar.
Iðkendur eru á öllum aldri og frá
öllum félögum. „Oftast er aldurinn
nemendur í 1.–8. bekk þótt við förum
alveg upp í 10. bekk. Svo vinnum við
einnig með eldri leikmönnum, það er 2.
flokki og leikmönnum í meistaraflokki,
en það er meira einkaþjálfun og erum
við þá að hjálpa leikmönnum með
einhverja ákveðna þætti í þeirra leik.“
Það eru leikmenn á öllum færnistigum
sem mæta og kennsluáætlunin verður
því að henta öllum, þannig að allir,
hvar sem þeir eru staddir með tilliti til
færni, geti komið á námskeiðin og náð
framförum og notið sín.
Mikilvægt að börn fái færniþjálfun
Coerver er með eigin kennsluáætlun
sem var gefin út árið 1997. Vel var
vandað til verks og það er enginn
annar með álíka kennsluáætlun.
„Fótbolti er bara skoðun og þetta
er okkar skoðun,“ segir Heiðar og
segir afar mikilvægt að börn fái
færniþjálfun, sérstaklega undir 14 ára
aldri. „Við trúum því að allir aðrir þættir
leiksins byggist á grunnfærninni, það
er, ef hún er ekki til staðar þá komi það
niður á öðrum þáttum leiksins seinna
meir, svo sem taktík, einbeitingu og
fleira. Allar æfingar og uppbygging
æfinga eru töluvert öðruvísi en
krakkarnir eru vanir. Þær eru byggðar
upp þannig að allir eru með bolta. Svo
eykst erfiðleikastigið og við reynum
að gera æfingarnar eins líkar leiknum
og mögulegt er. Allt sem þau gera og
læra er í beinni tengingu við það sem
þau lærðu á undan. Coerver Coaching
er fyrir alla og okkar mantra og
hugmyndafræði er að allir eiga skilið
góða þjálfun.“
Þjálfarar sækja líka námskeið hjá
Coerver
Coerver hefur einnig haldið
námskeið fyrir þjálfara, bæði
á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. „Við höfum haldið
þjálfaranámskeið fyrir fjölmörg
félög, til dæmis Breiðablik, Víking,
Akranes, Fram, Selfoss, Vestra,
Fjarðabyggð og tvö námskeið fyrir
KSÍ. Yfir 300 þjálfarar hafa komið á
námskeið hjá okkur. Þeir hafa verið frá
meistaraflokki niður í yngstu flokka;
allt frá mjög reyndum þjálfurum
með allar UEFA þjálfaragráðurnar,
til þjálfara sem eru að stíga sín allra
fyrstu skref í bransanum,“ segir
Heiðar.
„Coerver Coaching er fyrir alla og
til að mynda eru okkar iðkendur frá
byrjendum upp í afreksmenn og allt
þar á milli. Við getum sniðið okkar
æfingar að þörfum hvers og eins“.
Ávinningur leikmanna:
n Leikmaður eykur leikfærni óháð
leikstöðu og getu í knattspyrnu
n Leikmaður lærir færni bestu
knattspyrnumanna heims
n Leikmaður eykur hraða með og án
bolta
n Leikmaður nýtur fótboltans betur
óháð eigin getu
Næstu námskeið Coerver Coaching
eru eftirfarandi:
Mosfellsbær 14.–16. desember
Akraneshöllin 21.–23. desember
Fífan í Kópavogi 27.–29. desember
Allar skráningar fara fram á
coerver.is/store
Allar frekari upplýsingar um Coerver
eru á heimasíðunni: coerver.is n
Sigurður Víðisson yfirþjálfari hjá K.R. og Heiðar Birnir Torleifsson yfirþjálfari Coerver
Iceland að handssala samstarfssamning sl. okt. milli Knattspyrnudeildar K.R. og Coerver
Coaching.
Við undirskrift á áframhaldandi samstarfi milli Coerver Coaching og Knattspyrnudeildar
Breiðabliks: Sigurður Hlíðar Rúnarsson, verkefnastjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks og
Heiðar Birnir Torleifsson, yirþjálfari og framkvæmdastjóri Coerver Coaching á Íslandi.
Stofnendur Coerver Coaching, þeir Alfred Galustian og Charlie Cooke, ásamt bandarísku
goðsögninni Kristine Lilly að taka við viðurkenningu frá Fífa á 30 ára afmæli Coerver Coaching.