Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 39
Tómstundir og útivist 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
KEILUSAMBAND ÍSLANDS:
Spennandi alþjóðamót fyrir
keppnisfólkið og skemmtileg
utandeild fyrir almenning
Keila er vinsæl íþrótt og starfsemi Keilusambands Íslands er með blóma.
Æfingar í keilu eru nú sóttar í
sex íþróttafélögum á landinu en
æfingagjöld eru með því lægsta
sem þekkist í íþróttastarfi fyrir börn
og unglinga. Keiluiðkun er fyrst og
fremst skemmtilegt og heilbrigt
tómstundagaman en fyrir þá sem
vilja æfa af kappi og ná langt í
íþróttinni eru spennandi viðburðir
handan við hornið, meðal annars
alþjóðleg mót ungmenna.
„Við höfum notið góðs af
afreksstefnu stjórnvalda í íþróttum
og höfum skrifað undir samning
við afrekssjóð ÍSÍ. Ríkið leggur þar
til nokkra fjármuni og það eru
spennandi viðburðir framundan
á næsta ári,“ segir Jóhann
Ágúst Jóhannsson, formaður
Keilusambands Íslands, og rekur
helstu stórmót næsta árs:
„Evrópumót ungmenna undir
18 ára aldri verður haldið í Vín í
Austurríki dagana 6. til 24. mars.
Þetta er stærsta sviðið fyrir þessa
krakka í keilunni til að komast á og
eftir miklu að slægjast. Í júní verður
síðan heimsmeistaramót karla í
München í Þýskalandi. Í lok ágúst
verður heimsmeistarakeppni kvenna
haldin í Las Vegas.“
Heimsmeistaramót og Evrópumót
eru haldin annaðhvert ár og raðast
upp þannig að það víxlast á karla- og
kvennamót. Það eru því alþjóðleg
stórmót á hverju ári og Íslendingar
senda ávallt keppendur á þessi mót.
„Rúsínan í pylsuendann er síðan
Norðurlandamót ungmenna sem
haldið verður í Egilshöll í um miðjan
nóvember. Er þetta í þriðja sinn
sem mótið er haldið hérlendis,“ segir
Jóhann.
Allar upplýsingar um æfingatíma
einstakra félaga, æfingagjöld sem
og fréttir af starfseminni almennt er
að finna á vefnum kli.is og Facebook-
síðunni Keilusamband Íslands
Utandeildin í keilu – hentar öllum
Utandeildin í keilu er skemmtilegur
vettvangur fyrir fyrirtæki og aðra
hópa. Keppt er í fjórum riðlum
og keppir hver riðill einu sinni í
mánuði. Keppninni lýkur síðan með
úrslitakeppni í vor.
„Þetta er forgjafarkeppni og allir
keppendur eru jafnaðir út. Þetta þýðir
að byrjandi í keilu getur komið þarna
inn og átt möguleika í keppanda sem
er lengra kominn. Fyrst og fremst
snýst þetta um að eiga skemmtilega
stund saman,“ segir Jóhann.
Nánari upplýsingar um
utandeildina er einnig að finna á
vefnum kli.is. n
Ástrós Pétursdóttir, einn fremsi kvenkeilari landsins
Stefán Claessen ÍR
Þorleifur Jón Hreiðarsson
Ungmennalandslið Íslands á Evrópumóti ungmenna 2017