Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 43
Tómstundir og útivist 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Ljómi aðventutónleika hefur fylgt mér í rúma hálfa öld. Fyrst þegar ég söng sem barn með kórunum
mínum í Hafnarfirði svo sem kórstjóri
frá árinu 1981. Engin ljós eru skærari
en góður samhljómur brosandi barna
og kórfólks á aðventu og jólum. Þetta
er uppáhaldstíminn minn í söng og
innihaldsríkir trúartextarnir næra hug
minn og sál. Myrkrið verður bara að
nauðsynlegri umgjörð svo allt þetta fái
meiri dýpt og mótvægi,“ segir Margrét
Pálmadóttir, kórstjóri og stofnandi
Domus Vox.
Domus Vox er söngskóli og kóraheimili
átta mismunandi kóra. Vox feminae
og Cantabile eru kvennakórar, hvor
um sig telur um fimmtíu félaga.
Domusdrengirnir er nýjasti kórinn,
ætlaður drengjum frá sex ára til tíu ára.
Kórinn tekur á móti nýjum drengjum
á vorönn. Margrét Pálma, Þorsteinn
Sigurðsson tenór og Jón Elísson
píanóleikari eru aðalleiðbeinendur
drengjakórsins.
Stúlknakórarnir eru fimm talsins og
tilheyra allir Stúlknakór Reykjavíkur.
Elsti hópurinn er Dömukórinn AURORA
ætlaður 18 ára og eldri og stjórnað
af Sigríði Soffíu Hafliðadóttur. Aðrir
stjórnendur stúlknanna eru þær Guðrún
Árný Guðmundsdóttir og Margrét
Pálma. Stúlknakór Reykjavíkur mun
syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á
árlegum jólatónleikum hljómsveitarinnar
í Eldborgarsal helgina 15. og 16.
desember n.k.
Alls syngja um 250 manns í
sönghúsinu Domus Vox sem jafnframt er
eina sönghúsið á Íslandi í eigu kvenna-
og stúlknakóra.
Aðventutónleikar 8. desember
Tímamót verða næstkomandi janúar
þegar nýr kórstjóri, Hrafnhildur
Árnadóttir Hafstað sópran, tekur við
af Margréti sem aðalstjórnandi Vox
feminae. Margrét verður að sjálfsögðu
innan handar þar sem hún verður áfram
listrænn stjórnandi sönghússins Domus
Vox.
Þriðju aðventutónleikar hússins
verða laugardaginn 8. desember kl.
17.00 í Háteigskirkju. Kvennakórinn
Vox feminae flytur þar, undir stjórn
Margrétar, fallega efnisskrá sem tilheyrir
þessari árstíð. Einsöngvari er Hanna
Björk Guðjónsdóttir sem jafnframt er
deildarstjóri einsöngsdeildar Domus
Vox. Hljóðfæraleikarar tónleikanna
eru Arnhildur Valgarðsdóttir, Erla Rut
Káradóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og
Emilía Rós Sigfúsdóttir.
Kvennakórinn Cantabile syngur svo
létta aðventudagskrá JÓL Í KÖLDU
LANDI, í Hannesarholti n.k. þriðjudag
11. desember kl. 20.00 og miðar á þá
tónleika fást á Tix.is.
Innritun í alla kóra og í söngnám
Domus Vox er í síma 511-3737 n
Aðventuljóminn eykst
með hverjum tónleikum