Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 50
Góður biti 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
MATARKJALLARINN:
Einstök matarupplifun á aðventunni
Matarkjallarinn, sem staðsettur er í Grófinni í hjarta miðbæjarins, býður
upp á tvo matseðla fyrir jólin, til
viðbótar við hefðbundinn matseðil.
Upplifðu jólin er fjögurra rétta
matseðill, sem býður upp á grillaða
rjúpu og hægeldaða gæs, malt-
og appelsínugrafinn lax, gljáð
lambafillet og hvítt súkkulaði og
jarðarber í eftirrétt. Hægt er að
panta seðilinn með sérvöldum
vínum.
„Rjúpan fellur sérstaklega
vel í kramið hjá gestum okkar,“
segir Valtýr Bergmann yfirþjónn
Matarkjallarans.
Jólaleyndarmál Matarkjallarans
er svo sex rétta matseðill að hætti
kokksins og þann seðil er einnig
hægt að panta með sérvöldum
vínum.
„Flestir réttanna eru líka á a la
carte seðlinum,“ segir Valtýr, „ef
að fólk kýs frekar að velja sér af
honum.“
Gjafabréf er frábær jólagjöf
„Gjafabréf Matarkjallarans er
fullkomin jólagjöf og tilvalin fyrir þá
sem vita ekki hvað þeir eiga að gefa
í jólagjöf,“ segir Valtýr. Gjafabréfin
geta verið fyrir hvaða upphæð
sem er, eða einhvern af samsettu
matseðlunum sem gefandinn velur.
Gjafabréf sem keypt eru fyrir jól
eru á 15% afslætti og gilda frá 26.
desember.
Öll kvöld vikunnar er spilað á
flygilinn okkar sem er Bösendorfer
frá 1890. „Það verður að nýta
hljóðfærið,“ segir Valtýr og brosir.
Það eru tveir sem skiptast á að
spila á flygilinn hjá okkur; Steindór
Dan Jensen og Guðmundur Reynir
Gunnarsson (Mummi).
Matarkjallarinn er í Aðalstræti 2
og borðapantanir eru í síma 558
0000 eða á heimasíðu staðarins.
Matarkjallarinn er líka á Facebook.
Opið er í hádeginu alla virka
daga frá kl. 11.30-15.00 og kl.
17.00-23.00 öll kvöld vikunnar. n